Morgunblaðið - 21.11.2022, Page 26

Morgunblaðið - 21.11.2022, Page 26
ÍÞRÓTTIR26 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022 „Sóley Margrét Jónsdóttir vann til silfurverðlauna í +84kg flokki á HM í kraftlyftingum í Viborg í Danmörku á laugardaginn. Sóley lyfti 275 kg í hnébeygju og fékk gullverðlaun í þeirri grein. Í bekkpressu lyfti hún 190 kg og setti um leið Íslandsmet en það dugði þó einungis til bronsverðlauna. Í réttstöðulyftu lyfti hún svo 180 kg. Samanlagt lyfti hún 645 kg sem skilaði henni öðru sæti. „ Íslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik mætir Ungverjalandi í umspili um laust sæti á HM 2023 sem fer fram í Danmörku, Noregi og Svíþjóð á næsta ári. Fyrri leikurinn fer fram á Íslandi 7. eða 8. apríl og sá síðari 11. eða 12 í Ungverjalandi. Ungverjar hafa átt fast sæti á undan- förnum stórmótum en liðið stóð meðal annars uppi sem Evrópumeistari árið 2000 í Rúmeníu. Ungverjar unnu til silfurverðlauna á HM 2003 í Króatíu og til bronsverðlauna á HM 2005 í Rússlandi. Ungverjaland hefur verið á meðal þátttökuþjóða á síðustu fimm heimsmeistaramótum en liðið hafnaði í 10. sæti á síðasta heimsmeistaramóti sem fram fór á Spáni í fyrra. „Færeyski knattspyrnumaðurinn Patrik Johannesen er að ganga til liðs við Íslandsmeistara Breiðabliks. Þetta tilkynnti leikmaðurinn í samtali við færeyska miðilinn Roysni.fo eftir vináttulandsleik Færeyja og Kósovó í Pristinu á laugardaginn. Í frétt fær- eyska miðilsins kemur meðal annars fram að Patrik sé búinn að semja um kaup og kjör við Blika. Framherj- inn, sem er 27 ára gamall, var lykilmaður í liði Keflavíkur á síð- ustu leiktíð. Hann skoraði 12 mörk í 22 leikjum með liðinu en hann lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Færeyjar árið 2017 og á að baki 12 A-landsleiki. „Franski knattspyrnumaðurinn Karim Benzema verður ekki með Frökkum á heimsmeistaramótinu í Katar sem hófst í gær eftir að hafa meiðst á læri á æfingu franska liðsins um helgina. Þetta er mikið áfall fyrir franska liðið Ósannfærandi í úrslitaleik Ljósmynd/KSÍ Skalli Fyrirliðinn Aron Elís Þrándarson í baráttunni gegn varnarmönnum Lettlands í Riga um helgina en hann var að leika sinn 17 A-landsleik. lTókst ekki að nýta sér liðsmuninn FÓTBOLTI Jökull Þorkelsson jokull@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fagnaði sigri á Eystrasaltsmótinu en Ísland vann Lettland í víta- spyrnukeppni í úrslitaleik á Daugava-vellinum í Riga í Lett- landi á laugardaginn. Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska liðsins, gerði heilar átta breytingar á byrjunarliði sínu frá leiknum gegn Litháen í undanúrslitum mótsins á fimmtudag. Reynsluboltarnir Aron Einar Gunnarsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Birkir Bjarnason og Sverrir Ingi Ingason sátu allan tímann á varamannabekk íslenska liðsins og komu ekkert við sögu í úrslitaleiknum. Raimondos Krollis, leikmanður Lettlands, fór aftan í Daníel Leó Grétarsson á 28. mínútu og dóm- arinn dæmdi aukaspyrnu. Nokkru síðar, eftir að hafa hugsað sig um, rak hann sóknarmanninn svo af velli. Vægast sagt umdeildur dómur þar á ferð og íslenska liðið því ein- um manni fleiri það sem eftir lifði leiks. Á 62. mínútu leiksins fékk íslenska liðið svo víti. Þá gaf Mikael Anderson fyrir markið og Arnór Sigurðsson skallaði fyrirgjöf hans beint í höndina á Raivis Jurkovskis, varnarmanni Letta. Á punktinn steig Ísak Bergmann Jóhannesson sem skaut ofarlega hægra megin. Steinbros í marki Letta var í boltanum en það dugði ekki til og staðan orðin 1:0, Íslandi í vil. Ísland skoraði aðeins úr vítum Sex mínútum síðar varð mikill vandræðagangur í varnarleik Íslands þegar fyrirliðinn Aron Elís Þrándarson átti alltof fasta sendingu á Stefán Teit Þórðarson og þaðan barst boltinn til Janis Ikaunieks. Hann þræddi svo sam- herja sinn Andrejs Ciganiks í gegn sem afgreiddi boltann í þaknetið. Eftir jöfnunarmark Letta skiptust liðin á að halda boltanum en Ísland skapaði sér hættulegri færi. Engin fleiri mörk voru þó skoruð og um vítakeppni