Morgunblaðið - 14.11.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.11.2022, Blaðsíða 11
FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022 11 HVAÐ ER Í MATINN? -20% MÁNUDAGA Ungnautahakk 100% hreint íslenskt kjöt Hakkbollur Í orientalsósu (eldað) tilboð alla vikuna Grensásvegur 48, 108 Reykjavík | Sunnukriki 2, 270 Mosfellsbær Á MORGUN ÞRIÐJUDAG -20% Glæný verslun Skeifunni 9 Troðfull af vörum fyrir öll gæludýr Kauptúni 3, Garðabæ | Skeifan 9, Reykjavík | Sími 564 3364 | www.fisko.is Opið virka daga 10-19, laugardag 10-18, sunnudag 12-18 kíktu í heimsókn L i f and i v e r s l un fy r i r ö l l gæ ludýr Veðurstofa Íslands varar við auk- inni skriðuhættu á Suðausturlandi og sunnanverðum Austfjörðum. Mikið hefur rignt síðustu vikuna á þessum svæðum, en lítil úrkoma var á föstudag og laugardag. Af því má draga þá ályktun að grunnvatns- staða sé víða há. Veðurspáin fyrir daginn í dag og á morgun gerir ráð fyrir mjög mikilli úrkomu á Suð- austurlandi og talsverðri úrkomu á sunnanverðum Austjörðum. Þar sem grunnvatnsstaða er víða há og spáð er talsverðri úrkomu getur skapast aukin hætta á skriðu- föllum á þessum slóðum. Spáð er áframhaldandi rigningu á svæðinu fram yfir næstu helgi. Mesta ákefð- in var síðdegis í gær og í nótt. Stórar aurskriður féllu á Seyðisfirði í desember 2020 og ollu mikilli eyðileggingu á húsum í bænum. Skriðurnar féllu eftir mikla rigningatíð á svæðinu og var grunnvatnsstaða einnig víða há þá. Grannt hefur verið fylgst með svæð- inu síðan en skriður hafa reglulega fallið í firðinum gegnum árin. Morgunblaðið/Eggert SkriðuhættaVeðurstofa Íslands varar við aukinni skriðuhættu. Aukin hætta á skriðuföllum á Suðausturlandi lMikilli úrkomu spáð í dag og á morgunlGrunnvatnsstaða víða há Í haust rann út samningur milli Veiðifélags Andakílsár og Stanga- veiðifélags Reykjavíkur, SVFR, um sölu veiðileyfa í ána, en félögin hafa unnið saman síðustu tuttugu ár. Nú verða tímamót því eigendur árinnar hafa ákveðið að söðla um, fara aðra leið og byggja nokkuð á því módeli sem unnið hefur verið eftir í Norðurá í Borgarfirði. Var samþykkt á félagsfundi veiði- félagsins 6. nóvember sl., að semja við Kristján Guðmundsson um að selja veiðileyfin fyrir hönd eigenda. Samningurinn er til tveggja ára með möguleika á framlengingu um eitt ár og eykst þóknunin með aukinni sölu. Andakílsá er tveggja stanga á, veiðisvæðið er stutt og veiði á hvern stangardag hefur verið með því mesta sem gerist á landinu. Eftir umhverfisslysið, sem varð árið 2017, hefur árlega verið sleppt gönguseið- um í ána og uppbygging gengið vel samkvæmt þeim rannsóknum sem Hafrannsóknarstofnun hefur gert í ánni, að sögn Ragnhildar Helgu Jóns- dóttur, formanns veiðifélagsins. Hún segir einnig að nokkur áhugi hafi verið á því að taka ána á leigu og fólk haft samband í því skyni. „Eigendur ákváðu hins vegar að prófa svipað fyrirkomulag og rekið hefur verið í Norðurá, með ágætum árangri. Og jafnframt, að samhliða breyttu sölufyrirkomulagi verði unnið að upp- byggingu vatnasvæðisins ásamt því lFyrri samningur við SVFR verður ekki endurnýjaður Landeigendur selja sjálfir íAndakílsá Birna G. Konráðsdóttir Borgarfirði Morgunblaðið/Birna G. Konráðsdóttir Veiðiréttur Kristján Guðmundsson og Ragnhildur Helga Jónsdóttir við undirritun samningsins. að bæta húsakost og aðstöðu veiði- manna. Á þeim árum sem SVFR hefur séð um sölu veiðileyfa hefur heilmikið verið byggt upp og eru veiðiréttar- eigendur þakklátir fyrir það starf og samstarfið við þeirra tengiliði.“ Kristján Guðmundsson segist að- spurður vera stoltur yfir því trausti sem honum sé sýnt með þessum samningi. Það séu spennandi tímar framundan, bæði við sölu en einnig frekari uppbyggingu á svæðinu því hann finni fyrir miklum metnaði meðal veiðiréttareigenda að gera vel í þeim efnum. Stefnt er á að hefja sölu veiðileyfa vegna ársins 2023, 15. nóvember nk. Áhugasömum er bent á að setja sig í samband við Kristján í gegnum net- fangið sala@andakilsa.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.