Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 25
Fjölskylda
Eiginkona Helga er Þóra Ellen
Þórhallsdóttir, f. 22.6. 1954, prófessor
við Háskóla Íslands. Þau eru búsett
í Reykjavík, lengst af á Aragötu,
æskuheimili Helga. Foreldrar Þóru
voru hjónin Þórhallur Tryggvason, f.
21.6. 1917, d. 17.2. 2008, bankastjóri, og
Ester Pétursdóttir, f. 27.12.1922, d. 3.1.
1996, húsmóðir og röntgenfræðingur.
Þau voru búsett í Reykjavík.
Börn Helga og fyrrverandi konu
hans, Hrefnu Kristmannsdóttur, f.
20.5.1944, jarðefnafræðings, eru 1)
Svanhildur Helgadóttir, f. 5.1. 1971,
nemi og leikskólakennari, búsett á
Seltjarnarnesi; 2) Björn Helgason, f.
18.9. 1974, kvikmyndatökumaður, bú-
settur í Reykjavík, og 3) Ásdís Helga-
dóttir, f. 5.1. 1984, dósent í vélaverk-
fræði við HÍ, búsett á Seltjarnarnesi.
Maki hennar er Elías Sigþórsson og
börn þeirra eru Hrefna Sif Elíasdótt-
ir f. 3.1. 2017 og Helgi Þór Eíasson,
f. 29.12. 2019. Börn Helga og Þóru
eru 4) Þórhallur, f. 11.11. 1990, nemi
í stærðfræði og söngvari, búsettur
í Reykjavík. Dóttir hans er Soffía
Ellen Freydísardóttir Þórhallsdóttir,
f. 12.1. 2018; 5) Valgerður, f. 11.1. 1995,
sálfræðinemi og söngvari, búsett í
Reykjavík. Maki hennar er Ragnar
Jóhannsson söngvari og dóttir þeirra
er Sigrún Þóra Ragnarsdóttir, f. 17.3.
2020.
Systkini Helga: Hólmfríður, f. 16.3.
1934, d. 16.5. 2011, ritari; Sveinbjörn,
f. 28.10. 1936, fyrrverandi prófessor
og háskólarektor; Sigfús, f. 25.3.
1938, fyrrverandi prófessor; Ólafur
Grímur, f. 6.1. 1944, læknir og fræði-
maður. Hálfbróðir Helga samfeðra er
Hörður, f. 5.5. 1948.
Foreldrar Helga voru hjónin Björn
Sigfússon, f. 17.1. 1905, d. 9.5. 1991,
háskólabókavörður, og Droplaug
Sveinbjarnardóttir, f. 28.5. 1912, d.
29.7. 1945, húsfreyja. Stjúpmóðir
Helga var Kristín Jónsdóttir, f. 6.9.
1913, d. 2.12. 1999, húsfreyja.
Helgi
Björnsson
Margrét Bjarnadóttir
húsfreyja í Laxárholti
Jón Ólafsson
bóndi og kennari í Laxárholti
í Hraunhrepppi á Mýrum
Jóhanna Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja í Viðvík
Sveinbjörn Guðmundsson
bóndi, trésmiður og sjómaður
í Viðvík við Stykkishólm
Droplaug Sveinbjarnardóttir
húsfreyja á Grettisgötu 46, Reykjavík
Kristín Jóhannesdóttir
húsfreyja í Jónsnesi
Guðmundur Ólafsson
bóndi í Jónsnesi í Helgafellssveit, Snæf.
Hólmfríður Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Kálfaströnd
Halldór Sigurðsson
bóndi á Kálfaströnd í Skútustaða-
hreppi, S-Þing.
Kristbjörg Halldóra Halldórsdóttir
húsfreyja á Stóru-Reykjum og í Múla
Sigfús Bjarnarson
bóndi á Stóru-Reykjum í Reykja-
hverfi og í Múla, Aðaldal, S.-Þing.
Hólmfríður Matthildur Pétursdóttir
húsfreyja á Granastöðum
Björn Magnússon
bóndi og trésmiður á
Granastöðum í Kinn, S.-Þing.
Ætt Helga Björnssonar
Björn Sigfússon
háskólabókavörður á
Aragötu 1, Reykjavík
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022
DÆGRADVÖL 25
Vísnahorn
Á svörtum föstudegi
ÁBoðnarmiði yrkir Pétur Stef-
ánsson og kallar „Heima“:
Maki og faðir og afi ég er,
alkunnur vísnarokkur.
Eigandi bíls og húsbóndi hér
og helvíti góður kokkur.
Lærði égmagnaðamatarlist
hjámatreiðsluhetjunni Jóni.
Ennþá hefi ég enganmisst
úr eitruðumatartjóni.
Aftur eftir Pétur:
Hef ég fyrir því vísan vott
að vonska er öll til baga.
Við skulum læra að gera gott
og gera það alla daga.
„Svartur föstudagur“ eftir
Sigurlín Hermannsdóttur:
Það er eins og föstudagur freyði
og fossi gylliboð um ótal margt.
Þámargur telur bera vel í veiði
að versla svart.
Og verslunarmenn segja verðið
lækkað
á vörum sínum, rosalega skart
(þótt sumar virðist áður hafa
hækkað)
nú höndla svart.
Enginn fer aðmissa núnamóðinn
ogmikilsvert að ná í frábært start.
Inn í Kringlu komin hálf er þjóðin
að kaupa svart.
Hér eru limrurnar Hrak-
fallabálkur eftir Jón Jens Krist-
jánsson:
Þá endaði annar kafli
enn reyndust brögð í tafli
því stórbóndinnmerki
var staðinn að verki
og stunginnmeð hníf og gaffli
HannTeitur sem tittlinga drap
er tindraði stjörnuhrap
mændi á Höllu
ogmissti af öllu
mest fyrir asnaskap
Vladimir vaknaði í bítið
virtist þaðmörgum skrítið
gekk út að spá
en geispaði þá
golunni fyrir lítið
Vandræði voru hjá Loga
og vatninu hellt milli troga
skeytti hann ei reiður
um skömmeða heiður
en skaut sig í fótinnmeð boga
Sturla Friðriksson yrkir um
skordýrafræðing:
Hann úðar og eitrinu spýr
í allskonar skaðræðisdýr,
enmaðkur ogmelur
þámjakast í felur
og undan í ofboði flýr.
„VIÐ HÖFUM BARA VERIÐ GIFT Í SEX
MÁNUÐI OG HÚN ER STRAX FARIN AÐ
HEIMTA NÝJAN KJÓL“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga litla
svefnpurku.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ER ALGER
NAGLI!
EKKI SATT? ÞÚ ERT AÐ
SPYRJA
KÖTT
VIÐ ERUM FÖST Í SAMA
HJÓLFARINU! VIÐ ÞURFUM
TILBREYTINGU! PARÍS,
HÉR KEM ÉG!
Æ, GÓÐI GLEYMDU ÞESSU!HVERT ERTU
AÐ FARA?
UPP
NIÐUR
NORÐUR
OG NIÐUR
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is