að ræða. Þar fóru fyrstu fimmtán vítin í netið en Patrik Sig- urður Gunnarsson í marki Íslands varði frá Antonijs Cernomordijs og tryggði Íslandi sigur.. Frammistaða íslenska liðsins á laugardaginn var ekki nægilega góð. Að vera manni fleiri í meira en 62 mínútur og spila ekki betur en þetta, má bæta. Og þrátt fyrir að Ísland hafi skapaði sér mun fleiri færi, og mörg þeirra afar góð, þá virðist markaskorun vera liðinu erfið en þetta er aðeins annað mark landsliðsins í síðustu fimm leikjum, og ekki um erfiðustu and- stæðingana að ræða. Þrátt fyrir að skapa sér góð færi var spila- mennska liðsins heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir. Sama hverj- ar aðstæðurnar eru, þá á Ísland að geta stjórnað leik gegn Lettlandi, hvað þá manni fleiri, mun betur. Varnarleikurinn var heilt yfir fínn en svona klaufaleg mistök eru ekki í boði, vilji íslenska liðið ná ár- angri í undankeppni EM sem hefst næsta vor. Ekkert mark úr opnum leik á þessu móti veldur einnig áhyggjum. Aftur á móti voru leikmenn Íslands öruggir í sínum vítaspyrnum og eins og áður var nefnt skapaði Ísland sér mun fleiri færi en Lettland og hefði getað klárað leikinn mun fyrr, en hversu oft ætlum við að segja það? Fyrsti sigur Hauka í tæpa tvo mánuði Andri Már Rúnarsson skoraði 8 mörk fyrir Hauka þegar liðið vann 38:28-stórsigur gegn ÍBV í úrvalsdeild karla í handknattleik, Olísdeildinni, á Ásvöllum í Hafnarfirði í 10. umferð deildarinnar á laugardaginn. Þetta var fyrsti sigur Hauka undir stjórn Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar og fyrsti sigur liðsins í deildinni síðan 22. september þegar liðið vann Selfoss á Ásvöllum. Elmar Erlingsson var markahæstur Eyjamanna með 10 mörk, þar af sjö úr vítaköstum.  Þá átti Einar Rafn Eiðsson stórleik fyrir KA þegar liðið vann 31:30-sigur gegn Fram í Úlfarsárdal en Einar Rafn skoraði 12 mörk í leiknum. Þetta var fyrsti sigur KA í deildinni síðan 6. október og þá var þetta fyrsta tap Framara síðan 3. október.  Grótta og Hörður gerðu svo 27:27-jafntefli í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi þar sem Jakob Ingi Stefánsson skoraði 6 mörk fyrir Gróttu og Óli Björn Vilhjálmsson 6 mörk fyrir Hörð. Þetta var fyrsta stig Harðar í deildinni á tímabilinu en Grótta hefur unnið tvo leiki á tímabil- inu og gert tvö jafntefli. Morgunblaðið/Óttar Geirsson AdamHaukur Baumruk var öflugur hjá Haukum og skoraði fimmmörk. Sterkur sigur ÍBV í Úlfarsárdalnum HrafnhildurHannaÞrastardóttir átti stórleik fyrir ÍBVþegar liðið vann sterkan 27:25-útisigur gegn Fram í úrvalsdeild kvenna í hand- knattleik, Olísdeildinni, í Fram- húsinu íÚlfarsárdal í 7. umferð deildarinnar á laugardaginn. Fram- arar voru sterkari í fyrri hálfleik og leiddu 16:13 í hálfleik en ÍBVkomst yfir, 23:22, þegar tíumínútur voru til leiksloka og lét forystuna ekki af hendi eftir það. Hrafnhildur gerði sér lítið fyrir og skoraði 11mörk, þar af sjö úr vítaköstumogBirna BergHaraldsdóttir skoraði 7mörk. Tamara Jovicevic og Steinunn Björnsdóttir skoruðu 6mörk hvor fyrir Fram. LiljaÁgústsdóttir var markahæst hjáVal þegar liðið vann 28:26-sigur gegnKA/Þór í Origo-höllinni áHlíðarenda. Lilja skoraði 9mörk enValskonur voru með yfirhöndina allan tímann og leiddu 14:10 í hálfleik. Thea Imani Sturludóttir skoraði 6mörk fyrir Val en LydíaGunnþórsdóttir var markahæstAkureyringameð 8 mörk. Þá skoraði Elísabet Gunnars- dóttir 8mörk fyrir Stjörnuna þegar liðið vann öruggan sigur gegn Selfossi í Set-höllinni á Selfossi. Leiknum laukmeð 33:24-sigri Garð- bæinga en staðan í hálfleik var 17:11, Stjörnunni í vil. DarikaZecevic varði 11 skot ímarki Stjörnunnar og varmeð 38%markvörslu enKatla MaríaMagnúsdóttir varmarka- hæst Selfyssingameð 7mörk. BerglindBenediktsdóttir skoraði 9mörk fyrirHauka þegar liðið vann 35:27-sigur gegnHKá Ásvöllumþar semHaukar leiddu með einumarki í hálfleik, 16:15. Sonja Lind Sigsteinsdóttir og Elín KlaraÞorkelsdóttir skoruðu 7mörk hvor fyrirHauka enValgerðurÝr Þorsteinsdóttir varmarkahæst í liði HKmeð 6mörk. Morgunblaðið/Óttar Geirsson 11Hrafnhildur Hanna Þrastardótt- ir fór á kostum fyrir Eyjakonur. Subway-deild karla: Haukar – ÍR .............................................. 