Morgunblaðið - 16.09.2022, Side 2

Morgunblaðið - 16.09.2022, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverf- is-, orku- og loftslagsráðherra, segir mikilvægt að auka fyrirsjáanleika í stuðningi við kaup á hreinorkubílum. Tilefnið er að niðurfelling allt að 1.320 þúsund króna gjalda á rafbíla rennur að óbreyttu sitt skeið á næsta ári, þegar 20 þúsund rafbílar hafa verið seldir. Bílasalar hafa sagt við Morgunblaðið að kvótinn verði að óbreyttu fullnýttur innan árs en 5.100 rafbílar voru óseldir innan þeirra marka í byrjun september. Aðgerðin hefur kostað sitt „Þetta hefur auðvitað verið dýr aðgerð en hefur ekki aðeins gert það að verkum að við erum með annað hæsta hlutfallið af vistvænum bílum [á eftir Noregi], heldur er hugarfarið breytt. Það þarf ekki lengur að sann- færa neinn um að rafbílar virki eða séu góður kostur. Það hefur verið vitað að það yrði ekki hægt að hafa fullkomið gjald- frelsi af rafbílum um ókomna tíð. Það breytir því þó ekki að það er mikilvægt fyrir seljendur og kaupendur að hafa fyrirsjáanleika,“ segir Guðlaugur Þór. Markmiðin eru mikilvæg „Það stendur ekki til að hætta að styðja við kaup á rafbílum. Það hefur alltaf legið fyrir að þessi mál eru í endurskoðun en markmiðin um orkuskiptin eru afskaplega mikilvæg til að við getum náð loftslagsmark- miðunum. Við þurfum að draga úr losun koldíoxíðs um 1,3 milljónir tonna fyrir 2030. Við gerum það ekki án þess að fara í orkuskipti í vega- samgöngum, ekki aðeins í hefð- bundnum fólksbílum heldur í öðrum bílum líka.“ Skortir fyrirsjáanleika – Verður kvótinn fyrir niðurfell- ingu gjalda á rafbíla þá hækkaður eða sérðu fyrir þér aðrar leiðir? „Það er eitt af því sem þarf að skoða. Ég held að það sé líka skyn- samlegt að heyra sjónarmið þeirra sem eru á markaði. Ég held að það sé mikilvægt að þeir komi fram með sín sjónarmið. Markmiðið er skýrt. Við ætlum í orkuskipti og erum að fara yfir í rafbíla. Það hefur verið vitað að það vantar fyrirsjáanleika í þetta fyrirkomulag. Nú þarf að bæta úr því. Útfærslan á því er ekki aðal- atriðið heldur að niðurstaðan verði sú sem menn vilja sjá.“ – Nú segir í aðgerðaáætlun stjórn- valda í loftslagsmálum að stefnt sé að því að 30-50% bílaleigubíla verði orðin vistvæn árið 2030. Kemur til greina að gjaldtakan miðist meira við notkunina en verið hefur? Tekjustofninn hefur hrunið „Það er ekkert útilokað í þeim efn- um. Þetta er hluti af stærri mynd. Komið hafa fram allra handa hug- myndir um gjaldtöku vegna þess að gjaldstofninn sem hefur borið uppi viðhald á vegum er hruninn, og raun- ar svolítið síðan það gerðist, og svo er spurning hvaða útfærsla er best. Það hefur verið nefnt að miða gjald- tökuna við akstur. Það hefur marga kosti en er ekki án galla. Sömuleiðis skiptir máli að allir tekjuhópar geti nýtt sér þennan stuðning og að það sé góður eftir- markaður [fyrir notaða bíla], því það má ekki aðeins vera valkostur þeirra sem hafa meira milli handanna [að geta eignast rafbíl].“ – Í aðgerðaáætluninni er einnig kveðið á um hópferðabifreiðir, sendi- bifreiðir og flutningabifreiðir. Stend- ur til að styðja við orkuskipti við kaup á slíkum bifreiðum? „Við verðum að liðka fyrir orku- skiptum fyrir stærri bíla. Því fyrr, því betra. Okkur liggur á.“ Samstarf við atvinnulífið – Kæmi til greina að endurskoða að nýskráningar hreinna bensín- og díselbíla verði óheimilar 2030, ef það myndi hægja á sölu rafbíla? „Við ætlum að ná þessum mark- miðum en til að við náum þeim þurfa allir að koma að borðinu. Við þurfum að fara í greiningarvinnu og setja markmið fyrir hvern geira atvinnu- lífsins fyrir sig í samvinnu við at- vinnulífið,“ segir Guðlaugur Þór að lokum. Boðar nýjar ívilnanir vegna rafbíla - Ráðherra segir brýnt að tekjulágir hafi ráð á notuðum rafbílum - Horfir líka til stærri ökutækja Guðlaugur Þór Þórðarson Þriðji þáttur Ertu viss?, spurninga- þáttar mbl.is, fór í loftið í gær- kvöldi. