Morgunblaðið - 16.09.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2022
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
K 7 Premium
Smart Control
Háþrýstidæla
„VIÐ ERUM AÐ ÞRÓA SMÁFORRIT FYRIR
ÞÁ SEM ERU BÚNIR AÐ GEFA UPP ALLA
VON.“
„ERTU HEYRNARLAUS, MAÐUR? ÉG SAGÐI
„SENDU MÉR KAÐALSNÚRU“.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... fjölskyldan okkar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
O, HVAÐ MIG
LANGAÐI AÐ
VERA EINN AF
MONTHÖNUNUM
SVEINN HJÁLPAÐI TIL MEÐ
MATINN Í KVÖLD!
HVERNIG GÁTU ÞEIR
HLAUPIÐ Í ÞESSUM
HÆNSNABÚNINGUM?
ÞAÐ HRYGGIR MIG AÐ SEGJA
ÞAÐ EN KJÖTIÐ ER EINSOG
GAMALT SKÓLEÐUR!
ÉG VAR HLAUPA-
GIKKUR Í GAGGÓ
ÉG REYNDI AÐ KOMAST
Í AÐALHLAUPAHÓPINN
gram í nafni Heilshugar (@heilshug-
ar_) þar sem ég deili alls kyns starfs-
tengdum fróðleik, s.s. um áföll,
skaðaminnkun eða annarri sálfélags-
legri fræðslu.“
Lilja var valin í hraðal á vegum HÍ
og American Women Entrepreneurs
nú á vormánuðum. Hún gegndi starfi
formanns Snarrótarinnar – samtaka
um skaðaminnkun og mannréttindi
2018-2021. Hún var virk í starfi Pí-
rata um tíma, sat sem varaþingmað-
ur 2015-2016 og sat í trúnaðarráði
Pírata 2018-2019. Lilja var virkur fé-
lagi í Dýrahjálp Íslands um tíma.
„Ég sá þar ásamt öðrum um að halda
utan um fósturheimili samtakanna.
Ég sá um Facebook-síðu samtak-
anna og tók að mér fósturdýr.
Mín helsta ástríða er starfið mitt;
að finna leiðir til að hjálpa fólki út úr
vanlíðan og vanvirkni og hef ég því
bætt við mig alls kyns verkfærum í
þeim tilgangi, s.s. EMDR, dáleiðslu,
skaðaminnkandi meðferð og nú síð-
ast jógakennararéttindum vorið
2021.
Jafnræði og frelsi eru sterk gildi
hjá mér. Mér þykir mikilvægt að
komið sé fram við fólk af samkennd
og virðingu, óháð stétt og stöðu, og
að fólk hafi þau grundvallarmann-
réttindi að ráða sér sjálft á meðan
það gengur ekki á frelsi annarra.
Gildin og ástríðuna sameinaði ég í
Heilshugar með áfallamiðaðri og
skaðaminnkandi nálgun.
Áhugamálin eru hreyfing, þá helst
lyftingar og jóga, að sækja mér fróð-
leik um starfið mitt. Ég ber mikla ást
til dýra, og þá sérstaklega katta, og
set það ofarlega á forgangslistann að
eyða tíma með og sinna fólkinu
mínu.“
Fjölskylda
Bræður Lilju eru Borgar Þor-
steinsson, f. 16.10. 1975, forritari;
Úlfar Þorsteinsson, 29.1. 1978, tón-
listarmaður og atvinnuninja, og Odd-
ur Freyr Þorsteinsson, f. 14.7. 1987,
kynningar- og fjölmiðlafulltrúi
Rauða krossins.
Foreldrar Lilju eru hjónin Arndís
Valgarðsdóttir, f. 21.12. 1957, sál-
fræðingur, og Þorsteinn Úlfar
Björnsson, 1.2. 1951, rithöfundur,
búsett í Reykjavík.
Lilja Sif
Þorsteinsdóttir
Jóhannes Björnsson
kaupmaður á Sauðárkróki
Ólína Björg Benediktsdóttir
verkakona á Sauðárkróki
Björn Jóhannesson
sjómaður í Reykjavík
Guðbjörg Þorsteinsdóttir
talsímakona í Reykjavík
Þorsteinn Úlfar Björnsson
rithöfundur, búsettur
í Reykjavík
Þorsteinn Einarsson
ljósmyndari og bóndi á Reykjum
Guðrún Elínbjörg Jónsdóttir
húsfreyja á Reykjum í Hrútafirði
Ásgeir Þorvaldsson
múrarameistari á Blönduósi
HólmfríðurZóphoníasdóttir
húsfreyja á Blönduósi
Valgarð Ásgeirsson
múrarameistari á Blönduósi
Anna Árnadóttir
verslunarkona á Blönduósi
Árni Ásgrímur Guðmundsson
bóndi í Miðgili
Vilborg Guðmundsdóttir
húsfreyja í Miðgili í Langadal
Ætt Lilju Sifjar Þorsteinsdóttur
Arndís Valgarðsdóttir
sálfræðingur, búsett í Reykjavík
Einar K. Guðfinnsson sendi mér
góðan póst: „Þoka setti svip
sinn á og tafði fyrir gangnamönn-
um norður á Skaga (og svo sem víð-
ar). Svo létti til og Gunnar Rögn-
valdsson frá Hrauni á Skaga orti“:
Hann bauð að lokum birtu og yl
og blés svo þoku af vegi.
Er gerði öll sín gangnaskil
Guð á mánudegi.
Á Boðnarmiði yrkir Eyjólfur Ó.
Eyjólfsson:
Það er gaman að heyra þau hrína
hlæjandi sagði hún Bína
ríka frá Bæ
sem róaðist æ
við að rassskella krakkana sína.
Magnús Halldórsson heyrði í
morgunútvarpinu nokkur heillaráð
frá lækni:
Ýmsu þarf að gefa gætur
og gæti verið einna helst.
Borða, sofa, fara’á fætur,
sem fremur áríðandi telst.
Erlingur Sigtryggsson kvað: ·
Nú er mér um stefið stirt,
en stílvopn ritar þetta:
Á Akureyri er alltaf kyrrt
og ekkert þaðan að frétta.
Jón Jens Kristjánsson um „nafn-
breytingu á Samfylkingunni“:
Frekar en hrörna og fara á safn
fundin er enn ein sjónhverfing
að núna sé betra að breyta um nafn
og bjarga sjöunda manni á þing.
Ágústa Ósk Jónsdóttir bætti við:
Fremur en að fara á safn
fylking áfram ratar,
eiga gott og gamalt nafn,
geymt sér hafa Kratar.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
um „raunir skálds“:
Í fyrstu línu létt ég andann dreg,
en lína önnur virkar oftast treg,
í þriðju línu þráðinn missi ég
og þeirri fjórðu gæti sleppt alveg.
Hér fer Hallmundur Kristinsson
„fljótt yfir sögu“:
Við fundumst á förnum vegi;
í fyrsta sinn kyssti ég þig.
Á sólríkum sumardegi
sagðist þú elska mig.
Síðan vorum við saman
í sextíu og níu ár.
Það okkur þótti gaman.
Þó féllu stundum tár.
Jón á Bægisá orti:
Margur fengi mettan kvið
má því nærri geta,
yrði fólkið vanið við
vind og snjó að éta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gangnaskil og heillaráð
frá lækni