93:73 KR – Valur................................................ 77:110 Breiðablik – Njarðvík.............................. 91:88 Staðan: Valur 6 5 1 545:492 10 Breiðablik 6 5 1 630:589 10 Keflavík 5 4 1 458:434 8 Haukar 6 4 2 550:525 8 Grindavík 5 3 2 411:406 6 Njarðvík 6 3 3 515:480 6 Höttur 5 3 2 425:419 6 Tindastóll 5 2 3 400:405 4 Stjarnan 5 2 3 418:434 4 ÍR 6 1 5 472:536 2 KR 6 1 5 569:643 2 Þór Þ. 5 0 5 488:518 0 1. deild kvenna: Hamar/Þór – KR...................................... 84:76 Spánn Real Betis – Zaragoza.......................... 67:83  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 3 stig fyrir Zaragoza, tók sex fráköst og gaf eina stoðsendingu á 11 mínútum. B-deild: Forca Lleida – Alicante....................... 82:75 Ægir Már Steinarsson skoraði 2 stig fyrir Alicante, tók þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu á 19 mínútum. Estudiantes – Oviedo ......................... 90:60 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var ekki í leikmannahópi Oviedo. Litháen Gargzdai – Rytas Vilnius.................... 81:99  Elvar Már Friðriksson skoraði 14 stig fyrir Rytas Vilnius, tók eitt frákast og gaf þrjár stoðsendingar á 20 mínútum. Ítalía Brindisi – Pesaro ................................. 74:102  Jón Axel Guðmundsson skoraði 10 stig fyrir Pesaro, tók eitt frákast og gaf þrjár stoðsendingar á 25 mínútum. Þýskaland B-deild: Nürnberg –Münster ........................... 59:54  Hilmar Pétursson skoraði 6 stig fyrir Münster, tók þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu á 22 mínútum. Eystrasaltsbikar karla Úrslitaleikur, leikið íRiga: Lettland – Ísland.......................................... 7:8 (1:1) Undankeppni EM U-19 karla Riðill í Skotlandi: Frakkland – Ísland.............................................. 2:0 Skotland – Kasakstan......................................... 5:2  Frakkland 6 stig, Ísland 3, Skotland 3, Kasakstan 0. HM karla A-RIÐILL: Katar – Ekvador.................................................. 0:2 England WestHam–Leicester ...................................... 1:0 Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinnmeð West Ham. C-deild: Fleetwood –Bolton............................................ 1:2  Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem vara- maður hjá Bolton á 63. mínútu. Þýskaland Bikarkeppnin, 16-liðaúrslit: Duisburg –BayernMünchen ....................... 0:7 Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinnmeð BayernMünchen, Cecilía Rán Rúnarsdóttir var ekki í hóp og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er meidd. Nürnberg –Wolfsburg .................................... 0:6  Sveindís Jane Jónsdóttir lék allan leikinn meðWolfsburg, skoraði eitt mark og lagði upp annað. Ítalía Parma–Juventus.............................................. 1:2  Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn með Juventus og skoraði sigurmarkið. ACMilan –Como............................................... 3:3 Guðný Árnadóttir lék allan leikinnmeð AC Milan. Fiorentina – InterMílanó..............................0:0 Alexandra Jóhannsdóttir kom inn á sem varamaður hjá Fiorentina á 18. mínútu. Anna Björk Kristjánsdóttir sat allan tímann á varamannabekk InterMílanó. C-deild Trento –VirtusVerona .................................. 0:2 Emil Hallfreðsson lék fyrstu 89mínúturnar með Virtus Verona. Frakkland Bordeaux –París SG........................................ 0:3 Berglind Björg Þorvaldsdóttir var ekki í leikmannahóp París SG. Belgía B-deild: Beerschot –ClubBrugge ................................ 1:0 Nökkvi Þeyr Þórisson lék allan leikinnmeð Beerschot. Svíþjóð Fyrri leikurumsæti í úrvalsdeildinni: Uppsala –Bromapokjarna .............................0:1 Andrea Thorisson lék fyrstu 90mínúturnar með Uppsala.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.