Morgunblaðið - 20.12.2022, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022
Rað- og smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning 21x125mm, panill
10x85mm, pallaefni 21x145mm,
21x140, 90x21mm, útihurðir
5,4cmx210cm (80,90 og 100cm) o.fl.
Eurotec skrúfur, Penofin og Arms-
trong Clark harðviðarolíur.
NÝKOMIÐ BANKIRAI
HARÐVIÐUR 21X145MM VERÐ
1.950 KR LENGDARMETERINN
slétt beggja megin fasað og
ofnþurrkað. Lengdir frá 2.44 metrar
upp í 5,50 metrar.
Upplýsingar hjá Magnúsi á
magnus@vidur.is og í símum
6600230 og 5611122, og frá 10-14 á
Indus ,Óseyrarbraut 2 Hafnarfirði.
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Erlent hand-
verksfólk kl. 10-12. Handavinna kl. 12-16. Jólabíó kl. 13. Hádegismatur
kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600.
Boðinn Pílukast kl. 9, brids og kanasta kl. 13. Sundlaugin opin til kl.16
Bústaðakirkja Félagsstarfið er komið í jólafrí, við hittumst aftur á
nýju ári miðvikudaginn 11. janúar. Guð gefi ykkur gleðileg jól og
áramót. Starfsfólk Fossvogsprestakalls.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11.
Prjónað til góðs kl. 8:30-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl.
9:45-10. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-
13:10. Bónusrútan kl. 13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Bókabíllinn
kl. 14:45.
Garðabær Kl. 9 pool-hópur í Jónshúsi, kl. 10 ganga frá Jónshúsi, kl.
11 stóla-jóga í Sjálandsskóla, kl. 13.45-15.15 kaffiveitingar í Jónshúsi.
Gjábakki Opin handavinnustofa og verkstæði frá kl. 8.30 til 16.
Heilsu-Qi-gong er komið í jólafrí en hefst aftur strax í byrjun janúar.
Opin handavinnustofa og verkstæði kl. 8.30 til 16.
Gullsmári Leikfimi, virkni og vellíðan kl. 13. Annað félagsstarf er
komið í jólafrí.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8:30-10:30. Aðventa
Gunnars Gunnarssonar, fyrri hluti, upplestur á vinnustofu kl. 10. Brids
kl. 13. Hádegismatur kl. 11:30–12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum
áður.
Korpúlfar Borgum Botsía kl. 10 Helgistund kl. 10:30. Leikfimishópur
í Egilshöll kl. 9:30 og kl. 11. Spjallhópur í Borgum kl. 13. Gleðin býr í
Borgum.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffikrókur og
spjall á Skólabraut frá kl. 9.
✝
Erna Aðalheið-
ur Guðjóns-
dóttir fæddist á
Eskifirði 25. mars
1941. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 10. des-
ember 2022.
Erna var einka-
barn Guðjóns Ein-
arssonar, sjómanns
og síðar verka-
manns og verk-
stjóra, f. 16.6. 1901, d. 6.3. 1982,
og Halldóru Guðnadóttur hús-
móður, f. 29.7. 1909, d. 21.11.
1989.
Árið 1962 gekk Erna að eiga
Eirík Sævar Bjarnason frá Nes-
kaupstað, f. 1942, d. 1979. Þau
höfðu kynnst þegar hann sótti
mótorvélstjóranámskeið á Eski-
firði, en foreldrar hans voru
Bjarni Þórðarson, f. 1914, d.
1982, og Anna Eiríksdóttir, f.
1918, d. 1975. Erna og Eiríkur
bjuggu á Eskifirði og þar stofn-
aði hann ásamt öðrum útgerð-
arfélagið Hafölduna sem gerði
út tvo samnefnda báta. Hann var
Erna flutti suður til Reykja-
víkur árið 1981 með þáverandi
sambýlismanni sínum, Helga V.
Guðmundssyni, f. 1938. Sonur
þeirra er Agnar Freyr, f. 8.4.
1982, dósent í stjórnmálafræði
við Háskóla Íslands. Kona hans
er Katrín Þórdís B. Thorsteins-
son, f. 1982. Börn þeirra eru tví-
burasysturnar Anna Vigdís og
Birna Elísabet, f. 2012, og Ernir,
f. 2017.
