Morgunblaðið - 21.11.2022, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Innlent2
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 UU.IS
TRYGGÐU ÞÉR GISTINGU Í TÍMA!
SKÍÐAFRÍ TIL ÍTALÍU
DINNA OG HELGI TAKA VEL Á
MÓTI YKKUR Í ÍTÖLSKU ÖLPUNUM
VERÐ FRÁ149.900 KR
Á MANN M.V 2 FULLORÐNA OG 1 BARN
28. JANÚAR - 04. FEBRÚAR 2023
INNIFALIÐ ER FLUG, GISTING, FLUTNINGUR Á
SKÍÐABÚNAÐI OG ÍSLENSK FARARSTJÓRN
ERTU MEÐ HÓP?
SENDU OKKUR FYRIRSPURN
Á HOPAR@UU.IS
Hafnar eru framkvæmdir við
gömlu grásleppuskúrana áÆgisíðu.
Þar stendur til að koma upp aðstöðu
fyrir sjósundsiðkendur og munu þar
brátt rísa búningsklefar og útisturtur
fyrir fólk sem hyggst stinga sér til
sunds. Samkvæmt verklýsingu á
að hanna aðstöðuna í svipuðum stíl
og gömlu skúrana en fyrir um það
bil ári var annar skúranna gerður
upp. Þá er áætlað að tengingin við
sæinn og atvinnusögu skúranna yrði
í hávegum höfð. Sem dæmi verður
sjávargrjóti hlaðið upp við veggi
skýlisins. Áætlaður kostnaður við
verkefnið er 10 milljónir króna.
Um er að ræða hugmynd sem
hlaut góðar viðtökur í hugmynda-
söfnuninni Hverfið mitt fyrir um
það bil tveimur árum. Fríða María
Harðardóttir, sem átti hugmyndina,
kvaðst lítið vita um gang mála þegar
Morgunblaðið náði tali af henni en
var þó ánægð að heyra að hug-
myndin yrði að veruleika. „Ég fór í
sumar, bý náttúrlega þarna rétt hjá,“
segir Fríða og segist vona að góð
aðstaða muni draga fólk að.
„Maður heyrir af því, bæði í
Stokkhólmi og Kaupmannahöfn, að
á mörgum almannarýmum við sjó
og vötn í borginni sé komin aðstaða
þar sem fólk getur farið í gufu, alveg
ókeypis.“ Fríða segir þó mikilvægt
að borginni takist að halda sjónum
hreinum. „Það er svo annað mál.
Það er það eina semmanni finnst að
þurfi að vera pottþétt,“ segir hún,
létt í lund.
lAðstaða til sjósunds væntanleg
Skúrarnir
gömlu fá viðbót
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Skúr Framkvæmdir eru hafnar áÆgisíðunni. Ætlunin er að saga svæðisins verði í hávegum höfð og hönnun skýl-
isins falli vel inn í landslagið. Hugmyndin kom upp í hugmyndakeppninni Hverfið mitt fyrir um tveimur árum.
Erlendur maður á þrítugsaldri lést í
umferðarslysi á laugardagskvöld er
rafhlaupahjól og rúta lentu saman
á horni Barónsstígs og Grettisgötu.
Maðurinn sem lést var á rafhlaupa-
hjólinu, en talið er að hann hafi ekið
inn í hlið rútunnar. Mikill viðbún-
aður var við Barónsstíg í kjölfar
slyssins.
Sautján þáðu áfallahjálp Rauða
krossins vegna slyssins á laugardag.
Fleiri vitni leituðu til Rauða krossins
í gær, og því liggur ekki fyrir end-
anlegur fjöldi þeirra sem samtökin
veittu aðstoð vegna slyssins.
Fólki brugðið
Þetta staðfestir Aðalheiður Jóns-
dóttir, teymisstjóri neyðarvarna
hjá Rauða krossinum, í samtali við
Morgunblaðið. Þeir sautján sem
þáðu áfallahjálp strax á laugar-
dagskvöld, voru farþegar í rútunni,
sem lenti saman við vegfarandann
á rafhlaupahjólinu.
„Fólki var eðlilega mjög brugðið
enda skelfilegt atvik sem átti sér
stað,“ segir Aðalheiður. Önnur vitni
að slysinu leituðu sér aðstoðar í gær.
