Morgunblaðið - 28.10.2022, Blaðsíða 32
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
ÚRVALAF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
VANDAÐAR
SÆNGUROG
KODDAR Í
ÚRVALI
STILLANLEG
HJÓNARÚM
HÖFUM ÞAÐ GOTT HEIMA
GERIÐ GÆÐA- OG
VERÐSAMANBURÐ
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
Tónlistarmennirnir Jóhannes Patreksson og Kristinn
Óli Haraldsson, betur þekktir sem tvíeykið JóiPé og
Króli, halda tónleika með Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri á morgun, 29.
október. Þórður Magnússon, tónskáld og hljómsveit-
arstjóri, hefur útsett valin lög eftir þá félaga og verða
tónleikarnir kveðjutónleikar vinanna í bili.
JóiPé og Króli halda tónleika með
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 301. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
KA leikur sína fyrstu leiki í 17 ár í Evrópukeppni í hand-
knattleik karla í dag og á morgun. KA kemur inn í 2.
umferð Evrópubikarsins og dróst gegn austurríska lið-
inu Aon Fivers. KA-liðið hélt út til Austurríkis í gegnum
Osló á miðvikudag.
Jónatan Magnússon, þjálfari KA, segir aldrei neitt
annað hafa komið til greina en að taka þátt í Evrópu-
keppni þótt það kosti aukið leikjaálag og mikla vinnu
leikmanna og þeirra sem standa að liðinu, þar sem
reynslan verði leikmönnum dýrmæt. »26
KA leikur sína fyrstu
Evrópuleiki í 17 ár
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Undanfarin rúm þrjú ár hefur fólk
getað farið í gufubað í sérstaklega
útbúnu hjólhýsi á völdum stöðum við
sjávarsíðuna, fyrst og fremst á höf-
uðborgarsvæðinu en einnig úti á
landsbyggðinni. Fyrir um mánuði
var nýtt og stærra hjólhýsi tekið í
notkun og hefur verið boðið upp á
svokallaða gufugusu í því í Gufunesi
að undanförnu. „Þetta hefur gengið
prýðilega og nýja vagninum hefur
verið vel tekið,“ segir Hafdís Hrund
Solveigar Gísla, sem á og rekur
fyrirtækið Rjúkandi fargufu
(fargufa.is og Rjúkandi fargufa á
Facebook).
Hafdís kynnti sér baðmenningu í
Kaupmannahöfn og féll fyrir þessari
gufubaðsmenningu. Hún hafði áður
unnið hjá ÍTR á Ylströndinni í Naut-
hólsvík og vildi tengjast sjónum með
einhverjum hætti, enda stundað sjó-
böð reglulega um árabil. Hún byrj-
aði ein en nú hafa Olga Hörn Fenger
og Vala Baldursdóttir bæst í gusu-
hópinn svokallaða.
Hafdís er þroskaþjálfi að mennt
og kenndi við Waldorfskólann í
Lækjarbotnum, þegar hún byrjaði
með fargufuna. „Í fyrstu var þetta
áhugamál, sem ég ætlaði ekki endi-
lega að vinna við heldur bara kynna
öðrum, en eftir því sem það vatt upp
á sig minnkaði ég við mig kennsluna,
hætti henni um áramótin og hef ein-
beitt mér að fargufunni allt þetta
ár.“
Víða um land
Vagninn hefur einkum verið í
Gufunesi, við Skarfaklett, hjá grá-
sleppuskúrunum neðan við Ægisíðu,
úti við Gróttu, á Álftanesi, við Kópa-
vogshöfn og við Hafravatn. Hafdís
hefur líka boðið upp á fargufu við
Laugarvatn, á Snæfellsnesi, Dalvík
og víðar. „Ég vel staðina eftir því
hvernig lífi mínu er háttað og reyni
að kynna staðina tvær til fjórar vik-
ur fram í tímann á heimasíðunni og á
Facebook,“ segir hún, en þar bóka
gestir sig jafnframt í tíma. Í gamla
vagninum geta verið 10 manns í einu
en allt upp í 20 í þeim nýja. Hver
tími tekur 60 mínútur sem skiptast í
þrjár jafnar lotur í gufunni, þar sem
ilmolíur, handklæðaviftur og tónlist
auka á vellíðanina, með kælingu á
milli, hvort sem er í sjónum eða bara
fyrir utan. „Ég kalla þetta gufugusu
að danskri fyrirmynd,“ segir Hafdís
og bætir við að stemningin sé alltaf
mjög góð. „Viðbrögðin hafa reyndar
komið mér skemmtilega á óvart og
vinsældirnar verið framar öllum
vonum.“
Fargufan hefur mælst vel fyrir og
Hafdís bendir á að í gufubaði og kæl-
ingu þess á milli felist góð líkams-
rækt. „Það er ákveðin þolraun að
sitja í hitanum í 12 til 15 mínútur í
einu en þegar fólk kemst upp á lag
með þetta kemst það að því að í
þessu felast ótrúlega miklir töfrar.
Maður sefur eins og barn á eftir og
þegar fólk kemur í fyrsta skipti verð
ég að vara það við því þetta getur
verið ávanabindandi!“
Ávanabindandi og
töfrandi gufubað
- Fargufa í hjólhýsi og kæling fyrir utan eða í sjónum
Morgunblaðið/Eggert
Í fargufu Hafdís Hrund til vinstri sér um að allir njóti stundarinnar.
Morgunblaðið/Eggert
Kæling Þátttakendur fara gjarnan í sjóinn eftir gott gufubað.