Morgunblaðið - 21.11.2022, Page 11

Morgunblaðið - 21.11.2022, Page 11
FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022 11 Meiraprófsnámskeið á ensku Nánari upplýsingar: www.okuland.is Hefst 28. nóvember Jólasmákökur og heitt kakó fyrir jólabörn fram að jólum Gildir fyrir 10 ára og yngri í fylgd með fullorðnum „Það er auðvitað með algjörum ólík- indum að fylgjast með og verða vitni að þessum einstæða árangri Arnaldar, ekki bara hérlendis heldur ekki síður erlendis þar sem hann hefur trónað á efstu sætum metsölulista um allan heim,“ segir Egill Örn Jóhannsson, bókaútgefandi hjá Forlaginu. Egill vísar þar til talna um sölu á bókum spennusagnahöfundarins Arn- aldar Indriðasonar. Nýlega var greint frá því að Arnaldur hefði selt um 18 milljónir bóka á heimsvísu á ferli sín- um sem spannar nú aldarfjórðung. Það eru hreint ótrúlegar tölur. „Ég fæ ekki betur séð en hann hafi selt meira en aðrir íslenskir glæpa- sagnahöfundar til samans á erlendri grundu og þannig mætti segja að hann hafi að nokkru leyti dregið vagninn,“ segir Egill Örn enn fremur. Þrír íslenskir spennusagnahöf- undar skera sig úr hvað vinsældir varðar. Auk Arnaldar hafa þau Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson notið mikilla vinsælda. Síðustu ár hef- ur sala á bókum Ragnars úti í heimi aukist til muna. Yrsa hefur nú selt um 5,8 milljónir bóka á heimsvísu og Ragnar hefur selt 3,4 milljónir eintaka. „Ragnar hefur selt gríðarlega á síðustu þremur árum erlendis ogmunar þar auðvitað mest um að hann var um tíma með þrjár af mest seldu bókum Þýskalands í sömu vikunni og er eini íslenski höf- undurinn sem hefur komið bók inn á metsölulista Sunday Times. Þá nýtur hann gríðarlegra vinsælda í Frakk- landi,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti/Veröld. Hann segir að Yrsa hafi frá upphafi ferils síns notið mikilla vinsælda, til að mynda í Þýskalandi. „Bók hennar, Bráðin, er til að mynda búin að vera í tíu vikur samfleytt á metsölulista Spiegel nú í haust,“ segir Pétur Már enn fremur. Þegar allt er talið hafa þessir þrír höfundar selt ríflega 27 milljónir ein- taka af bókum sínum á heimsvísu. Morgunblaðið tók saman sölu á bók- um þeirra árið 2019 og þá höfðu þau þrjú nýverið rofið 20 milljón eintaka múrinn. Sjö milljónir eintaka á þrem- ur árum til viðbótar er hreint ekki svo slæmt. Þar af hefur Arnaldur bætt við sig 3,6 milljónum eintaka, Yrsa um 800 þúsund bókum og Ragnar hefur bætt við sig 2,4 milljónum eintaka. lVinsælustu höfundarnir hafa samtals selt 27 milljónir bóka Halda áframað mokaút krimmum Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Arnaldur Indriðason 26 bækur á 26 árum. 18 milljón eintök seld á heimsvísu. 580 þúsund eintök seld á Íslandi. Yrsa Sigurðardóttir 24 bækur á 25 árum. Þar af eru 6 barnabækur og 18 glæpasögur. 5,8 milljón eintök seld á heimsvísu. 230 þúsund eintök seld á Íslandi. Ragnar Jónasson 14 bækur á 14 árum. 3,4 milljón eintök seld á heimsvísu. 