Morgunblaðið - 06.12.2022, Page 32
Í lausasölu 822 kr.
Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr.
PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr.
Sími 569 1100
Ritstjórn ritstjorn@mbl.is Auglýsingar augl@mbl.is
Áskrift askrift@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is
ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 340. DAGUR ÁRSINS 2022
MENNING
Leika Beethoven og Franck í kvöld
Sif Margrét Tulinius fiðluleikari og Richard Simm
píanóleikari halda tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík
í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 19.30. Á efnisskránni eru
„einhverjar af fegurstu sónötum tónbókmenntanna
sem skrifaðar hafa verið fyrir fiðlu og píanó. Við
hefjum efnisskrána á Rómönsu eftir
Beethoven sem hann sam
lega fyrir fiðlu og hljóms
hér flutt í útsetningu Ric
Simms. Næst er sónata
fiðlu og píanó eftir Césa
og er þessi tónsmíð han
það tónverk sem notið h
mestra vinsælda og er e
perlum tónbókmenntann
ir fiðlu og píanó. Við ljúk
efnisskránni á hinni mög
Kreutzer-sónötu Beetho
sem samin var árið 1803
segir í tilkynningu frá fly
endum. Miðar fást á tix.i
og við innganginn.
di upphaf-
veit en er
hards
fyrir
r Franck
s án efa
efur
in af
a fyr-
um
nuðu
vens
,“
tj-
s
ÍÞRÓTTIR
Rúnar rétti maðurinn fyrir okkur
„Rúnar var akkúrat rétti maðurinn fyrir okkur. Hann
hefur ekki komið með neina töfralausn, heldur fært
ró yfir mannskapinn. Hann hefur einfaldað leikinn
okkar,“ segir Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í
handknattleik, sem hefur farið á kostum með Leipzig
í Þýskalandi en liðið hefur unnið alla sína leiki eftir að
Rúnar Sigtryggsson tók við sem þjálfari fyrir nokkrum
vikum.» 27
Laugavegi 178, 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | misty.is
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.10-14
Þú færð
hjá okkur
Haldari 10.950 kr.
Buxur 4.950 kr.
Áhugafólk um sálmasöng kemur
saman í plötuversluninni 12 tónum
á Skólavörðustíg klukkan 20 til 22
í kvöld, á degi heilags Nikulásar 6.
desember, til að syngja og skemmta
sér. „Við verðum með jólasálma og
fólk getur líka fengið sér hressingu,“
segir sr. Sveinn Valgeirsson dóm-
kirkjuprestur og tekur sérstaklega
fram að viðburðurinn tengist ekki
safnaðarstarfinu.
Kirkjugestir taka almennt ekki
eins mikið undir söng í kirkjum og
áður, að sögn Sveins. Margt hafi
verið reynt til að auka hann og þetta
gæti verið einn liður í þeirri viðleitni
að snúa þessu aftur við. Gott sé
að koma saman utan hefðbundins
kirkjustarfs og syngja saman sálma.
„Þetta er ein aðferð til að fá fólk til
að syngja í kirkjuathöfnum síðar
meir, því tilfellið er að það er gaman
og hollt að syngja sálma,“ segir hann
um sálmasönginn og minnir á að
Lúter hafi sótt sum lög við sálma
sína út á krá!
Sálmasöngshópurinn hefur
þrisvar áður komið saman á krá.
Sveinn segir að stundirnar hafi
mælst vel fyrir og ánægjulegt hafi
verið að sjá ný andlit í hvert sinn.
„Greinilegt er að margir kunna
að meta þetta og finnst gaman að
syngja sálmana.“
Árstíðin hefur áhrif á söngvaval
kvöldsins. „Við ætlum að syngja
aðventu-, jóla- og áramótasálma en
þó ekki Heims um ból,“ segir Sveinn.
„Uppáhaldsáramótasálmur minn er
„Sem stormur hreki skörðótt ský“
eftir Jean Sibelius og við tökum
hann auk annarra.“
Engir stælar
Sálmabandið leikur undir en í því
eru Sigmundur Sigurðarson gítar-
leikari, Ása Briem harmonikuleikari,
Jón Ívars gítar- og mandólínleikari,
Telma Rós Sigfúsdóttir víóluleikari,
Elísabet Indra Ragnarsdóttir fið-
luleikari og Sveinn Valgeirsson, sem
spilar á kontrabassann Barrabass.
„Hann er eins og nafni hans – það
er erfitt að ná taki á honum,“ segir
Sveinn. Bætir við að hann hafi verið
sendur í tónlistarskóla sem krakki
en sprungið á limminu eins og svo
margir aðrir. Nýr heimur hafi opn-
ast fyrir sér síðar og hann komist að
því að hægt væri að spila ýmislegt
skemmtilegt á píanó. „Ég byrjaði
svo að spila á hljóðfæri í bílskúrs-
bylgjunni í Kópavogi 1980,“ rifjar
hann upp. „Þá spilaði ég á orgel Jóns
Sigurðssonar bankamanns, föður-
bróður Sigmundar, og var í bandi
með nokkrum strákum. Við vorum
ekki merkilegir, eiginlega grátlega
lélegir, þótt sumir þeirra hafi verið
fyrirtaks hljóðfæraleikarar, en ég
pikkaði upp gítar upp úr því. Ég
hef lengi gutlað á gítar og píanó án
þess að taka miklum framförum en
mestu skiptir að ég hef gaman af
því. Þetta er sjaldnast til útflutnings,
en bassinn er þægilegri enda hef ég
vit á því að taka bara eitt slag á takt.
Er ekki með neina stæla.“
Ný sálmabók var tekin í notkun
um miðjan nóvember. „Nú eru bók-
stafshljómar með og það breytir öllu
fyrir okkur gítargutlarana,“ segir
Sveinn. „Þessar hljómsetningar eru
mjög vel heppnaðar.“
Sveinn segir að vísvitandi sé langt
á milli þess að fólki sé hóað saman
til að syngja sálma. „Næst komum
við kannski saman með vorinu, því
þetta má ekki vera of oft. Það verður
að vera nýjabrum að þessu. Við byrj-
uðum fyrir covid og það sem kemur
merkilega á óvart er að jarðarfarar-
sálmarnir virka sérstaklega vel.
Sálmar sem tala sterkt til manns.
Sögurnar þar ná vel til okkar eins og
gjarnan er með sálma.“
lAðferð til að fá fólk til að syngja í kirkjuathöfnum
Hópur fólks syngur
sálma í plötuverslun
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ljósmynd/Jónína Lýðsdóttir
Sálmabandið Sigmundur Sigurðarson, Ása Briem, Sveinn Valgeirsson, Telma Rós Sigfúsdóttir og Jón Ívars.