Erna gekk í Barna- og ung-
lingaskóla Eskifjarðar og fór
síðan í Húsmæðraskólann á
Laugalandi í Eyjafirði. Þar fékk
hún mikinn áhuga á matargerð
og bakstri sem síðan var alla tíð
ástríða hennar. Á meðan Erna
bjó á Eskifirði starfaði hún við
ýmislegt, en hæst ber að nefna
síldarsöltun, sem var mikil upp-
grip fyrir þær konur sem voru
duglegar og handfljótar og það
var hún svo sannarlega. Erna
hafði fallega söngrödd og söng
bæði með hljómsveit á unglings-
árum sínum og eins í leikritum,
en hún lék í þeim mörgum á
æskustöðvunum. Þá var hún fé-
lagi í Eskjukórnum í nokkur ár.
Í Reykjavík vann Erna á leik-
skólanum Seljaborg til fjölda
ára.
Útför Ernu fer fram frá Selja-
kirkju í dag, 20. desember 2022,
klukkan 13.
framkvæmdastjóri
félagsins, en síðar
einnig vélstjóri á veg-
um þess og fórst 30.
apríl 1979, þá aðeins
37 ára gamall, við
sjötta mann með
þriðja bátnum sem
það gerði út, Hrönn
SH 149.
Erna og Eiríkur
eignuðust tvö börn: 1)
Guðjón Ingi, f. 8.10.
1961, kennari við Grunnskóla
Seltjarnarness og eigandi Bóka-
útgáfunnar Hóla. Kona Guðjóns
er Sigríður Helgadóttir, f. 1961.
Börn þeirra eru fjögur: Erna Ýr,
fædd á afmælisdegi ömmu sinn-
ar og nöfnu, 1986, Katrín Helga,
f. 1988, Halldóra Hrund, f. 1992,
og Bjarni Þór, f. 2002. Maður
Halldóru er Algerich Dc Fader-
an, f. 1990, og eiga þau tvö börn:
Aþenu Sofíu Hrund, f. 2019, og
Erik Nóa, f. 2022. 2) Anna Her-
dís, f. 11.5. 1968, stuðnings-
fulltrúi hjá Ási styrktarfélagi.
Maður Önnu er Einar Hermann
Einarsson, f. 1977.
Helgina sem mamma veiktist
stóð til að ég og ömmustelpurn-
ar Anna og Birna mættum í
Strandaselið og lærðum loksins
að baka piparkökur að hætti
mömmu – eina af sortunum sem
hún hefur bakað fyrir hver ein-
ustu jól áratugi aftur í tímann.
En það varð aldrei, því elsku
mamma var farin viku síðar.
Ég var nokkuð óvænt viðbót
við lífið hjá mömmu, en hún var
orðin rúmlega fertug þegar hún
eignaðist mig. Leiðir hennar og
pabba skildi fljótlega eftir það
og mamma varð einstæð móðir.
Anna systir bjó lengi vel með
okkur, en seinna bjuggum við
mamma ein saman. Og lífið var
ekki alltaf auðvelt. Mamma
gerði sitt besta til að láta enda
ná saman og var ósjaldan í
tveimur, ef ekki þremur störf-
um á sama tíma. Hún var nefni-
lega algjör dugnaðarforkur. Á
tímabili vann hún fullt starf á
leikskólanum Seljaborg, kom
heim eftir vinnu, sótti mig og
tók svo strætó niður í Hlíða-
hverfi þar sem hún vann við að
þrífa eftir daginn hjá endur-
skoðunarfyrirtæki. Þrátt fyrir
þetta dugðu launin ekki alltaf út
mánuðinn. Þá kom sér vel hvað
mamma var úrræðagóð og flink
í því að gera mikinn mat úr litlu.
Mamma var líka með
eindæmum gjafmild og óeigin-
gjörn. Í þau skipti sem fjárhag-
urinn batnaði þá fóru pening-
arnir oftar en ekki í að gleðja
mig, systkini mín og barnabörn-
in hennar. Og þó hún hafi vafa-
laust ekki alltaf haft orku til
þess, þá gaf hún sér alltaf tíma
til að hlúa vel að fólkinu í kring-
um sig. Þegar ég var yngri las
hún mikið fyrir mig, spilaði á
spil og gerði leik úr heimanám-
inu. Þegar ég varð eldri þá
sýndi hún áhugamálum mínum
alltaf mikinn áhuga og vakti til
dæmis með mér fram á rauða-
nótt til að horfa á úrslitakeppn-
ina í NBA og bakaði súkkulaði
Rice Crispies-kökur til að njóta
á meðan. Ef dagurinn hafði ver-
ið erfiður hjá mér, þá gat hún
hresst mig við með eggjabrauði
og kakómalti í kvöldmatinn.
