Morgunblaðið - 21.11.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.11.2022, Blaðsíða 12
FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf12 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022 VANDAÐIR STÓLAR fyrir ráðstefnu- og fundarsali Mikið úrval af húsgögnum og innréttingum fyrir hótel, mötuneyti, veitingastaði, ráðstefnur, fundi o.fl. Komdu og kynntu þér úrvalið. Við sérpöntum eftir þínum óskum! Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími: 580 3900 | fastus.is Vonir standa til að auka vörufram- boðið smám saman, s.s. með því að bjóða upp á nýjar leiðir í sparnaði og lán til viðskiptavina þegar aðstæður leyfa. Tryggvi segir að áherslanmuni alltaf verða á að þjónusta einstaklinga og halda rekstrinum sem einföldust- um: „Mín uppáhaldssíða í indó-snjall- símaforritinu er verðskráin, sem er stutt og einföld, og sett fram á auðskiljanlegan hátt. Til samanburð- ar þá eru verðskrár stóru bankanna ekki aðgengilegar nema í löngum skjölum sem skrifuð eru með smáu letri og rituð á bankamáli sem engan eðlilegan mann langar til að reyna að skilja.“ Munar um færslugjöldin og gjaldeyrisálagið Áætlar Tryggvi að dæmigerður við- skiptavinur geti sparað á bilinu 30.000 til 50.000 kr. á ári með því að færa viðskipti sín yfir til indó. „Ef ég tek sjálfan mig sem dæmi þá framkvæmi ég um 100 færslur á mánuði og myndi hjá hefðbundnum banka borga fyrir það um 1.800 kr. í færslugjöld, eða um og yfir 20.000 kr. á ári. Ofan á það bætist kortanotkun erlendis, í fríum eða í gegnum net- verslun, sem að meðaltali nemur um 300.000 kr. á ári hjá Íslendingum. Þar rukkar hefðbundinn banki álag fyrir gjaldeyrisskipti, um 2,5 til 4% á hverja færslu. Hjá indó eru hins vegar engin færslugjöld og ekkert álag á erlendar færslur. Þar liggur hinn raunverulegi sparnaður." Of strangar reglur hamla nýsköpun Að setja sparisjóð á laggirnar er hægara sagt en gert. Tryggvi segir regluverkið flókið og að það útheimti mikla vinnu og peninga að fullnægja öllum kröfum. „Það á að vera erfitt að stofna banka, enda er það mikið alvörumál að taka við innlánum frá fólki,“ segir hann en bætir við að ef til vill sé regluverkið aðeins of þungt í vöf- um: „Það ermikilvægt að regluramm- inn sé almennur og komi ekki sérstak- lega niður á nýjum aðilum. Því er vert að skoða hvort ekki mætti liðka fyrir til að efla nýsköpun enn frekar á fjár- málamarkaði. Eftir því sem nýju fyr- irtækin yrðu stærri myndu kröfurnar síðan fara vaxandi. Þannig getum við farið nýjar leiðir og aukið samkeppni, neytendum til hagsbóta.“ Stjórnendur sparisjóðsins indó (ritað með litlum upphafsstaf) hafa farið ró- lega af stað og gætt þess að taka ekki við of mörgum viðskiptavinum í einu. Tryggvi BjörnDavíðsson stofnaði indó meðHauki Skúlasyni og segir Tryggvi að nú þegar séu um 1.500manns kom- in í viðskipti við sparisjóðinn og um það bil 7.000 á biðlista en áhugasamir geta skráð sig á listann á heimasíðu indó. Viðskiptavinirnir hafa verið duglegir að veita gagnlega endurgjöf og segir Tryggvi að frá því starfsemin hófst hafi indó að jafnaði gert um þrjár til fimmbreytingar á dag á snjallsímafor- riti bankans – bæði stórar og smáar – í takt við þær ábendingar og óskir sem viðskiptavinir hafa komið með. Er nú svo komið að óhætt er að leyfa viðskiptavinahópnum að vaxa hraðar og reiknar Tryggvimeð að á komandi mánuðum verði hægt að bæta við um 500 nýjum viðskiptavinum vikulega. Verði að hámarki 20 manna vinnustaður Indó þjónustar einvörðungu ein- staklinga og leggur áherslu á að hafa vöruframboðið einfalt, vexti hagstæða og halda