Morgunblaðið - 20.12.2022, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.12.2022, Blaðsíða 13
FRÉTTIR Erlent 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 BANDARÍKIN Flestir vildu annan forstjóra Twitter Frá því að Elon Musk keypti Twitter hefur fyrirtækið staðið í storm- inum miðjum vegna endur- skipulagningar sem endaði með fjölda- uppsögnum í kjölfar frétta um að fyrirtækið tapaði 4 milljónum dollara á dag. Musk hefur sætt mikilli gagn- rýni frá því hann tók við stjórn Twitter og um helgina setti hann könnun af stað á Twitter um hvort hann ætti að stíga til hliðar sem forstjóri fyrirtækisins og sagðist hlíta niðurstöðun- um. 57,5% sögðu já, en tæplega 17,5 milljónir manna tóku þátt í könnuninni. Eftir að úrslit könnunarinnar urðu ljós hefur Musk ekki tjáð sig um málið. Var könnunin sett fram í fljótfærni? hefur Lúkasjenkó leyft rússneska hernum að æfa í Hvíta-Rússlandi en ekki viljað taka beinan þátt í átökunum. Á fundinum í gær sagði hann að Hvíta-Rússland og Rúss- land myndu „enn á ný sýna … að aðeins saman geta þjóðirnar tvær unnið bug á faröldrum, krísum og refsiaðgerðum“. Það er kannski ekki skrýtið miðað við ummælin að stjórnvöld í Kænugarði hafi áhyggj- ur af samráði þjóðanna tveggja og kannski ekki síst að Rússar komist þar nær Kænugarði ef þeir gera árás frá Hvíta-Rússlandi. Betri loftvarnir Selenskí sagði í gær að landamæri Úkraínu við Rússland og Hvíta-Rúss- land væru í stöðugum forgangi og að her Úkraínu byggi sig stöðugt undir mismunandi varnaraðgerðir vegna yfirvofandi árása. Á fundi Sameinuðu viðbragðssveitarinnar í Riga í Lett- landi í gær talaði Selenskí við leið- togana í gegnum fjarfundarbúnað og bað um betra loftvarnakerfi, sem myndi vernda landið 100%. Á fundin- um var m.a. Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra fultrúi Íslands, ásamt fulltrúum Bretlands, Eystrasalts- landanna, Hollands, Finnlands, Sví- þjóðar og Noregs. Í tilkynningu fyrir fundinn frá forsætisráðuneyti Rishi Sunaks í Bretlandi var greint frá 250 milljóna punda samningi um kaup á vopnum fyrir Úkraínu út árið 2023. Hann sagði síðan í opnunarávarpi fundarins í Riga að allar einhliða óskir Rússa um vopnahlé væru „al- gjörlega tilgangslausar í núverandi samhengi“ og eingöngu settar fram svo Rússar gætu notað tímann til að safna liði. Hann bætti við að eingöngu væri hægt að semja við Rússa ef þeir drægju sig frá hernumdu svæðunum. Varnarmálaráðuneyti Breta tel- ur að óreyndir nýliðar í rússneska hernum séu settir í framlínu stríðs- átakanna án stuðnings. Málaliðarnir í Wagner-hópnum sendi þá af stað í Bakhmút í Dónetsk-héraði með lít- inn ef nokkurn stuðning brynvarðra farartækja á meðan reyndari her- menn séu í vari og gefi skipanir í gegnum fjarskiptatæki. Á sama tíma hafa yfirvöld í Moskvu ákveðið að senda rússneskum hermönnum handgerðar gjafir til að reyna að afla herrekstrinum meira fylgis og kveikja í þjóðernisandanum sem er farinn að minnka eftir tíu mánuði. Rússar hafa sent flota herskipa til æfinga með sjóher Kína í Aust- ur-Kínahafi sem hefjast á morgun og standa fram að 27. desember. Kín- verjar hafa stigið varlega til jarðar þegar kemur að yfirlýsingum en sýna enn Rússlandi stuðning. „Ég heyrði fyrst í loftvarnasíren- unum rjúfa þögnina í morgunsárið og hugsaði með mér að nú væri enn ein drónaárásin. Þetta er eiginlega í fyrsta skipti sem ég verð virkilega hrædd,“ segir Natalía Dobróvolska, sem er 68 ára og býr í Kænugarði, við blaðamann AFP-fréttastofunn- ar. Hún segist hafa heyrt fjölda sprenginga áður en rafmagnið fór af byggingunni hennar. Yfirvöld í Kænugarði segja að 23 drónaárásir hafi verið gerðar fyrir sólarupprás í Kænugarði í gær og 35 árásir á landinu öllu. Þau segja að loftvarnir þeirra hafi náð að varna því að 20 drónanna næðu jörðu, en meðal drónanna voru Shaheds-drón- ar sem búnir eru til í Íran og hefur rignt yfir Úkraínu á undanförnum vikum. Borgarstjóri