Eftir að ég og Kata eignuð-
umst Önnu, Birnu og Erni, sem
nefndur er í höfuðið á Ernu
ömmu sinni, skipaði hún stóran
sess í lífi þeirra. Hún var alltaf
reiðubúin til að passa, veita
þeim einlæga athygli og fé-
lagsskap, segja sögur, kenna
þeim leiki frá æskuárunum á
Eskifirði og knúsa og kyssa.
Það sýndi sig líka, því öll voru
þau einstaklega náin henni og
voru ekki feimin við að sýna
henni hversu mikilvæg hún var
þeim.
Það er margt sem ég mun
sakna. Ég mun sérstaklega
sakna þess að koma til hennar í
kaffi og fá vöfflur, lummur,
möndluköku eða hvað það var
sem hún hafði bakað þann
morguninn og spjalla um allt
milli himins og jarðar. Ég mun
líka sakna þess að njóta góðra
stunda með henni um jólin. Um-
fram allt mun ég samt sakna
þess að finna þann kærleik og
hlýju sem hún umvafði barna-
börnin með og syrgja það að
hún hafi ekki fengið meiri tíma
til að sjá þau vaxa úr grasi.
Það er sárara en hægt er að
koma í orð að þurfa að kveðja
mömmu núna. Eftir stendur
óendanlegt þakklæti fyrir allt
sem hún gaf mér, Kötu, ömmu-
stelpunum Önnu Vigdísi og
Birnu Elísabetu og ömmu-
stráknum Erni. Minning hennar
lifir áfram í hjörtum okkar.
Agnar Freyr (Aggi).
Elsku mamma! Þetta gerðist
svo snöggt. Allt í einu varstu
bara farin og það á aðventunni,
jólakonan sjálf. Við trúum þessu
varla enn þá. Við ætluðum að
eiga svo notaleg jól saman, ekki
síst vegna þess að þau síðustu
voru okkur svo erfið sökum al-
varlegra veikinda í fjölskyld-
unni. En þá kom kallið. Eftir
sitjum við í sorginni og vitum
það eitt að jólin án þín verða
okkur erfið. Hugur okkar verð-
ur hjá þér. Þú varst kletturinn í
lífi okkar og studdir okkur og
stappaðir í stálinu ef á þurfti að
halda. Líka eftir að við kom-
umst á fullorðinsár. Oftast var
það yfir rjúkandi kaffibolla og
stundum var nýbakað bakkelsi
ekki langt undan. Hjálpsemi þín
var einstök á svo margan hátt.
Það var gaman að sjá hvernig
barnabörnin hændust að þér, þú
áttir í þeim hvert bein. Svo
höfðu tvö barnabarnabörn bæst
í hópinn á undanförnum árum
og það eldra vissi alveg hvar þú
geymdir súkkulaðirúsínurnar.
Það er ekki auðvelt að skrifa
um þig. Það væri hægt að segja
svo margt. Um hlýjuna þína,
umhyggjusemina, sönghæfileik-
ana, húmorinn og dillandi hlát-
urinn, sem ómaði svo oft um
íbúðina þína í Strandaselinu. Já,
þar var mikið hlegið og við eig-
um eftir að sakna þess.
Að leiðarlokum er þakklæti
okkur efst í huga. Þakklæti fyr-
ir að hafa átt þig sem mömmu.
Þú varst best!
Anna Herdís og
Guðjón Ingi.
Amma, elsku besta Erna
amma okkar.
Í dag er komið að kveðju-
stund, þeirri miklu og erfiðu
stund. En hvernig í ósköpunum
eigum við að kveðja þig, konuna
sem hefur spilað eina stærstu
og mikilvægustu rulluna í lífi
okkar barnabarnanna? Við
huggum okkur þó við allar
dásamlegu minningarnar sem
við höfum eignast í gegnum tíð-
ina.
