Morgunblaðið - 28.10.2022, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022
Meðlæti Brauðið má ekki vanta á helstu veitingastöðum miðbæjarins.
Eggert
Það er löngu tíma-
bært að spyrja al-
menning um það hvort
hefja eigi samtal við
Evrópusambandið að
nýju. Tillaga þess efn-
is var rædd á fyrstu
dögum þingsins. Í
þeim umræðum virt-
ust stjórnarliðar þó
ekki átta sig á eðli til-
lögunnar. Málflutn-
ingur þeirra einkennd-
ist af óljósum vangaveltum um
aðildina sjálfa. Engin rök gegn því
að vísa málinu til þjóðarinnar voru
hins vegar nefnd.
Höfum aðalatriðin á hreinu
Ekki er rökrétt að fylla í eyð-
urnar með þessum hætti en ákveða
síðan að málið skuli ekki rætt frek-
ar. Málflutningur sem byggist á
eintómum getgátum verður seint
talinn sannfærandi. Það er eðlileg
krafa að umræða um svona stórt
mál grundvallist á rökum og réttum
upplýsingum. Af þessum sökum
viljum við einmitt hefja samtalið og
spyrja þjóðina álits.
Stjórnarliðar héldu því fram að
Ísland gæti ekki samið um skilmála
og skyldur aðildar. Innan sam-
bandsins skiptir öllu máli að ríki
geti starfað saman á jöfnum grund-
velli og til þess þarf að tryggja laga-
legt samræmi. Réttarreglurnar
gilda í grunninn en það er þó samn-
ingsatriði hvernig og hvenær reglur
eru innleiddar. Nægir þar að horfa
til fyrri fordæma. Til dæmis hafa
Danir, Svíar, Finnar og fjölmargir
fleiri samið um sérlausnir og undan-
þágur á þessu sviði.
Breyttar aðstæður
kalla á viðeigandi
viðbrögð
Á dögunum áttu sér
stað þau merkilegu tíð-
indi að fyrrverandi for-
sætisráðherra Noregs,
Kjell Magne Bondevik,
sem lengi hefur beitt
sér gegn ESB-aðild
landsins, kallaði nú eft-
ir því að málið færi aft-
ur á dagskrá. Of margt
hefði breyst frá því að
Norðmenn greiddu síð-
ast atkvæði um aðild, ekki síst væri
heimsmyndin allt önnur. Þar fyrir
utan væri Kína að hasla sér völl á al-
þjóðasviðinu, á meðan Bandaríkin
væru enn klofin innbyrðis.
Hann spurði hvort ekki væri rétt
að Norðmenn endurmætu sína stöðu
gagnvart ESB, rétt eins og Svíar og
Finnar hefðu gert með tilliti til
NATO. Einnig nefndi hann um-
hverfis- og loftslagsmálin, nú mik-
ilvæg sem aldrei fyrr, þar sem Evr-
ópusambandið hefði tekið afgerandi
forystu. Bondevik spurði hvort ekki
væri betra ef Noregur kæmi að
stefnumótuninni sjálfri og tæki
þannig forystu með vinaþjóðum sín-
um.
Loks ítrekaði hann mikilvægi þess
að ræða málið á nýjan leik. Það
þyrfti að gera almennilega og með
heildarmyndina í huga. Réttast væri
að spyrja norsku þjóðina álits með
tvöfaldri atkvæðagreiðslu, fyrst um
það hvort hefja ætti viðræður og svo
aftur um aðildina sjálfa, enda málið
þess eðlis að þjóðarviljinn þyrfti að
vera skýr og milliliðalaus. Þessi
sjónarmið eru eftirtektarverð í ljósi
þess að Norðmenn hafa tvívegis áð-
ur greitt atkvæði gegn ESB-aðild.
Engu að síður er nú talin þörf á að
endurtaka leikinn í ljósi gerbreyttra
aðstæðna.
Þessi sjónarmið komu einnig fram
í grein sem formaður borgarráðs
Óslóarborgar, Raymond Johansen,
skrifaði fyrir um hálfu ári. Sambæri-
leg sjónarmið lágu að baki ákvörðun
Svía og Finna að sækjast eftir aðild
að NATO, enda töldu ríkin nauðsyn-
legt að mæta breyttum aðstæðum
með endurmati á eigin stöðu og
auknu samstarfi við aðrar lýðræð-
isþjóðir. Þetta hefur líka verið tónn-
inn hjá öðrum ríkjum Evrópu og
raunar víðar. Kjarninn í þeirri hugs-
un er sá að lýðræðisríkin séu sterk-
ari saman. Það á ekki síður við um
Ísland.
Spyrjum þjóðina álits
Þegar aðstæður breytast með
þessum hætti er ekki nema eðlilegt
að Ísland endurmeti sína stöðu.
Virkt og öflugt alþjóðasamstarf hef-
ur alla tíð reynst landinu vel, einkum
EES-samstarfið sem við höfum not-
ið góðs af í meira en aldarfjórðung.
