Morgunblaðið - 28.10.2022, Page 25

Morgunblaðið - 28.10.2022, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022 Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is BR 30/1 GÓLFÞVOTTAV L búsett í Reykjavík. Foreldrar Kristínar voru hjónin Hjörtur Sigurðsson, f. 8.8. 1922, d. 26.6. 1991, og Sigrún Helga Gísladóttir, f. 4.6. 1925, d. 28.9. 2018. Börn Kristínar eru Sigrún Margrét Guð- mundsdóttir, f. 28.12. 1981, doktor í íslenskum bókmenntum, maki: Jóhann Axel Andersen þýðandi, og Gísli Geir Guðmundsson, f. 3.10. 1990, vefhönnuður, maki: Marta Rut Guðmundsdóttir, hárgreiðslu- kona. Faðir Sigrúnar og Gísla er Guðmundur Viðar Friðriksson. Börn Egils eru 1) Finnur Eðvarð, f. 28.2. 1971, fulltrúi í markaðsdeild Krónunnar, maki: Brynja Guð- brandsdóttir, leikskólakennari. Móðir Finns er Hrafnhildur Hrafnsdóttir; 2) Einar, f. 14.6. 1978, kvikmyndagerðarmaður, maki: Eydís Evensen tónlistar- kona; 3) Elli, f. 22.4. 1981, mynd- listarmaður, maki: María Birta Bjarnadóttir, leikkona; 4) Eðvarð, f. 9.3. 1989, tónlistarmaður, maki: Unnur Jónsdóttir tónlistarkona. Móðir Einars, Ella og Eðvarðs er Guðrún Valgerður Bjarnadóttir; 5) Andri Snær, f. 17.11. 2000, nemi í hugbúnaðarverkfræði við HR, og 6) Berglind, f. 17.11. 2000, nemi í fjármálaverkfræði við HR, maki: Böðvar Tandri Reynisson, einka- þjálfari. Móðir Andra og Berglind- ar er Sigríður Guðlaugsdóttir. Barnabörn Egils og Kristínar eru tíu: Lukka Miriam, Eðvarð Egill, Brynja Von, Embla Nótt, Matthías Dagur, Soffía Lísbet, Eyja, Ignacia, Natalía Kristín og Frosti Leó. Systkini Egils: Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir, Anna Dóra Harðardóttir (látin), Kristín Huld Harðardóttir, Margrét Jónsdóttir og Jón Guðlaugsson. Foreldrar Egils voru hjónin Eð- varð Sigurgeirsson, f. 22.10. 1907, d. 12.8. 1999, ljósmyndari og kvik- myndagerðarmaður á Akureyri, og Marta Jónsdóttir, f. 20.1. 1920, d. 31.7. 2009, húsmóðir á Akureyri. Egill Eðvarðsson Júlíana Kristjánsdóttir húsfreyja í Krossanesi Jón Halldórsson bóndi í Krossanesi í Kræklingahlíð, Eyjafirði Anna Salóme Jónsdóttir húsmóðir á Akureyri Jón Stefánsson Vopni verkamaður á Akureyri Marta Jónsdóttir húsmóðir á Akureyri Sigurlaug Jónsdóttir vinnukona á Þorvaldsstöðum og víðar í Vopnafirði Stefán Jónasson bóndi á Þorvaldsstöðum í Vopnafirði Margrét Sigurðardóttir húsfreyja á Litluvöllum Tómas Friðfinnsson bóndi á Litluvöllum í Bárðardal Júlíana Friðrika Tómasdóttir húsmóðir á Stóruvöllum, síðar á Akureyri Sigurgeir Jónsson organisti og tónlistarfrömuður á Stóruvöllum í Bárðardal, síðar á Akureyri Aðalbjörg Pálsdóttir húsfreyja á Stóruvöllum Jón Benediktsson bóndi á Stóruvöllum Ætt Egils Eðvarðssonar Eðvarð Sigurgeirsson ljósmyndari og kvikmynda- gerðarmaður á Akureyri Vísnahorn Partístand og blessuð skepnan skildi Partístand,“ GuðmundurArn- finnsson yrkir á Boðnarmiði: Það var glaumur og gleði hjá Hildu og gestkvæmt á síðkvöldi mildu, af örlæti veitt og elskað svo heitt, að það fengu það fleiri en vildu. Óli Sigurgeirsson bætti við: Svo var það á maíkvöldi mildu að margir sem voru hjá Hildu mættu þar konum með sínum sonum sem þær af góðmennsku vildu. Guðbrandur Þorkell Guðbrands- son rifjaði upp limruna hansHer- manns Jóhannessonar: „Oft úr vinnu fékk hann far með Hildi, fattaði þó aldrei hvað hún vildi. Uns kvöld eitt, kát og rjóð þau keyrðu fram á stóð, þá var eins og blessuð skepnan skildi.“ Sigtryggur Jónsson skrifar: „Fyr- ir nokkrumárum setti ég saman vísur umalla gömlumánuðina. Í dag, fyrsta vetrardag, hefst gormánuður. Umhann samdi ég svona“: Fyrsti dagur vetrar og foldin gráleit er, fannir hrannast upp í brekkuslakka. Gormánuður hafinn og gamnar núna sér, glettinn máni bak við skýjabakka. Og nú yrkir Sigtryggur um „fal- legt og friðsælt haustveður“: Sólin gyllir sjó og land, slík er haustsins blíða. Aldan leikur sæl við sand, síst er þörf á kvíða. JónAtli Játvarðarson segir að erfitt sé að ná síðustu ánum áhaustin, semhanga gjarnan í lúpínunni. Varla fyrir stirðan 73 ára. Hægt ég gekk á fjall en fús, flæktust gamlar sinar. Rollur tvær ég rak í hús, en reyndar missti hinar. Pétur Stefánsson yrkir: Mikið er það makalaust þó marga kunni'að styrkja, vetur, sumar, vor og haust vera ljóð að yrkja. Og nú um „sjálfsrýni“ Úr ljóðahörpu laða tón, lög í kollinn detta. Ég er vísnafífl og flón. Flestir vita þetta. Eru fá mín höfuðhár, holdið slappt af elli. Lélegt er mitt ljóðapár á lífsins hála svelli. „ERT ÞÚ BLÆR AF STEFNUMÓTASÍÐUNNI „SÆTABRAUГ? “ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að trúa á ást hans. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann LÍSA SEGIST EKKI VERA MÉR REIÐ HÚN ER REIÐ, EKKI SATT? BRJÁLUÐ HANN ER HUGRAKKUR OG HEIÐAR- LEGUR! ÞAÐ ER MÉR MIKIL ÁNÆGJA AÐ KYNNAST YÐUR, FAGRA MEY! TVENNT AF ÞRENNU ER EKKI SVO SLÆMT! SJÁLFSHJÁLPARBÆKUR HVAÐ ER AÐ ÞÉR, MAÐUR? 1. BINDI HUNANG, ÞETTA ER HINN VÍÐFRÆGI DREKABANI HÁVAXNI HRÓÐMAR. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.