Amma, þegar við hugsum til
þín þá sjáum við þig öll í eldhús-
inu, auðvitað við hrærivélina að
töfra fram ómótstæðilegu tert-
urnar þínar og kökurnar sem þú
hafðir einstaka hæfileika til að
baka og skreyta, svo þær urðu
eins og listaverk. Ef eitthvert
okkar þurfti tertu eða köku
vegna fjáröflunar, veislu eða
bara til að gleðja vini eða vinnu-
félaga varstu alltaf fyrst til að
bjóða fram hjálp þína.
Fjölskyldan öll beið alltaf í
ofvæni eftir afmælisveislum,
jólaboðum eða bara laugardags-
morgnum til að fá að bragða það
sem þú varst að baka og einnig
að fá hjá þér rjúkandi BKI-
kaffibolla sem tók okkur alltaf
inn í daginn.
Við systkinin erum öll miður
okkar að eiga ekki lengur erindi
í Strandasel 5 til þess að heim-
sækja þig og drekka með þér
morgun- eða eftirmiðdagsboll-
ana og hvað þá að fá ekki frá þér
símtal eða Facebook-skilaboð,
þau voru ómissandi partur af
deginum eins og þú varst ómiss-
andi partur af lífi okkar allra.
Við elskum þig og söknum þín.
Ljós þitt lifir í hjörtum okkar.
Sjáumst í Sumarlandinu, þú
hellir upp á!
Þín barnabörn,
Erna Ýr, Katrín Helga,
Halldóra Hrund og
Bjarni Þór.
Erna Aðalheiður
Guðjónsdóttir✝
Danía Árna-
dóttir fæddist í
Reykjavík 27. febr-
úar 1958. Hún lést
á Landspítalanum
4. desember 2022.
Foreldrar henn-
ar voru Árni Ein-
arsson kaupmaður,
f. 8 nóvember 1931,
d. 3. janúar 2019,
og Guðrún Lillý
Ásgeirsdóttir, f. 29
janúar 1933, d. 1. nóvember
2007.
Systkini Daníu eru Ásgeir, f.
1951, Inga, f. 1958, Bryndís, f.
1962, Danfríður, f. 1963, Mar-
grét, f. 1965.
Börn hennar eru: 1) Árni
Heiðar, f. 25. september 1975,
giftur Ernu Sigrúnu Jónsdóttur,
f. 21. ágúst 1975, börn þeirra:
Snæfríður Lillý, f. 17. maí 2004,
og Sigurbjörg Danía, f. 23.
ágúst 2009. 2) Guðrún Lillý, f.
13. desember 1981, börn henn-
ar: Natan Breki, f. 22. mars
2005, og Júlía Kristín, f. 22. júní
2009. 3) Hjörtur, f. 16. apríl
1988, barn: Alexander Tryggvi,
f. 18. desember
2009. 4) Róbert, f.
19. febrúar 1991. 5)
Bjarki, f. 23. ágúst
1993, í sambúð með
Sylvíu Ósk Her-
mannsdóttur, f. 24.
október 1994, barn
þeirra: Karín Lilja,
f. 15. júní 2022.
Danía ólst upp á
Fálkagötu 11 í
Vesturbæ Reykja-
víkur, gekk þar í Melaskóla og
seinna Hagaskóla. Hún vann við
ýmis verslunarstörf, meðal ann-
ars hjá Brauðbæ og Karnabæ.
Danía varð móðir ung og fór
tími hennar að mestu í uppeldi
barna sinna. Hún var mjög
barngóð og var það ekki furða
þegar hún gerðist dagmóðir ár-
ið 1983, en hún starfaði sem slík
í 31 ár.
Danía hafði mjög gaman af
því að prjóna, sauma og ferðast
en hún ferðaðist víða bæði með
börnum og vinum.
Útför verður gerð frá Graf-
arvogskirkju í dag, 20. desem-
ber 2022, kl. 13.
Á fögrum sunnudegi í desem-
berbyrjun kvaddi mamma þenn-
an heim. Hún var yndisleg móðir,
tengdamamma og amma allt í
senn. Hún var hjartahlý og var
fjölskyldan henni sérstaklega
mikilvæg.