Því má spyrja hvort ekki sé tíma-
bært að taka lokaskrefið í Evrópu-
samstarfinu. En þá ákvörðun þarf
þjóðin að taka. Treystum henni til að
tjá hug sinn.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir » Loks ítrekaði
Bondevik mikilvægi
þess að ræða aðild að
ESB á nýjan leik. Það
þyrfti að gera almenni-
lega og með heildar-
myndina í huga.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Höfundur er formaður Viðreisnar.
Ákvörðun sem
þjóðin á að taka
Góð heilsa er á
meðal mikilvægustu
forsendna ham-
ingjuríks lífs. Vel-
ferðar- og heilbrigð-
ismál snúast ekki
eingöngu um að
lækna sjúka og leysa
félagslegan vanda
fólks heldur ekki síð-
ur efla lýðheilsu, for-
varnir og endurhæf-
ingu ungra sem
aldinna. Öll þráum við gott líf og
góða heilsu alla ævi, en ekki ein-
göngu áhyggjulaust ævikvöld.
Við í velferðarnefnd Sjálfstæð-
isflokksins höfum haft góðan tíma
á milli landsfunda til að móta nýja
ályktun fyrir landsfundinn 4.-6.
nóvember og hitt fjölda fólks með
góðar hugmyndir m.a. á málefna-
fundum.
Mótum nýja
velferðar- og heilbrigðisstefnu
Þótt við státum af góðu heil-
brigðiskerfi er róttækra breytinga
þörf til að auka hagkvæmni og
skilvirkni og tryggja jafnframt
sjúklingum og þeim sem höllum
fæti standa aukin lífsgæði. Það
gerum við með því að nýta betur
tækifæri í opinberum rekstri og
einkarekstri. Verkaskipting og
samstarf milli ríkis og sveitarfé-
laga þarf að vera í mun betra
horfi. Sama gildir um samstarf og
sérhæfingu ríkisrekstrar og sjálf-
stætt starfandi lækna og heilbrigð-
isstofnana.
Dapurt er að sjá hvernig stjórn-
völd og menntakerfið hafa brugð-
ist við því að mæta þörfum fyrir
menntað starfsfólk í ýmsum grein-
um og tryggja starfs-
aðstæður og starfs-
kjör svo að fólk
haldist í störfum sín-
um innan heilbrigð-
iskerfisins. Sú heil-
brigðisstefna sem
mótuð var árið 2019
er ekki í anda Sjálf-
stæðisflokksins og
getur alls ekki tekist
á við aukin viðfangs-
efni og álag á heil-
brigðiskerfið. Þessu
viljum við breyta.
Endurskoða þarf lífeyris- og
almannatryggingakerfið
Aðstaða eldra fólks og öryrkja
fer sjaldnast saman og endurskoða
þarf sérstaklega greiðslur ríkisins
til þessara hópa sérstaklega.
Skapa þarf svigrúm til atvinnu-
þátttöku eldra fólks og öryrkja án
verulegrar skerðingar eins og nú
er. Sveigjanleg starfslok eru nauð-
synleg og þjóðfélaginu og ein-
staklingum til hagsbótar að starfa
sem lengst.
Almannatryggingakerfið er sam-
safn búta sem saumaðir hafa verið
saman á undanförnum árum og
áratugum. Þetta opinbera örygg-
iskerfi þarf að gera skiljanlegt og
sanngjarnt og taka tillit til ólíkra
þarfa öryrkja og hins vegar eldra
fólks sem á eftir að fjölga verulega
á næstu árum og áratugum.
Nýta þarf
einkaframtakið betur
Sjúkratryggingar Íslands verða
að rækja hlutverk sitt betur og
sjúklingar og heilbrigðisstarfsfólk
þurfa að hafa um fleiri en einn
kost að velja þegar kemur að
sjúkrahússtarfsemi og almennri
heilbrigðisþjónustu. Dráttur á end-
urskoðun samninga við rekstr-
araðila heilbrigðisþjónustu er
skammarlegur.
Landspítalinn þarf sem þjóð-
arsjúkrahús að geta sinnt sínu
skilgreinda hlutverki á sviði bráða-
þjónustu, lækninga, rannsókna og
háskólakennslu. Til þess þarf að
gera honum kleift að draga úr
annarri almennri sjúkrahúsþjón-
ustu með samstarfi við aðrar heil-
brigðisstofnanir og lækna. Ófært
er að sjúkrahúsið þurfi að vera
langtímavistunarúrræði fyrir aldr-
að fólk. Því þarf að bjóða öfluga
heimaþjónustu og valfrjáls hjúkr-
unarheimili í stað síðbúinnar og
handahófskenndrar „nauðung-
arvistunar.“ Frelsisskerðing aldr-
aðs fólks er í hróplegri andstöðu
við hin mannúðlegu lífsviðhorf sem
grundvallast á frelsis- og mann-
gildishugsjón Sjálfstæðisflokksins.
