Morgunblaðið - 28.10.2022, Page 24

Morgunblaðið - 28.10.2022, Page 24
DÆGRADVÖL24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022 Egill Eðvarðsson kvikmyndagerðarmaður og myndlistarmaður – 75 ára Framtíðin… sannarlega ekki til! E gill Eðvarðsson er fæddur 28. október 1947 á Akureyri. „Það var tóm gleði að alast upp á Akureyri, dúfur, drullu- pollar og heimasmíðaðir kassabíl- ar. Ég gekk fyrst í Barnaskóla Akureyrar, sem var um 50 metra í norður frá heimili mínu í Möðru- vallastræti, en strax 12 ára var ég kominn í miðskóladeild Mennta- skólans á Akureyri, sem var 186 metra í suður. Báðir skólar það nálægir, að ég heyrði glatt þegar hringt var inn. Kom sér oft vel.“ Egill var sem sagt í Mennta- skólanum á Akureyri í heil 7 ár og varð stúdent þaðan 1967. „Þar var tóm gleði sem fyrr. Meira þó um Bítla og Stones en að maður tileinkaði sér latínu, frönsku og þýsku. Stærðfræði, eðlis- og efna- fræði skildi ég hins vegar aldrei, og skil ekki enn. Ég spilaði svo öll menntaskólaárin í ólíkum dans- hljómsveitum. Lengst af með góð- um félaga, Hauki Ingibergssyni, en líka með sprelliköllum eins og Arnmundi Backman og Villa Vill.“ Egill hóf síðan myndlistarnám við South Georgia College í Bandaríkj- unum 1967-’68, en fór þegar heim kom í Myndlista- og handíðaskól- ann og útskrifaðist þaðan 1971. „Mér bauðst óvænt starf upptökustjóra hjá RÚV viku eftir útskrift þannig að eftir liðlega 50 ára starf við sjónvarps- og kvikmyndagerð er ég enn ekki farinn í frekara myndlistarnám. Brestur kannski á einn daginn.“ Egill á fjölbreyttan feril að baki. Hann hefur starfað sem kvik- myndagerðarmaður, þáttagerðar- maður í sjónvarpi, hönnuður og myndlistarmaður. Unnið að gerð hundruða sjónvarpsauglýsinga og tónlistarmyndbanda, sett upp óteljandi tónlistarskemmtanir, leikstýrt á sviði, en er auk þess leikstjóri þekktra kvikmynda eins og Húsið (1983) og Agnes (1995) auk fjölda sjónvarps- og heimildarkvikmynda. Egill hlaut heiðursverðlaun Eddunnar 2019 og fálkaorðuna 2021. „Ég er hættur fyrir nokkru sem fastur starfsmaður, en er kallaður til þegar mikið liggur við,“ segir Egill og hlær. „Mér var kennt sem ungum manni að dugnaður væri dyggð. Fellur sjaldnast verk úr hendi þannig að nú mála ég eins og enginn sé morgundagurinn. Það að mála er málið… frekar en hvað málað er. Ég á heimsins minnstu vinnustofu, en hef aldrei verið jafn afkastamikill og nú þessi síðustu ár. Hélt til dæmis mína langstærstu sýningu til þessa í apríl síðastliðnum. Stuttu síðar kom út bókin okkar Kristínar, Fær í flestan sjó, þar sem segir af ferðalagi okkar hringinn í kringum landið og 82 sundstöðum þar sem ofurkonan Kristín reyndi fyrir sér í sjósundi í hvaða veðrum sem voru og á öllum tímum árs. Og svo til að kóróna dugnaðinn þetta árið giftum við Kristín okkur með pompi og prakt síðastliðið haust. Urðum ástfangin „á gamans aldri” og fannst ástæða til að deila fögn- uðinum með nánustu vinum og fjölskyldu. Ekkert dugði minna en 200 manna sammenkomst, veisla á sterum!“ Þegar Egill er spurður hvað sé fram undan svarar hann að bragði: „Allt og ekkert! Því ég hef nefnilega aldrei viðurkennt þessa svokölluðu framtíð. Trúi því að hún sé hreinlega ekki til. Einbeiti mér þess vegna eingöngu að núinu… þar er hins vegar allt að gerast! Í dag sitjum við hjónin til dæmis meðal vina við sólgullna sundlaug á Flórída. Í hendi er Milli trjánna eftir góðan félaga, Gyrði, nýbakaðar rjómaskonsur í bastkörfu á bakkanum og hvítvínið er rjúkandi kalt!