hvers kyns þjónustugjöldum í lágmarki. Sparisjóðurinn notar nýj- ustu tækni til að hafa sem smæsta yfir- byggingu og fá viðskiptavinir að njóta góðs af hagræðinu: „Við erum ekki nema þrettán manns og ef við færum úr 1.500 í 10.000 viðskiptavini myndi ekki þurfa að bæta við nema samtals tveimur eða þremur nýjum störfum í forritun og þjónustu viðskiptavina. Stefna okkar er að starfsfólkið verði ekki fleira en 20 talsins og teljum við okkur þannig getað þjónustað stóran hóp viðskiptavina á hagkvæman hátt,“ útskýrir Tryggvi. Er þetta mun minni yfirbygging en hefðbundnir bankar geta státað af og nefnir Tryggvi sem dæmi um hvað reksturinn er léttur að það nægi indó að leigja 140 fermetra skrifstofurými í Lágmúla þar sem mánaðarleigan er um 370.000 kr. „Hefðbundnir bankar eru með mun flóknari rekstur og eru allt í senn, viðskiptabankar, fyr- irtækjabankar, eignastýringar- og markaðsfélög. Hvert svið býður fjöld- ann allan af vörum og þarf hundruð samþættra tölvukerfa til að halda utan um reksturinn. Þetta hefur í för með sér mikinn kostnað sem kemur á endanum niður á viðskiptavinum,“ segir Tryggvi. l Um 7.000manns eru á biðlista til að opna reikning hjá sparisjóðnum indól Mætti skoða að leyfa sprot- um á fjármálamarkaði að vinna eftir einfaldari og minna íþyngjandi reglum til að hvetja til nýsköpunar Áekki að verða stór vinnustaður VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Ljósmynd/indó FlækjustigTryggvi leggur til að reglunumverði hagað þannig að ekki verði gerðar jafnstrangar kröfur til fjármálasprota og gerðar eru til stóru og rótgrónu félaganna. Síðanmætti smám saman auka kröfurnar eftir því sem sprotarnir stækka. Létt og lipur » Indó notar nýjustu tækni til að halda yfirbyggingu og kostnaði í lágmarki. »Rukkar viðskiptavini hvorki um færslugjöld né leggur álag á gjaldeyrisviðskipti. »Dæmigerður viðskiptavinur getur vænst þess að spara 30.000 til 50.000 kr. árlega. »Leggja áherslu á einfaldleika og gagnsæi. Verðskráin er stutt og skýr. »Regluverkið getur haft hamlandi áhrif á nýsköpun og samkeppni á bankamarkaði. 21. nóvember 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 143.64 Sterlingspund 171.03 Kanadadalur 107.58 Dönsk króna 20.017 Norsk króna 14.2 Sænsk króna 13.56 Svissn. franki 150.69 Japanskt jen 1.026 SDR 188.69 Evra 148.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.2918 Smám saman er að komast skýr- ari mynd á eðli og umfang fjár- hagsvanda rafmyntakauphallar- innar FTX og hve kostnaðarsamt gjaldþrot félagsins verður. Reuters greindi frá því á sunnudag að FTX áætli að fé- lagið skuldi 50 stærstu kröfu- höfum sínum nærri 3,1 milljarð dala. Þar af skuldar félagið tíu stærstu kröfuhöfunum 1,45 milljarða dala. Áður hefur verið greint frá því að viðskiptavinir FTX hafi verið ummilljón talsins og er búist við að þeir kunni að tapa rafmynta- innistæðum sínum aðmestu eða öllu leyti. Stjórnendur þrotabús FTX upplýstu um það á laugardag að verið væri að kortleggja eignir félagsins á heimsvísu svo að koma mætti þeim í verð. Þá greindi Wall Street Journ- al frá því á föstudag að nýir stjórnendur FTX hefðu þegar rekið þrjá af æðstu stjórnendum rafmyntakauphallarinnar: með- stofnandann GaryWang, yfir- verkfræðinginn Nishad Singh og Caroline Ellison sem stýrði Alameda Research, fjárfestinga- félagi FTX. ai@mbl.is l Tíu stærstu kröfuhafar FTX eiga inni 1,45 milljarða dala FTX hefur tiltekt AFP/Joe Raedle Víða FTX hafði m.a. gert kostunar- samning við íþróttahöllina sem hýsir körfuboltaliðið Miami Heat.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.