Hún ólst upp í Vesturbænum í
stórum systkinahópi og þar var
margt brallað sér til skemmtun-
ar. Hún var aðeins 17 ára þegar
hún átti mig og fjölskyldan henn-
ar öll tók virkan þátt í uppeldinu
á litla guttanum. Á þessum árum
vann mamma mikið, meðal ann-
ars í tískuvöruverslunum og var
hún alla tíð vel tilhöfð og hafði
mikinn áhuga alla tíð á bæði tísku
og að halda heimilinu fallegu.
Mamma var lífsglöð og kát og
minningarnar streyma fram úr
minningabankanum. Megnið af
uppvaxtarárunum áttum við
systkinin fimm heima í Laugar-
neshverfinu. Mamma kenndi mér
muninn á réttu og röngu en tók
samt ávallt einnig málstað minn
og hafði sterka réttlætiskennd.
Ég man eftir því þegar við
bjuggum í Skipasundinu og mig
langaði að gleðja mömmu og sleit
upp alla túlípana nágrannans og
færði henni stoltur. Nágranninn
varð auðvitað æfur þegar upp
komst um góðverkið og skamm-
aði mig. Mamma arkaði með mig
skömmustulegan til þess að biðj-
ast afsökunar á atvikinu en jafn-
framt las hún yfir nágrannanum
fyrir að skamma drenginn henn-
ar svona harkalega. Þau eru
mörg atvikin sem koma upp í
hugann og minningarnar ylja.
Lungann af starfsævinni starf-
aði hún sem dagmóðir og var
heimilið undirlagt af barnadóti
og litlum börnum sem hún gætti
og kom hún þannig að uppeldi
fjölda barna á fyrstu æviárum
þeirra.
Erna minnist tengdamóður
sinnar með miklum hlýhug og var
mjög kært á milli þeirra mömmu
frá fyrstu kynnum okkar. Þegar
fyrsta barnabarnið kom í heim-
inn á Ísafirði var mamma mætt
með næstu vél og voru ófá skiptin
sem hún passaði fyrir okkur
stelpurnar okkar þegar þær voru
litlar. Hún var stolt af sínu fólki
og hafði alltaf mikinn áhuga á
öllu því sem dætur okkar tóku
sér fyrir hendur, alveg fram á
síðasta dag. Þeim þótti undur-
vænt um ömmu í Mosó, eins og
þær kölluðu hana alltaf. Stelp-
urnar minnast sérstaklega góðu
áranna í Mosó, fallega garðsins,
göngutúranna og ótal gistinátt-
anna og samverustunda.
Endar nú dagur, en nótt er nær,
náð þinni lof ég segi,
að þú hefur mér, Herra kær,
hjálp veitt á þessum degi.
Þó augun sofni aftur hér
í þér mín sálin vaki.
Guðs son, Jesús, haf gát á mér,
geym mín svo ekkert saki.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson)
Við yljum okkur við góðar
minningar sem munu fylgja okk-
ur um ókomin ár.
Hvíl í friði elsku mamma.
Árni, Erna, Snæfríður Lillý
og Sigurbjörg Danía.
Með þessu ljóði um mannsæv-
ina kveð ég bróðurdóttur mína
sem kvaddi þetta líf allt of fljótt.
Ævi mannsins er sem blær
í okkar heimi,
líkast því sem lind fram streymi,
ljósaskiptin höfug dreymi.
Morgunroðinn merlar tinda
muna fagur,
fram svo líður lífsins dagur,
leikur þar á ýmsu hagur.
Að loknum degi lífið hvíld
og lausnir gefur,
náðar tjöldum nóttin vefur,
náinn hinsta blundinn sefur.
(Jón Hjörleifur Jónsson)
Ég þakka fyrir bros og gleði
sem þú gafst um leið og ég sendi
ástvinum Daníu mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Jóna Einarsdóttir.
Danía Árnadóttir
Okkar ástkæri
JÓN OTTI SIGURÐSSON
tæknifræðingur,
Norðurbakka 11a, Hafnarfirði,
lést á Sólvangi föstudaginn 16. desember.
Starfsfólki Sólvangs færum við okkar
innilegustu þakkir fyrir alla góðvild og umhyggju sem honum var
sýnd síðustu mánuði. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 6. janúar klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á líknarsjóð Oddfellowa og Parkinsonsamtökin.
Ragnheiður Aðalsteinsdóttir Sigurður Jón Jónsson
og fjölskyldur