Morgunblaðið - 06.12.2022, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022
Þegar skoðaðar eru
fréttir frá hinum
stærstu fjölmiðlum á
Vesturlöndum má oft
sjá nákvæmlega sama
orðalagið í fyrirsögn-
unum. Þetta er sér-
lega áberandi í frétt-
um um loftlagsmál,
leiðtogakosningar,
appelsínugulu upp-
reisnirnar í mús-
limalöndum fyrir nokkrum árum,
gulu vestin í Frakklandi, útlend-
ingamál, Covid, bólusetningar og nú
síðast stríðið í Úkraínu.
Samkvæmt rannsóknarstofnun í
Sviss, Swiss Policy Research, sem
rannsakar alþjóðamál og fjölmiðla,
koma flest allar vestrænar fréttir
frá aðeins þremur fréttaveitum:
Reuters, Agence France-Presse
(AFP) og Associated Press (AP). Að
þetta sé ástæðan fyrir því að fréttir
séu svo oft samhljóma sem raun ber
vitni. Vandamálið er að þessar
fréttaveitur eru ekki lengur hlut-
lausir aðilar eins og þegar þær voru
stofnaðar, heldur allar komnar í
eigu einkaaðila með ákveðin mark-
mið í huga.
Peter Phillips fjölmiðla- og
stjórnmálafræðiprófessor við
Sonoma-háskóla í Kaliforníu og
teymi hans hafa rannsakað sam-
setningu frétta og niðurstaða þeirra
er að 80 prósent af öllum fréttum
koma frá almannatengslafyrir-
tækjum sem vinna fyrir stórfyrir-
tæki, ríkisstjórnir, hernaðar- og
leyniþjónustur og hina ofurríku sem
sitja árlega í Davos og ræða framtíð
mannkynsins. Þetta kemur fram í
grein hans: Að selja heimsvalda-
stefnu, stríð og kapítalisma: Al-
mannatengsl og áróðursfyrirtæki
þjóna auðvaldinu, þ.e.a.s. teknókra-
tísku auðvaldsstjórninni (Selling
Empire, War and Capitalism: Pu-
blic Relations Propaganda Firms in
Service to the Transnational Capi-
talist Class).
Samkvæmt Peter Phillips „stend-
ur heimurinn á okkar tímum
frammi fyrir áróðurs-, hernaðar-,
iðnaðar- og fjölmiðlaheimsveldi svo
öflugu og flóknu, að sannleikurinn
um alþjóðaviðburði er falinn hjá
meirihluta fréttaveitna,
upplýsingum hagrætt
eða sleppt með öllu.“
Þetta var árið 2017.
Stærstu fréttastöðv-
arnar flytja ekki lengur
hlutlausar fréttir, held-
ur einhliða áróður með
ákveðið markmið í
huga. Sannleikanum er
hagrætt til að leiða at-
hygli almennings frá
því sem raunverulega
er að gerast, mótrök
markvisst þögguð niður
og lítið gert úr þeim sem tala gegn
hinni einu viðurkenndu skoðun.
Til að kasta ryki í augu almenn-
ings er allt sem stangast á við hin
samþykktu skilaboð kallað fals-
upplýsingar.
Þessar þrjár stærstu fréttaveitur
AP, AFP og Reuters hafa í mörg ár
verið sjálfskipaðir „hliðverðir sann-
leikans“, sía út óæskilegar fréttir og
margfalda áróður þegar svo ber
undir.
Árið 2019 ákvað BBC að bæta um
betur og stofna Trúverðuga frétta-
framtakið eða Trusted News Initia-
tive í félagi við aðrar stórar frétta-
veitur og tæknirisa. Opinbera
markmiðið var að „standa vörð um
lýðræðislegar kosningar og spyrna
gegn falsupplýsingum sem ógna lífi
fólks.“
Ástæðan var of mikil skrif um
ókosti bóluefna og nota bene þetta
var áður en umræðan um Covid
tröllreið öllu. Að þeirra sögn var
magn „falsupplýsinga“ á netinu orð-
ið óviðráðanlegt og nauðsynlegt að
grípa inn í strax.