Aðalheiður segir það algengt að fólk
sé nokkra daga að átta sig á því að
það hafi orðið fyrir áfalli. Hún bend-
ir á að línan hjá Rauða krossinum sé
alltaf opin, en fólk getur haft sam-
band í síma 1717.
Áfallahjálp felur í sér sálræna
fyrstu hjálp í kjölfar áfalls. Hjálpin
fer einna helst fram í samtalsformi
þar sem fólk er meðal annars frætt
um það hvers megi vænta næstu
daga, en fram geta komið ýmis and-
leg og líkamleg einkenni.
lFjöldi fólks hefur þegið áfallahjálp
Maður lést í slysi
viðBarónsstíg
Morgunblaðið/Freyr
Vettvangur Slysið varð á horni
Barónsstígs og Grettisgötu.
um greiðslu launa. Samkomulagið
var gert í samræmi við vinnumat
þeirra og byggt á samkomulagi sem
gert var í júní 2018. Skólameist-
ari skólans breytti vinnumatinu í
janúar 2020 og var þá hætt að greiða
þeim laun samkvæmt fyrrgreindu
samkomulagi. Kennararnir báru fyrir
sig að samkomulagið teldist ígildi
kjarasamnings og töldu að þar með
væri ekki hægt að breyta því einhliða.
Að mati hópsins breytti þar engu þótt
riftun hafi verið gerð í samráði við
kennara þar sem það ætti að endur-
skoða eftir leiðum kjarasamnings.
Íslenska ríkið mótmælti því að
samkomulagið gæti talist sem kjara-
samningur og tók fram í málsástæð-
um sínum að aðeins fjármála- og
efnahagsráðherra geti farið með
fyrirsvar ríkissjóðs við gerð og fram-
kvæmd kjarasamninga samkvæmt
lögum. Því hafi skólameistara verið
heimilt að breyta greiðslum enda beri
hann ábyrgð á því að rekstrarútgjöld
og rekstrarafkoma séu í samræmi við
fjárlög.
Héraðsdómur byggði úrskurð sinn
á samningum sem voru gerðir á milli
kennara og stjórnenda skólans frá
árunum 2014 til 2018 með tilliti til
viðbóta og viðauka. Vísaði héraðs-
dómur þá til reglna í kjarasamningi
Kennarasambands Íslands og komst
að þeirri niðurstöðu að skólameist-
ara Menntaskólans í Kópavogi hefði
samkvæmt kjarasamningnum ekki
verið stætt á því að breyta einhliða
vinnumati kennara við skólann og
þar með lækka laun þeirra.
Rakti dómurinn að skólameist-
aranum hefði verið skylt að skjóta
ágreiningnum um vinnumatið form-
lega til vinnumatsnefndar samkvæmt
viðauka við kjarasamninginn sem var
gerður árið 2014. Þegar niðurstaða
vinnumatsnefndar hefði legið fyrir
hefði skólameistarinn getað vísað
málinu til úrskurðarnefndar. Þá leit
dómurinn svo á að íslenska ríkið
hefði ekki fært haldbær rök fyrir því
að að skólameistarinn hefði ekki haft
fjárheimildir til að efna samkomulag-
ið sem var gert 2018. Í ljósi þessa var
fallist á kröfu kennaranna og ríkinu
gert að greiða þeim rúmar þrjár
milljónir auk dráttarvaxta.
Morgunblaðið/Eggert
Laun Kennarar höfðu fullnaðarsig-
ur fyrir héraðsdómi á þriðjudag.
Kennarar báru sigurorð af ríkisvaldinu
lÍslenska ríkinu gert að greiða tólf kennurumviðMenntaskólann íKópavogi vangoldin laun
lEinhliða breyting skólameistara framhaldsskólans á vinnumati í kjarasamningi dæmdólögmæt
Hópur kennara við Menntaskólann
í Kópavogi hafði betur gegn íslenska
ríkinu í deilu um vangoldin laun
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á
þriðjudaginn. Íslenska ríkinu var því
gert að greiða hópnum samtals rétt
rúmar þrjár milljónir króna ásamt
dráttarvöxtum. Að auki var íslenska
ríkinu gert að greiða hópnum
sameiginlega 1.240.000 krónur í
málskostnað.
Hópurinn samanstendur af tólf
framhaldsskólakennurum en þeir
byggðu kröfu sína á að mennta-
skólinn hefði ekki efnt samkomulag
Tómas Arnar Þorláksson
tomasarnar@mbl.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.