Morgunblaðið - 14.11.2022, Side 25

Morgunblaðið - 14.11.2022, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022 DÆGRADVÖL 25 JÓLAHLAÐBORÐ Hólshraun 3 · 220 Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Nú gefst þér tækifæri til að gleðja starfsfélaga, fjölskyldu og vini með konunglegum kræsingum frá Veislulist Starfsfólk okkar leggur sig fram um að gera stundina fallega með úrvals veitingum og persónulegri og góðri þjónustu. Einarsson kennari kenndi mér að framkalla myndir. Ég tók myndir fyrir ýmsa aðila og framkallaði þær og tók meira að segja bekkjar- mynd í 9. bekk sem samnemendur mínir fengu allir eintak af. Þá hafa ferðalög alltaf heillað mig, bæði hér heima og erlendis enda hef ég ánægju af útivist og gönguferð- um. Ég hef haft áhuga á bílum frá barnsaldri og bíómyndir hafa verið mín afþreying áratugum saman. Ég hef lengi safnað bíómyndum, fyrst VHS, síðar DVD og á bíómyndir frá öllum heimshornum. Ég hef lengi verið félagi í kvikmyndaklúbbnum Deus ex cinema.“ Fjölskylda Eiginkona Bjarna Þórs er María Guðrúnar Ágústsdóttir, f. 20.2. 1968, prestur í Fossvogsprestakalli. Foreldrar Maríu eru Guðrún Lára Ásgeirsdóttir, f. 14.11. 1940, kennari og rithöfundur, og Ágúst Sigurðs- son, f. 15.3. 1938, d. 22.8. 2010, sóknarprestur og fræðimaður,. Dætur Bjarna Þórs og Maríu eru Guðný Lára, f. 27.5. 2004, nemi við Verzlunarskóla Íslands; Guðrún Mar- ía, f. 4.10. 2005, nemi við Menntaskól- ann í Reykjavík og Nína Björg, f. 15.9. 2011, grunnskólanemi. Börn Maríu eru Kolbeinn, f. 24.9. 1994, dýralæknir í Noregi, og Ragnhildur, f. 10.12. 1996, bókmenntafræðingur og blaðamaður. Systkini Bjarna Þórs eru Jónas, f. 10.9. 1953, rekstrarhagfræðingur, og Una Björg, f. 26.7. 1959, kennsluráð- gjafi. Foreldrar Bjarna Þórs voru Bjarni Sigurvin Jónasson, f. 4.1. 1929, d. 22.4. 2022, löggiltur rafverk- taki, og Guðný Magnea Jónsdóttir, f. 22.10. 1928, d. 12.12. 2019, húsmóð- ir. Bjarni Þór Bjarnason Guðríður Skaftadóttir prestsdóttir frá Siglufirði, síðast búsett á bænum Fífuhvammi Í Kópavogi Brynjólfur Pálsson frá Hellnahóli undir Eyjafjöllum, bóndi í Litla-Lambhaga og síðar í Þorlákstúni við Hafnarfjörð Dagbjört Sigríður Brynjólfsdóttir húsmóðir í Hafnarfirði Jón Steingrímsson sjómaður í Hafnarfirði Guðný Magnea Jónsdóttir húsmóðir í Reykjavík Jóna Kristjánsdóttir frá Hliðsnesi á Álftanesi, húsmóðir í Hafnarfirði Steingrímur Jónsson frá Sviðholti á Álftanesi, sjómaður og bóndi í Hafnarfirði Guðrún Magnúsdóttir frá Holtskoti á Langholti, húsfreyja í Eyhildarholti Sigurjón Markússon frá Bessastöðum í Sæmundarhlíð, bóndi í Eyhildarholti í Hegranesi Steinunn Sigurjónsdóttir húsfreyja í Hátúni Jónas Jón Gunnarsson bóndi í Hátúni á Langholti í Skagafirði Sigurlaug Magnúsdóttir frá Utanverðunesi í Hegranesi, húsfreyja í Keflavík í Hegranesi Gunnar Ólafsson frá Ögmundarstöðum í Staðarhreppi, bóndi í Keflavík, Hegranesi í Skagafirði Ætt Bjarna Þórs Bjarnasonar Bjarni Sigurvin Jónasson löggiltur rafverktaki í Reykjavík Vísnahorn Ort um öl og verðbólgu Hjörtur Benediktsson yrkir á Boðnarmiði: Við sitjum hér með seðlabankastjóra í sólinni og drekkum nokkra bjóra. Og vextir standa í stað nú stólum við á það að verðbólgan hún fari undir fjóra. Guðmundur Arnfinnsson dreg- ur upp „Haustmynd“ (hringhent sléttubönd): Tindar háir falda fönn, freyða sjávar leiðir, vindar knáir hreyfa hrönn, hafið bláa seiðir. Seiðir bláa hafið, hrönn hreyfa knáir vindar, leiðir sjávar freyða, fönn falda háir tindar. Kristján H. Theodórsson yrkir: Til veislunnar stefndu þér vellygnir menn, þín vandræðin kokkuðu í pottum. Gullið var brasað og borið þér senn, með blóði úr mórum og skottum. Um „lofað gull í skál“ yrkir Hallmundur Guðmundsson: Gullsúpu Lappi lapti því ljóminn af henni glapti. En súpan var súr og sultur varð úr – sem olli að hundgreyið gapti. Jónas Árnason um „álitsgerð frá gamalli Tjarnarönd“: Þó að álftirnar látum ei linni í bölvaðri brauðgræðgi sinni út um glugga ég heyri oft hávaða meiri í blessaðri borgarstjórninni. Hér yrkir Jónas um kurteisi: Einn bergrisi bústinn og pratinn sem við næringaröflin var natinn gleypti í hvelli fólkið á Felli og mælti svo: „Takk fyrir matinn.“ Í byrjun aldarinnar hafði kínverskur auðmaður boðið einn milljarð króna í Grímsstaði á Fjöll- um, þar sem hann hugðist reisa lúxushótel með golfvelli og meiru. Karlinn á Laugaveginum kvað: Laus við hljóðskraf í kínverkum höllum ríkir hásléttan fegurst af öllum í einsemd og dul. Það er kvöldsett og kul og kindur á beit á Fjöllum. Úr Vísnasafni Sigurðar frá Haukagili: „Við Breiðafjörð sóttu konur sjó fyrr meir nálega til jafns við karlmenn. Um eina breiðfirska blómarós er djarflega sótti til fanga orti Jóhann Garðar Jóhannsson frá Öxney: Mærin skrapp til miða í gær – margur á afla giskaði – báturinn góður, blálygn sær beitti loðnu og fiskaði.“ Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „SKUTLAÐU HENNI BARA INN Á HERBERGI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fela skallablettinn fyrir hann. ÞÚ MUNT LENDA Í MIKLUM HRÍÐARBYL! ER ÞETTA SNJÓKÚLA? KRISTALSKÚLAN ER Á VERKSTÆÐI! LEYNI MEGRUNAR-TRIX … EF ÞÚ BORÐAR NÓGU HRATT BRENNIRÐU ÖLLUM HITA- EININGUNUM SAMSTUNDIS „VIÐ HVERN ÞARF ÉG AÐ TALA UM AÐ KAUPA NÝJAN TÆTARA?“ GLEYP GRAÐGIGRAÐG NOMM NOMM NOMM HRJAMM KJAMMSSMJATT SLUPP SLURP GARR GARR Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.