Morgunblaðið - 28.10.2022, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.10.2022, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022 Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Calia Pier Ítalskt, gegnlitað nautsleður Stakir sófar: 3ja sæta sófi (226 cm) 339.000 kr. 2,5 sæta sófi (206 cm) 319.000 kr. 2ja sæta sófi (186 cm) 299.000 kr. Tungusófi með rafmagni í sæti 650.000 kr. Stjórnvöld í Íran reyndu í gær að tengja hryðjuverk í borginni Shiraz á miðvikudaginn, sem hryðjuverka- samtökin Ríki íslams sögðust bera ábyrgð á, við mótmælin sem skekið hafa landið undanfarnar vikur. 15 manns létust við helgidóm sjía í Shi- raz á miðvikudaginn þegar árásar- maður hóf skothríð á mannfjöldann þar. Ebrahim Raisi, forseti Írans, hét því að árásinni yrði svarað af fullri hörku og bætti við að mótmælin gerðu óvinum ríkisins auðveldara fyrir að fremja slík ódæði. Ali Khamenei erkiklerkur sagði að refsa þyrfti þeim sem bæru ábyrgð á ódæðinu og kallaði eftir samstilltu átaki við að draga þá til ábyrgðar. Mótmælin gegn ofbeldi írönsku siðgæðislögreglunnar héldu áfram í gær og skutu öryggissveitir að minnsta kosti fjóra til bana í gær, en þá var þess minnst að 40 dagar væru liðnir frá því að hin 16 ára gamla Nika Shahkarami var myrt af ör- yggissveitum. Hún var eitt fyrsta fórnarlamb óeirðanna. AFP/UGC Mótmæli Þessi stúlka er nú ein af táknmyndum mótmælanna í Íran. Reyna að tengja ódæðið við mótmælin - Minnst fjórir skotnir til bana í gær Auðkýfingurinn Elon Musk lýsti því yfir í gær að takmark sitt með yfirvofandi kaupum á sam- félagsmiðlinum Twitter væri að stuðla að „heil- brigðri“ rök- ræðu hugmynda og berjast gegn tilhneigingu sam- félagsmiðla til þess að búa til bergmálshella fyrir notendur sína. Musk hefur frest til dagsins í dag til þess að ljúka kaupum sín- um, en kauptilboð hans hljóðaði upp á 44 milljarða bandaríkjadala, eða sem nemur tæpum 6.500 millj- örðum íslenskra króna. Musk sagði í yfirlýsingu sinni að þrátt fyrir að hann vildi stuðla að meiri umræðu á miðlinum þýddi það ekki að hann vildi breyta Twitter í stað þar sem hvað sem er mætti flakka án af- leiðinga. BANDARÍKIN Segist vilja „heil- brigða“ rökræðu Elon Musk Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Vladimír Pútín Rússlandsforseti sakaði í gær Vesturlönd um að hafa stigmagnað átökin í Úkraínu. Sagði hann að Rússar væru ein- ungis að verja „tilverurétt sinn“ gagnvart tilraunum „elítunnar“ á Vesturlöndum til þess að leggja Rússland í auðn. Ummæli Pútíns féllu í árlegu ávarpi hans fyrir rússnesku hug- veituna Valdai Club. „Við erum á sögulegum krossgötum,“ sagði Pútín. „Framundan er líklega hættulegasti, óvissasti en jafn- framt mikilvægasti áratugurinn frá lokum síðari heimsstyrjaldar.