“ Fjölskylda Eiginkona Egils er Kristín Jórunn Hjartardóttir, f. 9.8. 1960, ritari forsætisráðherra. Þau eru Stórfjölskyldan 2019 Á myndina vantar tvær tengdadætur, einn tengdason og nýjasta barnabarnið, Ignaciu. Málverk Eitt af nýjustu málverkum Egils, Rolex… og tíminn er okkar. Hjónin Egill og Kristín í brúðkaupi sínu þann 13. ágúst síðastliðinn. Til hamingju með daginn Stjörnuspá Garðar Örn Úlfarsson 60 ÁRA Garðar er Reykvík- ingur og býr í borginni. Hann er fréttastjóri á Fréttablaðinu. Áhugamál Garðars eru fjölskyld- an, ferðalög, fréttir og rokk og ról. FJÖLSKYLDA Eiginkona Garðars er Lena Helgadóttir, f. 1961, arkitekt og leiðsögumaður. Dætur þeirra eru María Silvía, f. 1997, og Helga Lena, f. 1999. For- eldrar Garðars: Silvía Garðars- dóttir, f. 1939, og Úlfar Atlason, f. 1937 d. 2003. 21. mars - 19. apríl A Hrútur Þú átt auðvelt með að leysa þrautir í dag. Stutt ferðalög og samvera með vinum setja svip sinn á líf þitt næstu tvo daga. Eitthvað gamalt sækir á hugann. 20. apríl - 20. maí B Naut Hæfileikar þínir eru margir en þú nýtir þá ekki sem skyldi. Óeining er innan fjölskyldunnar vegna komandi jólafrís. Reynið að miðla málum. 21. maí - 20. júní C Tvíburar Þú finnur þig knúinn/knúna til þess að losa þig undan hversdagslegri rútínu í dag. Samband hangir á blá- þræði. 21. júní - 22. júlí D Krabbi Þú ættir að taka daginn í dag í að klára þau verkefni sem liggja óleyst. Það er þung undiralda í vinnunni í dag. Ekki taka áhyggjurnar með þér heim. 23. júlí - 22. ágúst E Ljón Hvort sem þú ætlar þér það eða ekki þá muntu vekja athygli annarra í dag. Nú er rétti tíminn til þess að byrja að skipuleggja jólin. 23. ágúst - 22. september F Meyja Þér er allt að því ómögulegt að hafa hugann við vinnuna í dag. Þú leggur saman tvo og tvo og útkoman er ekkert gleðiefni. 23. september - 22. október G Vog Freistingin að taka sér frí togar í þig. Það er ekki hægt að þjóna tveimur herrum. 23. október - 21. nóvember H Sporðdreki Þú ert nánast að drukkna í alls kyns verkefnum, en tekst að klára þau með því að þiggja hjálp. 22. nóvember - 21. desember I Bogmaður Flottur stíll felst í fleiru en að kaupa réttu flíkurnar. Með réttu lagi átt þú ekki að eiga í erfiðleikum með að fá þitt fram. 22. desember - 19. janúar J Steingeit Eitthvað fer illa fyrir brjóstið á þér og þú þarft að halda andlitinu. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér hvaða breytingar þú vilt gera. 20. janúar - 18. Febrúar K Vatnsberi Haltu þig við skammtíma- áætlanirnar og láttu hjá líða um sinn að skipuleggja til lengri tíma. Vertu þakklát/ur fyrir fjölskylduna. 19. febrúar - 20. mars L Fiskar Þótt rödd hjartans eigi enginn að hunsa getur verið gott að láta höf- uðið ráða endrum og sinnum. Þú hefur öll tromp á hendi í deilumáli. Hlutavelta Eyrún Erla Árnadóttir og Hekla Malín Ellertsdóttir seldu perlur og afhentu Rauða krossinum við Eyjafjörð afraksturinn, 1.300 krónur. Rauði krossinn þakkar þeim kærlega fyrir framlag sitt í þágu mannúðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.