Morgunblaðið - 21.11.2022, Side 25

Morgunblaðið - 21.11.2022, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022 DÆGRADVÖL 25 Dekton er mjög slitsterkt og rispuþolið borðplötuefni. Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is HÁTT HITAÞOL Steindór bjó lengst af á Sölvhólsgötu 10 í Reykjavík. Börn Jakobínu og Rúnars eru 1) Jakob Rúnarsson, f. 8.1. 1957, vélstjóri, búsettur í Kópavogi. Hann er giftur Rannveigu Guðmundsdóttur og saman eiga þau Guðbjörgu, Guðmund Steinþór, Rúnar og Gunnar Jökul; 2) Guðrún Lilja Rúnarsdóttir, f. 23.5. 1960, kennari, búsett í Hafnarfirði. Hún er gift Elvari Guðjónssyni og saman eiga þau Ásgeir Yngva, Arnar. Pálma og Brynjar Smára; 3) Vignir Guðbjörn Rúnarsson, f. 18.12. 1965, skíðakennari og bílstjóri, búsettur í Reykjavík; 4) Gunnar Rúnarsson, f. 4.9. 1967, framkvæmdastjóri, búsettur í Reykjavík. Dóttir hans, Erna Líf, f. 11.4. 1991, lést á síðasta ári; 5) Benedikt Hans Rúnarsson, f. 18.2. 1970, öryggis- og gæðastjóri, búsettur í Garðabæ. Hann er giftur Rebekku Helgu Sveinsdóttur og eiga þau saman Valdísi Björk og Söru Björk. Systkini Jakobínu voru Kristjana Sigrún Jakobsdóttir, f. 20.2. 1928, d. 17.5. 1958, húsmóðir í Reykjavík; Kon- ráð Guðmundur Jakobsson, f. 13.5. 1929, d. 14.1. 2022, framkvæmdastjóri í Hnífsdal; Erna Guðbjörg Bene- diktsdóttir, f. 16.3. 1930, d. 28.7. 2017, húsmóðir á Akranesi; Ásta Þór- gerður Jakobsdóttir, f. 20.9. 1930, d. 2.1. 2014, vann í fiskvinnslu og var bókavörður á Tálknafirði; Steinþór Jakobsson, f. 7.11. 1931, d. 19.5. 1996, skíðakennari í Colorado, Bandaríkj- unum, og Katrín Svanfríður Halldórs Jakobsdóttir, f. 17.7. 1934, d. 3.8. 1935. Foreldrar Jakobínu voru hjónin Jakob Gíslason, f. 3.12. 1897, d. 22.5. 1959, skipstjóri á Ísafirði, og Guðbjörg Hansdóttir, f. 22.8. 1907, d. 16.7. 1971, húsfreyja, síðast bús. í Reykjavík. Jakobína Valdís Jakobsdóttir Guðrún Guðmundsdóttir vinnukona í Ögursveit og á Ísafirði Guðmundur Hallvarðsson bóndi á Hrafnabjörgum, síðar vinnumaður í Ögursveit Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja á Hrafnabjörgum Benedikt Hans Benediktsson bóndi á Hrafnabjörgum í Laugardal í Ísafjarðardjúpi Guðbjörg Hansdóttir húsfreyja á Ísafirði Hansína Kristín Andrésdóttir húsfreyja á Hrafnabjörgum Benedikt Bjarnason bóndi á Hrafnabjörgum Þorgerður Hannesdóttir húsfreyja í Tungumúla Jakob Aþaníusson hreppstjóri og sagnaþulur í Tungumúla á Barðaströnd Ásta Þorgerður Jakobsdóttir ráðskona á Patreksfirði Gísli Kristjánsson trésmiður í Reykjavík Anna Jónsdóttir húsfreyja á Barmi Kristján Einarsson bóndi á Barmi í Djúpafirði í Gufudalssveit Ætt Jakobínu Valdísar Jakobsdóttur Jakob Gíslason skipstjóri á Ísafirði Vísnahorn Fór og Gróa á Leiti Pétur sonur minn sendi mér póst og segir að það sé gaman að glugga í meistara- lega þýðingu Péturs Gunnars- sonar á Játningunum eftir Jean-Jacques Rousseau sem komin er út fyrir jólin. Í neðan- málsgrein þessarar opinskáu og bersöglu sjálfsævisögu segir Pétur frá Súsönnu Bernard, móður Rousseaus, sem teiknaði, söng og lék undir á lútu, var lestrarhestur og orti vísur. Og framhaldið á erindi við lesendur Vísnahornsins: „Þessari kastaði hún fram um fjarveru bróður síns og eiginmanns þar sem hún var á göngu með mágkonu sinni og börnum þeirra tveim: Tveir eru þeir sem við söknum sárt sómapiltar á allan hátt; yndislegir elskhugar; eiginmenn og fullhugar.“ Helgi R. Einarsson segir, að stundum sé skotið fast: Ábending Það gæti verið gaman að grennast, sagði daman góðmeð sig og góndi' ámig með glettnissvip í framan. Hér er ein skrítin Fór á fætur seint og fór því með það leynt, svo fór sér hjá er fór á krá og fór því ekki beint. Á Boðnarmiði segir Pétur Stefánsson að við skulum hefja daginn á þessum tveim vísum: Reynduæ að segja satt þó sáralitlu breyti. Margur hefur farið flatt að fylgja Gróu á Leiti. Heldur skrýtinævin er, enn ég bölva og kvarta. Ekki ganga allir hér auðnuveginn bjarta. Hér hefur Látra-Björg róið til fiskjar: Sendi drottinnmildurmér minn á öngul valinn flyðru þá, sem falleg er, frek hálf þriðja alin Bið ég höddur blóðugar, þó bregði upp faldi sínum, Ránardætur reisugar, rassi að vægjamínum. Andófs þéttan eigum sprett, það eykur setta pínu. Við höfum rétt á Riflaklett rakið slétta línu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „VIÐ SKULUM ÁTTA OKKUR Á ÞVÍ, FRÚ MÍN GÓÐ, AÐ ALLT Í ÞESSARI BÚÐ VERÐUR BIKINÍ Í ÞÍNUM AUGUM.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að finna það sem þú leitar að. VELKOMIN Í KALD- HÆÐNIKLÚBBINN VIÐ ERUM SVAKA GLÖÐ AÐ SJÁ ÞIG, JÓN PABBI, HVERNIG ER LÍFIÐ? ÞÚ TEKUR ÞAÐ GÓÐA OG ÞAÐ SLÆMA… OG LÆTUR SVO VEÐSALANA UM AÐ SORTERA! „OG ÞAÐ VAR ÞÁ SEM RANN UPP FYRIR MÉR „HVERS VEGNA AÐ TAKMARKA SIG VIÐ LEIÐSÖGUHUNDA?““ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.