“ Sagði Pútín að byltingarandi svifi nú yfir heiminum, þar sem verið væri að brjótast gegn þeirri skipan heimsmála sem ríkt hefði frá falli Sovétríkjanna. Pútín sagði að sú skipan væri hönnuð af vest- urveldunum til þess að þau þyrftu ekki sjálf að fylgja eigin reglum. Sagði Pútín að Úkraínustríðið væri einungis hluti af þeim umbrotum. „Hið sögulega tímabil þar sem Vesturlönd eru með öll yfirráð í heimsmálum er að líða undir lok. Hinn einpóla heimur er að verða hluti fortíðarinnar,“ sagði Pútín, sem sakaði einnig vesturveldin um að vilja „þurrka“ Rússland út af „hinu pólitíska korti“. Þjóni engum tilgangi Pútín virtist vilja slá á áhyggjur um að Rússar myndu beita kjarn- orkuvopnum í Úkraínu og sagði að það væri enginn tilgangur, hvorki hernaðarlegur né pólitískur með kjarnorkuárás á Úkraínu. Hann endurtók hins vegar ásakanir Rússa um að Úkraínumenn væru að búa sig undir notkun geisla- virkrar sprengju (e. dirty bomb) og að sá undirbúningur væri nú á lokastigi. Sagði Pútín hafa skipað Sergei Shoígú, varnarmálaráðherra sín- um, að hafa samband við alla koll- ega sína til þess að vara við hætt- unni. Viðbrögð vesturveldanna hafa hins vegar verið þau að draga ásakanir Rússa mjög í efa, þar sem þeir hafa ekki lagt fram nein sönn- unargögn máli sínu til stuðnings. Stjórnvöld í Úkraínu hafa sagt að viðvaranir Rússa séu frekar vís- bending um að þeir hafi sjálfir slík lymskubrögð í hyggju. Pútín kallaði hins vegar eftir því að alþjóðakjarnorkumálastofnunin IAEA sendi teymi til Úkraínu svo fljótt sem auðið væri til þess að rannsaka ásakanirnar fyrstu hendi. Munu svara árás á gervihnetti Bandaríkjastjórn hét því í gær að því yrði svarað með „viðeigandi hætti“ ef Rússar ákvæðu að skjóta niður bandaríska gervihnetti, en Konstantín Vorontsov, embættis- maður í rússneska utanríkisráðu- neytinu, gaf til kynna í gærmorgun að slíkir gervihnettir, jafnvel í eigu einkafyrirtækja, gætu verið lög- mæt skotmörk í Úkraínustríðinu. Vorontsov tók ekki fram hvaða gervihnetti hann væri að tala um, en Starlink-gervihnettir á vegum SpaceX-fyrirtækisins hafa reynst Úkraínumönnum ómetanlegt sam- skiptatól í stríðinu gegn Rússum. Segir hættulegan áratug fram undan - Pútín segir vesturveldin vilja þurrka Rússland af hinu „pólitíska landakorti“ - Segir enga ástæðu fyrir Rússa að gera kjarnorkuárás - Vill að IAEA rannsaki ásakanir um geislavirka sprengju AFP/Sergei Karpukhin Umbrotatímar Pútín sést hér flytja ávarp sitt í Valdai-klúbbinum í gær. Lögreglan í Haag handtók í gær þrjá menn sem reyndu að eyði- leggja meistaraverk Johannesar Vermeer, „Stúlkuna með perlu- eyrnalokkinn,“ en þeir sögðust vilja vekja athygli á loftslagsmálum með athæfi sínu. Einn skemmdarvarg- urinn límdi höfuð sitt við málverkið og hinn hönd sína við vegginn við hlið þess í Mauritshuis-safninu. Voru báðir handteknir ásamt þeim þriðja, sem kastaði einhverjum óþekktum vökva að verkinu. Mál- verkið er á bak við gler og skadd- aðist því ekki. „List er varnarlaus og við for- dæmum harðlega allar tilraunir til að skaða hana, sama hver málstað- urinn er,“ sagði safnið í yfirlýsingu. Þetta er í þriðja sinn í þessum mán- uði sem gerð er atlaga að listaverki í nafni loftslagsmála. Aftur ráðist á listaverk í nafni umhverfisverndar Límdi sig við stúlkuna með eyrnalokkinn AFP/Phil Nijhuis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.