Helstu félagar í samtökunum eru
auk BBC, AP, AFP, CBC/Radio-
Canada, European Broadcasting
Union (EBU), Facebook, Financial
Times, First Draft, Google, The
Hindu, The Nation Media Group,
Meta Microsoft, Reuters, Reuters
Institute for the Study of Journal-
ism, Twitter, The Wall Street
Journal og The Washington Post.
Félagar láta hvern annan vita af
hættulegum upplýsingum til að
minnka líkurnar á að þeir óafvitandi
birti þær. Á lokuðum spjallvett-
vangi geta fréttamenn ráðfært sig
við aðra innan samtakanna, auk ár-
legra ráðstefna til hnykkja enn
frekar á stefnunni. Með öðrum orð-
um er þetta ritskoðun á heims-
mælikvarða og þannig hefur þeim
tekist að þagga niður vísindalega
gagnrýni.
Alvöru vísindamenn vita að vís-
indi byggjast á því að spyrja nýrra
spurninga og halda áfram að leita
að nýjum niðurstöðum. Vísindi sem
ekki eru í endurskoðun staðna og
með þeim staðnar samfélagið og af-
leiðingin er fáfræði og hnignun.
Eitt helsta markmið framtaksins
var að yfirtaka umræðuna um bólu-
efni og mála í jákvæðara ljósi. Það
tókst svo sannarlega nokkrum mán-
uðum síðar, þegar bóluefnin urðu
„bjargvættur mannkynsins gagn-
vart kórónavírusnum“. Þess ber
geta að fyrirtækið Pfizer styrkir
marga fréttatíma á stóru miðlunum
og hefur því bein áhrif á hvað þar
kemur fram.
Það er ekki lengur hægt að leita á
Google eftir upplýsingum, því
Google sýnir bara það sem búið að
samþykkja hjá Trúverðugu frétta-
veitunni.
Íslenskir fjölmiðlar fá sem sagt
allt erlent efni frá fréttaveitum þar
sem 80% koma beint frá PR fyrir-
tækjum eða svokölluðum hugsana-
veitum, Think tanks, í eigu auðjöfra.
Það er því ekki skrítið að frétta-
tímarnir beri keim af því.
Blaðamenn fá ekki lengur að
sinna hlutverki sínu, að veita yf-
irvöldum aðhald og vekja athygli al-
mennings á því sem er raunveru-
lega að gerast í heiminum, heldur
birta í staðinn orðréttar fréttatil-
kynningar frá aðilum sem hafa ekki
hagsmuni mannkynsins í huga.
Það sem áður var kallað samsær-
iskenning er nú orðinn veruleiki og
það er kominn tími til að við förum
að vakna.
Trúverðuga fréttaframtakið
Hildur
Þórðardótttir
Hildur Þórðardótttir
» Árið 2019 ákvað
BBC að stofna Trú-
verðuga fréttaframtakið
í félagi við stærstu fjöl-
miðla og tæknirisa til að
sporna gegn falsupp-
lýsingum.
Höfundur er rithöfundur.
hildur.thordardottir@gmail.com
Ef ég væri Satan,
ef væri ég Satan,
prins myrkurs
umvefði veröldina
svartmyrkri.
Ég ætti öll
heimsins gæði,
fjórar af fimm sálum
um veröld víða.
Ég tæki yfir Ísland,
land ljóssins.
Ég hvísla í eyru með
rógstungu snáksins,
líkt og ég hvíslaði
forðum að Evu: Gerðu sem
hugur þinn girnist.
Guði úthýst úr kirkjum,
skólastofum, dómsölum,
Alþingi, mannheimum.
Verð þó ekki sæll fyrr en fæ
epli úr aldingarðinum:
Þig!
Svo geng ég til verka,
þjóðinni ég kenni að
hafa eftir mér í bæn:
Faðir vor, þú sem ert í 101 Reykjavík.