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum og keppnin hörð um vinningana, sem voru ekki af verri endanum. Rikard Thor- stensen hlaut þátttökuverð- laun í þetta skiptið, Samsung Ga- laxy book 2 pro 360-tölvu. Þá varð Berglid Ósk Alfreðsdóttir Ertu viss-meistarinn þessa vikuna, þar sem hún svaraði oftast rétt og var fljót að því. Fékk hún Samsung Ga- laxy Z Flip 4-síma í sinn hlut fyrir glæstan sigur. Gestastjórnandi í gærkvöldi var enginn annar en þjóðargersemin Þórhallur Sigurðsson, betur þekkt- ur sem Laddi. Hann kom þó ekki mikið við sögu þar og var leystur frá störfum snemma í þættinum líkt og lesa má nánar um á mbl.is Morgunblaðið/Hákon Ertu viss? Laddi er allavega viss. Þátttaka fram úr björtustu vonum Ragnar Arnalds, fyrr- verandi ráðherra, er látinn, 84 ára að aldri. Ragnar fæddist í Reykjavík 8. júlí 1938. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Arn- alds, útgefandi og stórkaupmaður, og Guðrún Jónsdóttir Laxdal kaupkona. Ragnar lauk stúd- entsprófi frá MR árið 1958. Hann stundaði nám í bókmenntum og heimspeki við sænska háskóla 1959-1961 og lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Ís- lands 1968. Hann var kennari við Gagnfræðaskólann í Flensborg í Hafnarfirði 1958-1959, Gagnfræða- skóla Vesturbæjar í Reykjavík 1967-1969 og við Gagnfræðaskól- ann við Laugalæk 1969-1970. Hann var settur skólastjóri við barna- og unglinga- skólann í Varmahlíð í Skagafirði 1970- 1972. Ragnar var lands- kjörinn þingmaður 1963-1967 fyrir Al- þýðubandalagið á Norðurlandi vestra og var alþingis- maður Norðurlands vestra 1971-1999 (Alþýðubandalagið, Samfylkingin). Hann var mennta- mála- og samgönguráðherra 1978-1979 og fjármálaráðherra 1980-1983. Þá var hann fyrsti varaforseti Alþingis 1995-1999. Ragnar var formaður Alþýðu- bandalagsins 1968-1977. Hann sat í fjölda nefnda og stjórna, var meðal annars formaður Fé- lags fyrrverandi alþingismanna 2003-2010 og sat í bankaráði Seðlabanka Íslands 1998-2013. Þá var hann formaður Heimssýnar 2002-2009. Ragnar var ritstjóri Frjálsrar þjóðar 1960, Dagfara 1961-1962 og Nýrrar útsýnar 1969. Hann samdi leikrit, þar á meðal Uppreisn á Ísafirði sem Þjóðleikhúsið sýndi 1986 og Sveitasinfóníu sem Leik- félag Reykjavíkur setti upp 1988. Þá sendi hann frá sér skáldsög- urnar Eldhuginn – sagan um Jör- und, 2005, Drottning rís upp frá dauðum, 2010, og Keisara- kokteilinn árið 2018. Hann skrifaði tvær æviminningabækur, Æsku- brek á atómöld og Gandreið á geimöld sem komu út árin 2017 og 2018. Eftrlifandi eiginkona Ragnars er Hallveig Thorlacius brúðuleik- ari. Dætur þeirra eru Guðrún og Helga. Andlát Ragnar Arnalds, fyrrverandi ráðherra Ökumann rafhlaupahjóls ber við himin í haustsvalanum þar sem hann virðir hnígandi sól fyrir sér við aft- anskæru, gamalt og hljómfagurt heiti yfir ljósaskipti sem á sér rætur í skáldamáli. Sighvatur Þórðarson var hirð- skáld Ólafs helga Haraldssonar Nor- egskonungs og eitt helsta skáld Ís- lendinga á 11. öld en margt kvæða hans hefur varðveist. Til dæmis lausavísa um rimmu konungs við Finna sem voru rammgöldróttir á 11. öld og mögnuðu upp gjörningaveður við Bálagarðssíðu sem konungur og menn hans sluppu naumlega undan. Orðið aftanskæra kemur hins veg- ar fyrir í einni af Austurfararvísum Sighvats, listilega ortum drótt- kvæðum: Jór rinnr aptanskæru allsvangr götur langar, völl kná hófr, til hallar, höfum lítinn dag slíta; nú es þats blakkr of bekki berr mik Dönum ferri, fákr laust drengs í díki dægr mætask nú fæti. Knapi raf- fáks við aft- anskæru Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.