Morgunblaðið - 14.11.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.11.2022, Blaðsíða 12
FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf12 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælummeð Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælummeð Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur 14. nóvember 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 144.26 Sterlingspund 169.87 Kanadadalur 108.56 Dönsk króna 19.991 Norsk króna 14.488 Sænsk króna 13.866 Svissn. franki 151.06 Japanskt jen 1.0334 SDR 189.08 Evra 148.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 177.0008 samband við en aðrar leituðu til mín að fyrra bragði.“ Föt sem eiga að endast og passa vel Árangurinn segir María að skrifist m.a. á það að allt frá byrjun hefur hún ekki gefið neinn afslátt af gæðunum: „Ég hef prufað efnin og sniðin á sjálfri mér, sett flíkurnarmargoft í þvottavél og þurrkara, til að ganga úr skugga um að varan sé eins og égmyndi sjálf vilja. Ég tek ekki í mál að nota annað en bestu fáanlegu efni og útkoman er líka sú að margir sem keyptu t.d. af mér buxur fyrir fimm árum nota þær enn þann dag í dag og þær líta út eins og nýjar. Að ætla að spara í efnisvali og frágangi myndi bara á endanum koma í bakið á okkur.“ Þá hefurMaría gætt þess að sniðin henti fólki meðmismunandi vaxtarlag og eru t.d. þær buxur sem hún hefur hannað fyrir konur fáanlegar í þrem- ur síddum ogmeðmishátt mitti: „Við erum einfaldlega svo fjölbreytt hvað lögun líkamans viðkemur og buxur sem sitja við mittið á einni konu geta náð þeirri næstu upp að brjóstum.“ Harðnandi slagur M fitness er ekki eina íslenska íþróttafatamerkið sem sprottið hefur upp á undanförnum árum og telst Maríu til að a.m.k. fjögur íslensk merki séu ámarkaðnum, þómeð ólík- ar áherslur og ólík að umsvifum: „Öll samkeppni er af hinu góða og heldur okkur á tánum, en það gæti komið mörgum á óvart hve mikil vinna fer í að koma nýju merki á laggirnar. Þeir sem ætla út á þessa braut ættu að vera reiðubúnir að þurfa að leggja allt annað til hliðar.“ Þrátt fyrir ungan aldur hefur Maríu Lenu Heiðarsdóttur Olsen tekist að byggja upp sitt eigið íþróttafatamerki: M fitness. Reksturinn er í blóma, starfsmenn fyrirtækisins orðnir sex talsins og fatnaðurinn fáanlegur á tólf stöðum hringinn í kringum landið, þar á meðal í verslunum Útilífs og í verslun M fitness á Stórhöfða 15. Þá standa yfir viðræður við samstarfs- aðila um mögulega sókn á erlendan markað. „Í byrjun þurfti ég að gera allt sjálf og fikraði mig áfram með ráðum og leiðbeiningum sem ég fann á Google og YouTube,“ segir María en hún var einstæð móðir átta mánaða gamals barns þegar hún lét verða af því að hanna og framleiða eigin íþróttafatn- að. „Ég ólst upp á Egilsstöðum og á unglingsárunum var varla nokkur afþreying í boði fyrir mig nema að taka þátt í íþróttum. Ég byrjaði því snemma að æfa fimleika, fótbolta og frjálsar íþróttir, og keppti síðar í fitness. Þá fékk ég gott veganesti í verslunmóðurminnar en þar starfaði ég frá tólf ára aldri og lærði margt um hvernig á að reka fyrirtæki,“ segir María söguna. Það var tekið eftir árangri Maríu í fitness-heiminum og fyrr en varði var hún farin að starfa sem einkaþjálfari. „Það var þá sem ég setti fyrirtækið M fitness á laggirnar og þegar best lét var ég með 70 konur hjá mér í fjarþjálfun.