Eitt ríkisrekið
sjúkrahús er ekki nóg
Þrátt fyrir núverandi fram-
kvæmdir við Landspítala þarf að
horfa á framtíðarþörf til næstu
áratuga og staðarval fyrir nýja
sjúkrahúsbyggingu á höfuðborg-
arsvæðinu.
Það er algjörlega óviðunandi að
eingöngu eitt stórt ríkisrekið
sjúkrahús sé starfandi hér landi.
Það er t.d. augljóst að jákvætt var
fyrir háskólakerfið, nemendur og
kennara, svo og Háskóla Íslands,
að Háskólinn í Reykjavík og áður
Háskólinn á Akureyri urðu til.
Enn og aftur hefur frelsið stuðlað
að fjölbreytni og framförum fyrir
fólk og fyrirtæki.
Áhugavert væri að sjá einhverja
nýsköpun og samstarf aðila í þessu
sambandi eins og uppbyggingu
heilbrigðiskjarna sem tengdist
rekstri hjúkrunarheimilis, íbúða-
kjarna fyrir eldra fólk, sjálfstætt
starfandi heilsugæslustöð og
margs konar heilbrigðisþjónustu.
Keldur eða Keldnaholt gætu verið
áhugaverðir staðir fyrir slíka
starfsemi og mikilvægt að hafa
a.m.k. þá valkosti í huga. Þá þarf
einnig að tryggja góða þjónustu
óháð búsetu og bæta aðgengi íbúa
á landsbyggðinni að sjúkra-
húsþjónustu og annarri heilbrigð-
isþjónustu.
Geðheilsa í forgang
Ekki er hægt að ljúka þessari
grein án þess að nefna geðheil-
brigðismál. Líklega eru þau orðin
mikilvægasta heilbrigðismálið.
Efla þarf forvarnir í geðheilbrigð-
ismálum og snemmtæka íhlutun og
efla fyrsta stigs þjónustu heilsu-
gæslunnar og endurhæfingu á
þessu sviði. Umfjöllun fjölmiðla að
undanförnu um geðheilbrigðismál
og áhersla Geðhjálpar hefur opnað
augu almennings. Huga þarf sér-
staklega að málefnum barna og
unglinga og tryggja að þau hafi
greiðan aðgang að félagsráð-
gjöfum, hjúkrunarfræðingum og
sálfræðingum í grunnskólum.
Endurskoða þarf húsnæðismál
geðsviðs Landspítala og undirbúa
nýja byggingu þar sem staðarval
og allt umhverfi og aðstaða hentar
betur skjólstæðingum, aðstand-
endum þeirra og starfsfólki. Ríkið
er nýlega búið að semja við bygg-
ingarverktaka um að byggja hús
undir Skattinn o.fl. aðila og leigja
slíkt húsnæði til lengri tíma. Ekk-
ert er því til fyrirstöðu að gera
eitthvað svipað með geðsjúkrahús
sem létt getur verulega álag á
bráðaþjónustu og langtímaend-
urhæfingarþjónustu Landspítala.
Spennandi verkefni á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins
Fram undan er landsfundur
flokksins eftir langa Covid-bið.
Þrátt fyrir að hafa verið í rík-
isstjórn með ólíkum flokkum hefur
okkur tekist ágætlega að komast í
gegnum erfitt tímabili og halda
þokkalegum samfélaglegum stöð-
ugleika. Nú þurfum við aftur á
móti að leggja áherslu á grunn-
gildi Sjálfstæðisflokksins; umtals-
verðar breytingar til bóta fyrir
alla landsmenn. Það sést vel á
þeim málum sem velferðarnefnd er
með hvað valfrelsi er mikilvægt.
Einhliða ríkisrekstur, að taka
frelsið af eldra fólki, að nýta ekki
frumkvæði og framkvæmdakraft
einstaklinganna, er meinsemd í
okkar velferðarkerfi. Við viljum öll
betri heilsu og betra líf og til þess
þarf traust og hagkvæmt velferð-
arkerfi. Um það gilda að mörgu
leyti sömu lögmál og sama stefna
og flokkurinn á að hafa í öðrum
málaflokkum. Á þeim erfiðu tímum
sem við sjáum núna í alþjóða-
málum sést best hvað frelsið og
einstaklingsframtak á öllum svið-
um skiptir miklu máli og hve mik-
ilvægt það er að viðhalda því og
efla á sem flestum sviðum.
Þorkell
Sigurlaugsson » Frelsisskerðing aldr-
aðs fólks og heil-
brigðisstefna andúðar á
einkarekstri er ekki í
samræmi við frelsis- og
manngildishugsjón
Sjálfstæðisflokksins.
Þorkell
Sigulaugsson
Höfundur er formaður velferð-
arnefndar Sjálfstæðisflokksins og
varaborgarfulltrúi í Reykjavík.
Við viljum öll valfrelsi og góða heilsu