Morgunblaðið - 14.11.2022, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 14.11.2022, Qupperneq 28
MENNING28 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022 Enginn sem leggur leið sína til Helsinki í Finnlandi ætti að láta bókasafnið Oodi, sem á íslensku merkir óður, fram hjá sér fara. Finnska fyrirtækið ALA Architects hannaði safnið eftir að hafa unnið alþjóðlega samkeppni sem haldin var 2013. Byggingin, sem kostaði 98 milljónir evra að reisa, var vígð 5. desember 2018, á síðasta degi hátíðarhalda í tilefni þess að öld var liðin frá því Finnland lýsti yfir sjálf- stæði frá Rússlandi. Útgangspunkt- ur hönnunarinnar var að byggingin væri almenningsrými opið öllum að kostnaðarlausu. Byggingin, sem er á þremur hæðum, stendur við Kansalaistori andspænis finnska þinghúsinu. Hlýr greniviður er áberandi á fyrstu tveimur hæðunum, en gler og stál leika aðalhlutverk á efstu hæð. Mild lýsing skapar góða stemningu og frábær hljóðhönnun gerir það að verkum að þrátt fyrir að húsið iði af lífi helst hljóðvistin ávallt góð. Þegar undirrituð átti leið um húsið kvöld eitt fyrir skemmstu mátti m.a. sjá fólk að hönnunarstörfum, unglinga sem spiluðu tölvuleiki í margmiðlunarherbergjum og gesti sem lásu nýjustu dagblöðin. Oodi var reist sem hágæða- bókasafn og hýsir um 100.000 bækur, tímarit, dagblöð, prentaðar nótur, kvikmyndir og spil, en bækur safnsins eru á um 20 tungumálum. En Oodi er ekki aðeins bókasafn í hefðbundnum skilningi, því þetta er sannkallað félagsheimili eða samfélagsmiðstöð. Á jarðhæðinni má sem dæmi finna veitingastað, bíósal, rými sem ætlað er yngstu gestum hússins og úrval nýjustu og vinsælustu bóka safnsins. Miðhæð- in hýsir margvísleg vinnurými, fjölda fundarherbergja og nokkur hljóðver. Þar er einnig fullbúið eld- hús þar sem hægt er að bjóða upp á matreiðslunámskeið og nokkrar saumavélar. Efsta hæðin er helguð bókasafninu auk þess sem þar má finna leikaðstöðu fyrir yngstu börn- in innan um bókahillurnar, kaffihús, lesaðstöðu og aragrúa borðspila sem gestir geta nýtt sér. Byggingin er opin virka daga kl. 8-21 og um helgar kl. 10-20. Bókasafnskortið er ókeypis fyrir alla íbúa Helsinki, sem geta einnig til dæmis bókað tíma í hljóðver- um og fengið hljóðfæri lánuð án greiðslu. Fundarrými hússins eru öllum opin, líka þeim sem ekki eru með bókasafnskort. Oodi er sann- kallaður óður til samfélagsins. l Bókasafnið Oodi hefur slegið í gegn eftir að það var vígt í Helsinki 5. desember 2018l Fyrsta árið heimsóttu um þrjár milljónir manns byggingunal Lifandi tré innanhúss og góð hljóðhönnun Óður til samfélagsins Ljósmynd/Kuvio fyrir Oodi Borgaratorgið Oodi stendur við torgið Kansalaistori skammt frá aðalbrautarstöðinni í Helsinki. Við sama torg stendur einnig Kiasma-samtímalistasafnið og glæsilegt tónlistarhús borgarinnar sem hýsti í byrjun mánaðar afhendingu verðlauna Norðurlandaráðs. Beint á móti Oodi stendur síðan finnska þinghúsið. AFLISTUM Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Ljósmynd/Silja Björk Huldudóttir Teflt á gangi Þegar blaðamaður átti leið um húsið mátti á jarðhæð Oodi finna fjölda skákborða þar sem almenningur gat spreytt sig á að tefla. Ljósmynd/Silja Björk Huldudóttir Hljóðfæri til láns Þau sem eru með bókasafnskort hjá Oodi geta fengið hljóðfæri lánuð endurgjaldslaust og nýtt í hljóðverum byggingarinnar. Ljósmynd/Silja Björk Huldudóttir Líf Níu lifandi tré eru í Oodi sem lífga upp á andrúmsloftið í byggingunni. Ljósmynd/Silja Björk Huldudóttir Stafn Endi hússins, er vísar í átt að aðaljárnbrautarstöðinni, minnir á skip. Ljósmynd/Silja Björk Huldudóttir Tileinkun Ferðast má milli hæða í Oodi með lyftu en einnig um tröppur sem prýða listaverkið „Omistuskirjoitus“ eða Tileinkun eftir Otto Kar- vonen frá árinu 2018. Þegar bókasafnið var opnað á sínum tíma gafst al- menningi kostur á að nefna hver eða hverjir ættu skilið að fá safnið kennt við sig. Alls barst 381 tillaga sem máluð er innan á stiganum. Ljósmynd/Silja Björk Huldudóttir Lesrými Á miðhæð Oodi láta gestir hússins fara vel um sig við lestur. HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.