“ Fór hægt af stað Maríu fannst vera gat á íslenska markaðinum fyrir klæðilegri íþróttafatnað: henni þótti erfitt að finna vandaðan fatnað í skemmti- legum litum og í sniðum sem hæfa íslensku vaxtarlagi svo hún hóf leitina að einhverju betra: „Ég byrjaði á að panta nokkrar prufur frá brasilísku merki en þegar ég fékk fötin í hend- urnar sá ég að þærmyndu ekki ganga fyrir íslenskanmarkað. Fór svo að ég fannmjög fína verksmiðju erlendis og eftir að hafa lært helstu undirstöð- ur byrjaði ég að hanna mínar fyrstu flíkur.“ Salan fór rólega af stað en það hjálpaði Maríu að vera þegar með stóran hóp kvenna í þjálfun hjá sér. „Þær voru forvitnar um fatnaðinn sem ég klæddist í tímum og þannig vatt salan smám saman upp á sig,“ segir María en hún fór mjög rólega af stað: „Fyrsta pöntunin samanstóð af einum toppi og tvennum buxum, en ég hafði ekki meira bolmagn en svo að ég lét bara framleiða aðrar buxurnar í stærðunum frá XS upp í M. Þegar fyrsta pöntunin seldist upp bætti ég svo við einni stærð í viðbót, og þannig koll af kolli,“ segir hún en í dag státarM fitness af fatalínum fyrir bæði börn, konur og karla. María fikraði sig líka áfram í net- sölu ogminnist hún þess hvernig hún byrjaði á að kynna vöruna á Facebook og taka við pöntunum sem bárust í gegnum einkaskilaboð. „Ári síðar flaug ég til Reykjavíkur til að funda með innkaupastjóra Útilífs. Þeim þótti varan áhugaverð og urðu einn af mínum fyrstu söluaðilum. Fleiri verslanir bættust við í kjölfarið; sum- ar hafði ég frumkvæði að því að hafa lStofnandi íþróttafatamerkisins M fitness segir vönduð efni og snið lykilinn að árangrilHún prófar fötin á sjálfri sérlÓlst upp í verslun móður sinnar Vatt smámsamanuppá sig VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon SjálfbjargaMaría Lena fikraði sig áfram og notaði YouTube ogGoogle-leit til að læra hvernig á að hanna íþróttafatnað. Fótunum kippt undan rafmyntarisa Mikill titringur varð á rafmynta- mörkuðum í síðustu viku þegar áhlaup var gert á rafmyntakauphöll- ina FTX. Viðræður höfðu átt sér stað um að Binance, stærsta rafmynta- kauphöll heims, myndi kaupa FTX og leysa þannig úr rekstrarvanda félagsins. Á síðustu stundu tilkynnti Binance hins vegar að ekki yrði af kaupunum og í kjöl- farið sendi Changpeng Zao, forstjóri Binance, frá sér tíst sem gáfu til kynna að ekki væri allt með felldu í starfsemi FTX. Ummæli Zhaos urðu til þess að viðskiptavinir FTX gerðu áhlaup á kauphöllina og freistuðu þess að innleysa rafmyntir sínar. Greinir New York Times frá að á þremur dögum hafi FTX verið krafið um að greiða út jafnvirði sex milljarða dala og reyndist það félaginu ofviða. Á föstudag varð FTX gjaldþrota og stofnandi félagsins, Sam Bank- mann-Fried, sagði starfi sínu lausu. Í hans stað kemur John J. Ray III en hann er alvanur því að stýra fyrir- tækjum í gegnum gjalþrotaferli og tók t.d. við stjórnvelinum hjá orkuris- anum Enron eftir að bókhaldssvindl varð því félagi að falli. Bankmann-Fried hefur verið eitt af sýnilegustu andlitum rafmyntaheims- ins og hefur hann varið miklu af fjármunum sínum og tíma í að hvetja bandarísk stjórnvöld til að gera ýmsar bætur á lögum er snerta raf- myntaviðskipti. Er áætlað að þegar best lét hafi auðæfi hans verið um 24 milljarða dala virði. Áætlar NYT að eftir hrun FTX nemi eignir hans innan við milljarði dala. ai@mbl.is lMilljarðar dala í húfi í gjaldþroti FTX Samuel Bankman-Fried

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.