Rithöfundum ég kenni
að skrifa hrollvekjur,
glæpasögur, svo allt annað
dæmist snautlegt pár.
Klíkur mínar selja ginnkeyptum
dóp, ríkið sér um áfengið,
fjöldinn sefjaður með pillum.
Hjúkkur munda vaksínsprautur
við undirsöng ræningjanna
í Kardimommubænum:
Og allt í lagi eins og vera ber,
en um það fátt við ræðum.
Ef ég væri Satan væru
fjölskyldur í innbyrðis erjum,
kirkjan í innbyrðis deilum,
þjóðin í innbyrðis átökum,
þjóðir í endalausum styrjöldum,
veröld plöguð af plágum,
mannkyn beygt til undirgefni.
Framvarðasveitir mínar
ausandi olíu á eld
innprenta og dáleiða.
Ég hvísla að ungviðinu
að Biblían sé goðsögn.
Ég kenni að maðurinn sé
skapari Guðs, en ekki öfugt.
Ég hvísla að slæmt sé gott
og háttvísi púkó.
Ef ég væri Satan
spilla skólar ungum huga
og vanrækja aga.
Krakkar andskotast
þar til fyrr en varir
svartklæddir öryggisverðir
með þefandi sporhunda
vakta skólalóðir.
Glæpaklíkur berast
á banaspjót,
fangelsi troðfyllast.
Kirkjan boðar sálfræði
í stað trúar
og helgar vísindin.
Biskup selur skrípó
af Jesú svífandi um
transheima.
Flaskan tákn jóla,
egg tákn páska.
Ég tæli forstöðumenn
og klerka
að misnota
drengi og stúlkur,
stela digrum sjóðum.
Ég, Satan, blinda og blekki.
Hverju veðjar þú ég fái ekki
ginnt Háskólann í veðbransa,
breiðveg fátækra til auðæfa.
Vinnusemi og ættjarðarást
skal kastað á haugana.
Ég tek frá þeim sem eiga
og gef þeim sem þrá,
þar til ég hef drepið í dróma
frumkvæði hins framsækna.
Ég sannfæri unga fólkið;
hjónaband gamaldags,
framhjáhald æsandi,
klám spennandi.
Ég afklæði yngismeyjar á torgum,
tæli í rúmið og smita
ólæknandi sjúkdómum.
Með öðrum orðum: ef ég væri Satan,
þá héldi ég mig við verklag hans.
Ef ég væri Satan, ef væri ég Satan.
(Hallur Hallsson, á aðventu 2022)
Paul Harvey [1919-2009], banda-
rískur útvarpsmaður, flutti við-
vörun til landa sinna árið 1965: If I
were the Devil. Satan þrífst í
myrkrinu og hylur slóð sína. Ef ég
væri Satan sækir innblástur í ávarp
Harveys fyrir tæpum 60 árum. Árið
2005 var Harvey sæmdur banda-
rísku frelsisorðunni, æðsta heiðri
sem bandarískum þegn hlotnast.
Upprunalega ávarpið er varðveitt
og finna má fjölmörg hljóð- og
myndskeið.
Ef ég væri Satan
Hallur Hallsson
Hallur Hallsson
» Bandarískur út-
varpsmaður flutti
viðvörun til landa sinna
árið 1965: If I were the
Devil. Kvæði þetta, Ef
ég væri Satan, sækir
innblástur í ávarpið.
Höfundur er fyrrverandi
blaðamaður Morgunblaðsins.
hson@simnet.is
Fasteignir
STIGA
ST5266 P
40 ár
á Íslandi
Hágæða
snjóblásarar
Fjölbreytt úrval
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
VETRARSÓL er umboðsaðili
Gulltryggð gæði
Velkomin
í okkar hóp!
jsb.is
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Vertu í Toppformi með
okkur í vetur
Alltaf hægt að byrja
Komdu í frían prufutíma
FYRIR ALLAR
KONUR
JSBrækt
alltaf!