95 þúsund eintök seld á Íslandi. Ótrúleg velgengni íslenskra krimmahöfunda Vinsældir Spennusagnahöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir, Ragnar Jónas- son og Arnaldur Indriðason hittust á bókmenntahátíðinni Iceland Noir. AFP/Joseph Eid Hlýnun Ráðstefnunni COP27 lauk í gær en fulltrúar frá um 200 ríkjum komu saman til að ræða leiðir til að sporna gegn loftslagsbreytingum. COP27 að hluta til vonbrigði lLoftslagshamfarasjóður samþykktur Loftslagsráðstefnunni COP27, sem fór að þessu sinni fram í Egypta- landi, lauk í gær eftir tvær vikur af viðræðummilli þeirra 200 ríkja sem tóku þátt í ráðstefnunni. Anna Hulda Ólafsdóttir, yfir- maður skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands, segir niðurstöðu ráð- stefnunnar vera hálfgerð von- brigði þótt margt gott hafi átt sér stað. Anna var ein af þeim Íslendingum sem sóttu ráðstefnuna en alls lögðu á fimmta tug Íslendinga leið sína þangað. „Það var talað um þessa ráðstefnu sem ráðstefnu innleiðinga en maður hefði viljað sjá fleiri og stærri skref. Þessi loftlagshamfarasjóður er í raun sögulegur og það er nýr vinkill á þessi loftslagsmál að bæta því við,“ segir Anna en undir lok ráðstefnunn- ar var samþykkt að stofna umrædd- an sjóð. Sjóðnum er ætlað að aðstoða þjóðir í viðkvæmri stöðu við að bregðast við afleiðingum loftslags- breytinga sem að sögn Önnu geta haft ýmsar birtingarmyndir. Hún nefnir sem dæmi flóðin í Pakistan en þúsundir manna hafa látið lífið sökum þeirra. Að hennar mati er frábært að sjóðurinn hafi verið stofnaður en þó bendir hún á að á honum séu ýmsir annmarkar. Hún segir það ekki nægi- lega skýrt hvernig sjóðurinn verður fjármagnaður en hún telur það verkefni mjög flókið. „Það er talað um að ríkari og þróaðri lönd eigi að borga brúsann fyrir vanþróuð lönd en þá þarf að hugsa út í hversu stór hluti hamfaranna er vegna loftslags- breytinga.“ Hún segir vonbrigðin yfir ráð- stefnunni felast að mestu leyti í takmarkaðri áherslu á losunarmál. Hún segir þá að sem betur fer hafi viðmið í samningnum um að takmarka hnattræna hlýnun við 1,5 gráðu haldist en um tíma var útlit fyrir að viðmiðið gæti mögulega hækkað. Þrátt fyrir þetta mark- miðsákvæði í samningnum segist Anna ekki sjá fram á það hvernig ríki heimsins ætli að ná settu markmiði. Hún segir vanta að ríkin samþykki beinar aðgerðir til að hægja á hlýn- un. Þá kveðst hún einnig afar ósátt við að ekki hafi náðst samstaða um að festa í samningi ríkjanna að hætta notkun jarðefnaeldsneytis í skrefum. Helst því textinn í samningi ríkjanna óbreyttur og er einungis samþykkt að draga úr notkun kola. Í samhengi við mótstöðuna við að minnka notkun jarðefnaeldsneytis segist Anna hafa fundið fyrir hags- munatengslum hjá mörgum þeim sem sóttu ráðstefnuna. Þrátt fyrir vonbrigði segir Anna ráðstefnuna mikilvæga og að hún sé alltaf til góðs. Segist hún vonast eftir áhrifameiri ákvörðunum á næstu loftlagsráðstefnu, COP28, en hún segist ekki mjög bjartsýn á að svo verði. COP28 fer fram að ári liðnu í Dúbaí. Anna segir það vekja ýmsar spurningar að ráðstefnan fari fram á stað sem var byggður upp á við- skiptummeð jarðefnaeldsneyti. Að hennar mati er mikilvægt að skýra hamfarasjóðinn á næstu ráðstefnu og auka fjárveitingar til loftslagsmála. Tómas Arnar Þorláksson tomasarnar@mbl.is Anna Hulda Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.