Morgunblaðið - 14.11.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 14.11.2022, Síða 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022 Dalvegur 30 www.ithaka.is • Lyngháls 4 • s: 595 7800 Verslunar- skrifstofu- og þjónustuhúsnæði í uppbyggingu Nokkur laus rými Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt fólks vinnur við þetta verkefni þar semmilljarðar króna eru undir. Endurgreiðsla ríkisins á ríflega þriðjungi þess kostnaðar sem til fellur við kvikmynda- gerðina er að sögn kunnugra mikilvægt atriði svo verkefni sem þessi séu unnin hér. Hitt skiptir þó ekki síður máli, segir Börkur Gunnarsson, að hér á landi fyrirfinnst mannskapur með kunnáttu og hæfileika á þessu sviði. Að því leyti sé starf- semi Kvikmyndaskóla Íslands þýðingarmikil undirstaða og geti talist til mikilvægra inn- viða, eins og gjarnan er komist að orði. „Hér við skólann eru jafnan um 100 nemendur í tveggja ára námi. Eftir því sem við best vitum fer flest af þessu fólki beint til kvikmyndafyrirtækanna í vinnu – og flest er þar komið í framtíðarstörf,“ segir Börk- ur. Hann áætlar að jafnan sé á Íslandi yfirstandandi vinna við 10-20 kvikmyndaverkefni sem öll krefjast fjölda starfsmanna. Þá sé ótalin umfangsmikil fram- leiðsla á ýmiskonar myndskeiðum sem sýnd séu í sjónvarpi og á myndbandsrásum. Einnig þurfi kunnáttufólk til að annast mynd og hljóð til dæmis frá alls konar fundum ogmannamótum, sem gjarnan séu í streymi og beinni útsendingu yfir netið. Slíkt hafi raunar færst mjög í vöxt á siðustu misserum. „Við fáum jafnan mikinn fjölda umsókna um skólavist. Þar met- um við hvern og einn umsækj- anda með tilliti til verkefna og bakgrunns og hvað viðkomandi hafi fram að færa til skólans. Í náminu á fólk svo að geta komið sér upp verkfæratösku til að geta ráðið við að segja söguna í myndmáli með sómasamlegum hætti,“ segir Börkur. Gæðaefni skálda Á yfirstandandi skólaári, það er síðan í september, hafa alls 84 myndir – langar og stuttar – verið framleiddar í Kvikmynda- skóla Íslands. Í því sambandi tiltekur Börkur að í skólanum séu framleiddar meira en þúsund mínútur af gæðaefni frá efnilegustu kvikmyndaskáldun- um, eins og hann kemst að orði. Á venjulegu ári fylli útskrifaðir nemendur úr skólanum um þriðjung starfsheita á kreditlist- um íslenskra bíómynda. „Nú í haust hefur í alþjóðlegri deild skólans verið framleidd- ur fjöldi mynda af nemendum sem koma frá öðrum löndum; Kína, Mexíkó, Svíþjóð, Hong Kong, Nepal og Indlandi. Ég hef farið yfir handrit flestra framleiddra mynda hér og séð margar þeirra. Margt af þessu efni er prýðilega gott og borg- arlíf er alltaf vinsælt söguefni. Einnig ástir, átök og kynorkan í einhverri mynd en svo koma önnur efni, eins og að gera mynd með vísan í boðskap Hávamála. Af þessu sést hve framarlega við stöndum, en hér tökum við gjarnan mið af starfi bestu kvik- myndaskóla heimsins, s.s í Prag, Berlín og London.“ „Úr þessum skóla kemur á ári hverju fjöldinn allur af ungu og hæfileikaríku fólki sem lætur til sín taka. Mjög munar um framlag þess og sá alþjóðlegi iðnaður að búa til bíó þrifist tæplega hér á landi nema af því að hér er fólk sem kann til verka í faginu,“ segir Börkur Gunnars- son, rektor Kvikmyndaskóla Íslands. Um þessar mundir er Kvikmyndaskóli Íslands 30 ára og verður þeim tímamótum fagnað næstkomandi föstudag, 18. nóvemer. Starfið í skólanum er á góðri siglingu um þessar mundir og þar má nefna að á síðustu tveimur mánuðum hafa nemendur skólans, sem eru um 100, framleitt alls 84 kvikmynd- ir. Á þremur áratugum gerist margt, ekki síst þegar horft er til þess að í gerð kvikmynda er framvindan hröð. Listræn viðmið eru í sífelldri þróun og sömuleiðis tæknin sem starfað er með. Mikilvægt er að kunna skil á framleiðsluaðferðum, enda þótt stóri galdurinn sé alltaf sá að geta sagt sögu. „Sérhver saga byggist á sterk- um þræði og spennan þarf að vera fyrir hendi. Persónurnar í stykkinu þurfa að vera trúverð- ugar svo áhorfandinn fyllist von og hafi einhvern til að halda með. Sviðsmyndir í umhverfinu þurfa sömuleiðis að vera sterkar og til staðar þurfa sömuleiðis að vera tákn og skilaboð. Þetta er alvörubíó,“ segir Börkur. Kunnátta og hæfileikar Mikið er umleikis í íslenskri kvikmyndagerð um þessar mundir. Eins og sagði frá í Morgunblaðinu á dögunum eru nú hafnar hér á landi tökur á fjórðu röð sjónvarpsþáttanna True Detective, framleiddir af bandarísku sjónvarpsstöðinni HBO. Vinna við þetta verkefni stendur fram á vor. Mikill fjöldi Geti sagt sögunameðmyndmálinu Tökur Stórleikarar hér í upptökum við Lækinn í Hafnarfirði. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rektor Borgarlífið er alltaf vinsælt söguefni, segir Börkur Gunnarsson ummyndir nemenda skólans. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mikil aðsókn er í Kvikmyndaskóla Íslands, sem tekur mið af því besta í bíómyndaframleiðslu heimsins Hver er hann? •Börkur Gunnarsson fæddist árið 1970. Hann lærði kvik- myndaleikstjórn í FAMU í Prag í Tékklandi og þar gerði hann myndina Silný kafe, sem fór víða um heim og vann til alþjóðlegra og íslenskra verðlauna. Seinna gerði hann íslensku bíómyndina Þetta reddast. •Hann hefur skrifað níu bækur; skáldsögur, nóvellur og eitt smá- sagnasafn. Tvö leikrita hans voru sett á svið. Hann var í fjögur ár í stjórn Menningarráðs Reykja- víkur og sat um skeið í stjórn Rithöfundasambands Íslands. Hefur og verið blaðamaður á Morgunblaðinu. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.