Morgunblaðið - 16.09.2022, Side 15

Morgunblaðið - 16.09.2022, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2022 Sól Í bláum skugga sungu Stuðmenn fyrir áratugum og hér er engu líkara en skugginn sá sé kominn upp á vegg við Brynjólfsgötuna í logandi geislum septembersólar er dagsljós þverr að hausti. Eggert Hér er sönn saga. Ég kom einu sinni í niðurnítt hús, sem virt- ist hvorki halda vatni né vindum. Inni mætti ég eigandanum sem var upptekinn við „endurbætur“ með lít- inn sparslspaða að vopni. Þetta rifjaðist upp þegar ég fékk senda auglýsingu um „Lagadaginn“ 23. sept- ember nk., „stærsta viðburð lög- fræðingasamfélagsins 2022“. Sam- kvæmt útgefinni dagskrá stendur ekki til að ræða þar um mál mál- anna, þ.e. augljósa hnignun rétt- arríkisins í kórónuveirufárinu. Með þögninni kallar „lögfræðinga- samfélagið“ yfir sig áfellisdóm og tortryggni, líkt og sá sem ber í bresti niðurníddrar byggingar með því að sparsla í sprungurnar. Viðfangsefnið Í útvarpsviðtali 12. september sl. sagði forstjóri Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins að „hræðsluáróðri“ hefði verið beitt til að magna upp ótta við kórónuveiruna (Covid-19) „til að ná til fólks“ og að það hefði „gengið ákaflega vel“. Þessi ummæli staðfesta að yfirvöld hér á landi hafa beitt stjórnarfarslega ólögmætum aðferðum til að stýra hegðun borg- aranna; með öðrum orðum inn- gripum og athöfnum sem hvorki eiga sér viðhlítandi lagastoð né byggjast á hlutlægum og málefna- legum sjónarmiðum auk þess að falla á margþættum prófum meðal- hófsreglu sem einnig hefur talist til mikilvægustu for- sendna mannréttinda- verndar. Grundvall- arreglur stjórnskipunarinnar og undirstöður lýðræðis og mannréttinda eins og lögmætisregla, hlut- lægnis- og réttmæt- isregla, sem og með- alhófsreglur virðast hafa verið mölbrotnar á altari faraldursfræði og rörsýni sem hvorki á skylt við lýðræði né lögmætisforsendur. Hvert sem litið er má sjá hvernig stjórnvöld, með dyggri aðstoð meginstraumsfjöl- miðla, hafa beitt áróðri og ritskoðun. Skipulega hefur verið alið á ótta, vís- indaleg rökræða bæld niður, pólitísk rökræða vængstýfð og heilbrigðar efasemdir úthrópaðar. Ríki sem hingað til hafa kennt sig við lýðræði og frjálslyndi hafa beitt lögreglu- valdi til að berja niður lögmæt mót- mæli. Í reynd má segja að frá árinu 2020 hafi átt sér stað raunverulegt lýðræðishrun á Vesturlöndum, sem ekki sér enn fyrir endann á. Fjöl- miðlar hafa útvarpað áróðri, ýkt hættuna af veirunni og kæft niður umfjöllun um sprautuskaða, í þeim tilgangi að afla stuðnings við sótt- varnaaðgerðir. Aðgerðir þessar grófu undan lýðræðislegu stjórnar- fari með því að koma á fámennis- stjórn þar sem hlýðni við valdhafa yfirtrompar sjálfræði einstaklings- ins. Samfélagsmiðlum hefur verið beitt gegn málfrelsinu með rit- skoðun og hugtakið „falsfréttir“ not- að um allt sem ekki samræmist við- urkenndum kennisetningum yfirvalda. Lýðræðinu hefur verið kippt úr sambandi með vísan til ýkts hættuástands. Þingræðið var gert óvirkt með vísan til sóttvarna. Borg- araleg réttindi og stjórnarskrár- varið frelsi hafa verið vanvirt í stórum stíl. Ráðherrar hafa afhent allt of mikið vald til sérfræðinga á þröngu sviði. Dómstólar hafa ekki sinnt stjórnarskrármæltu aðhalds- hlutverki og endurskoðunarvaldi með viðunandi hætti. Alþingi hefur í reynd verið gert áhrifalaust og hendur þess bundnar á sviðum sem verulegu máli skipta. Stjórnar- og eftirlitsstofnanir ríkisins, sem ætlað er að verja almannahagsmuni, hafa snúist gegn almenningi og þeim gildum sem stjórnskipunin er grundvölluð á. Fjölmiðlar hafa í auknum mæli orðið háðir ríkisvald- inu um afkomu sína og gerst gagn- rýnislausar málpípur stjórnvalda. Lyfjaiðnaðurinn hefur fengið að láta greipar sópa um almannafé í boði yf- irvalda. Læknar og heilbrigðisyf- irvöld hafa brugðist hlutverki sínu með því að einblína á sprautur, grímur og innilokun heilbrigðs, ein- kennalauss fólks í stað þess að mæla með sólarljósi, D-vítamíni, hollu mataræði og fyrirbyggjandi snemm- meðferðum. Allt hefur þetta gerst án þess að nokkur gagnrýni hafi heyrst frá háskólamönnum og án nokkurrar sjáanlegrar viðleitni stjórnvalda til að framkvæma við- unandi kostnaðar- og ábatagrein- ingu. Aðgerðir yfirvalda hafa verið réttlættar með vísan til þess að við ættum að „fylgja vísindunum“. Með því var vísindalegri sannleiksleit ranglega umbreytt í einhvers konar trúarsetningu. Gegn allri skynsemi var reynt að stjórna öllu á grundvelli einnar þröngrar greinar lækn- isfræðinnar, en láta allt annað lönd og leið. Ókjörnum embætt- ismönnum, sem virðast meta eigin starfsframa meir en skyldur sínar við stjórnarskrána, hefur verið falið að grípa um valdataumana og þann- ig svipta kjörna fulltrúa völdum í krafti „sérfræðiþekkingar“. Á bak við embættisvaldið og sérfræð- ingana standa skuggastjórnendur sem í krafti auðvalds og valdaásælni krefjast undirgefni og samræmdra aðgerða á alþjóðlegan og fordæma- lausan mælikvarða. Bæði austan hafs og vestan eru sjáanleg dauða- mörk á lýðræðinu. Óheillavænleg skautun (pólarísering) hefur orðið á stjórnmálasviðinu, þar sem vinstri- og hægrimenn skiptast á að væna hver annan um öfgar (fasisma / kommúnisma). Stöndum upprétt Ég skora á Íslendinga að varpa af sér ógn alræðis og taka ábyrgð á sinni eigin framtíð með því að verja þau gildi sem best hafa reynst. Það gerum við með því að hafna ótta- stjórnun, efast um kennivald, neita að fylgja útvöldum vísindamönnum í blindni, leggja sjálfstætt mat á tölur, leita upplýsinga sem víðast, láta ekki mata okkur hugsunarlaust, kalla valdhafa til ábyrgðar, krefjast þess að skattfé sé nýtt til að efla innviði og grunnstoðir samfélagsins og síð- ast en ekki síst standa vörð um mál- frelsið og þar með kjarna alls frelsis. Auk þess að leggja megináherslu á að standa vörð um lýðræði og mann- réttindi með því að virða grundvall- arreglur um lögmæti allra opinberra inngripa, málefnaleg sjónarmið sem og meðalhóf í hvívetna. Lokaorð Vísindin miða að sannleiksleit. Því markmiði verður aldrei náð með rit- skoðun, persónuníði eða með því að eyða út sjónarmiðum sem ganga gegn því sem almennt er viðurkennt hverju sinni. Stjórnmálin og vísindin verða að tala inn í samtíma sinn, þau mega aldrei frjósa föst í stífri hug- myndafræði eða óhagganlegum kreddum. Ef við vanvirðum þessi lögmál göngum við gegn öllu því sem reynsla fyrri kynslóða ætti að hafa kennt okkur. Okkur leyfist ekki að taka slíka áhættu. Framtíð barnanna okkar er í húfi. Samruni ríkisvalds og stórfyrir- tækja, sem nú þegar hefur sogað milljarða úr ríkissjóði, hefur vakið upp gráðugan óvætt og kallað stór- kostlegan háska yfir lög okkar og rétt. Ritskoðun, áróður og valdstýr- ing hefur náð því stigi að lýðræð- islegt stjórnarfar og borgaralegt frelsi er í stórhættu. Til kollega minna í „lögfræðingasamfélaginu“ vil ég segja þetta: Það er betra að sjá sannleikann þótt hann sé svart- ur, en að lifa í blekkingu og þegja. Arnar Þór Jónsson »Með þögninni kallar „lögfræðinga- samfélagið“ yfir sig áfellisdóm og tor- tryggni, líkt og sá sem ber í bresti niðurníddrar byggingar. Arnar Þór Jónsson Höfundur er sjálfstætt starfandi lögmaður og lýðræðissinni. Réttarríkið riðar á fótunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.