Kænugarðs, Vítalí Klitsjkó, segir að enginn hafi særst en innviðir hafi skemmst enda drónunum sérstaklega beint að raforkustöðvum. Myrkrið held- ur áfram að umlykja landið. Eftir mjög víðtæka drónaárás á föstudag sem olli myrkvun um land allt sagði Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, að níu milljónir þegnanna væru aftur komnar með rafmagn, sem er tæpur fjórðungur þjóðarinnar. Vinátta samlyndra þjóða Árásirnar koma í kjölfar þess að Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði Rússa hafa skotið niður fjölda eldflauga frá Bandaríkjunum í loft- helgi þeirra í Belgórod, rússnesku svæði rétt við landamæri Úkraínu. Pútín fór til Minsk í Hvíta-Rússlandi í gær og hitti Alexander Lúkasjenkó, forseta landsins. Ferðin hefur valdið orðrómi þess efnis að Pútín sé að beita Lúkasjenkó þrýstingi um að að- stoða hann í stríðinu gegn Úkraínu. Þeim orðrómi hafnaði Dmitrí Peskóv, talsmaður Kremlar, og sagði hann bæði heimskulegan og eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Á fundi Pútíns og Lúkasjenkós mærði Pútín Hvíta-Rússland upp í rjáfur og sagði landið ekki „einung- is góðan nágranna heldur þeirra allra besta bandamann“. Hingað til Pútín kominn til Hvíta-Rússlands l35 árásir á orkuinnviði fyrir sólaruppráslPútín í Hvíta-RússlandilFundur í Riga og aðstoð við ÚkraínulEinnota hermenn?lRússneskur floti í Kína Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is AFP/Sergei Súpinskí Kænugarður Drónaárás Rússa á raforkustöð í Kænugarði snemma í gærmorgun fyrir sólarupprás. ÞÝSKALAND Völd að dauða tíu þúsund gyðinga Dómur fellur í dag yfir hinni 97 ára gömlu Irmgard Furchner, sem starfaði í útrýmingarbúðum nasista í Stutthof í Póllandi og er talin hafa átt þátt í morðum á tíu þúsund gyðingum. Réttarhöldin hófust í október en í gær tjáði hún sig í fyrsta skipti opinberlega með andlit sitt alveg hulið. „Mér þykir leitt allt sem gerðist,“ sagði hún við dómstólinn í bænum Itzehoe í norðurhluta Þýskalands. Hún er fyrsta konan sem fer fyrir rétt fyrir glæpi nasista. AFP/Wojtek Radwanski Pólland Blóm fest á inngang að gas- klefum Stutthof-útrýmingarbúðanna. Fyrstu dauðsföllin vegna veirunnar lVilja hreyfa hjól atvinnulífsins Greint var frá fyrstu tveimur dauðsföllunum í Peking í Kína vegna kórónuveirunnar í gær en nýlega slökuðu stjórnvöld mikið á samkomutakmörkunum. Líklegt má telja að tölur frá landinu gefi ekki raunsanna mynd af ástandinu en troðfull sjúkrahús og líkbrennslu- hús gætu verið vísbending um að fréttirnar séu bara toppurinn á ísjakanum. Þá má einnig búast við því að þjóðin sé verr í stakk búin að höndla smit eftir að hafa verið í jafnstífri einangrun og verið hefur frá upphafi faraldursins. Apótek í Peking finna þegar fyrir bóluefnaskorti en fréttirnar í gær ollu nokkrum ótta í borginni sem mátti sjá á auðum götum víða. Millj- ónir aldraðra Kínverja hafa ekki fengið bóluefni við sjúkdómnum og eru því varnarlausir. „Tölur segja ekki alla söguna,“ sagði Hoe Nam Leong, smitsjúkdómasérfræðingur í Singapúr, við AFP-fréttastofuna og sagðist búast við því að raunveruleg tala látinna væri hærri og bætti við að mörg smit væru hvergi skráð vegna skorts á prófunum. Margir hafa áhyggjur af komandi nýárshá- tíðum og að smit breiðist einnig út á landsbyggðinni. Nú hafa kínversk yfirvöld í borginni Chongquing í suðurhluta Kína tekið u-beygju í málinu og segja opinbera starfsmenn geta mætt í vinnu þótt þeir séu með sjáanleg einkenni en dagblaðið Chongqing í dag greindi frá þessu í gær. Þar var vitnað í tilkynningu þar sem segir að „starfsmenn ríkisins með væg einkenni geti unnið eins og venjulega“. Í Peking hvöttu yfirvöld borgarbúa til að „hefja eðlilegt líf og framleiðslu sem fyrst“. Búist er við að fleiri borgir í Kína taki upp sömu stefnu og Chongquing. doraosk@mbl.is AFP/Hector Retamal Veira Heilbrigðisstarfsmaður fer í Covid-próf í Shanghai í gær. www.z.is 525 8200 Faxafeni 14, 108 Rvk HANDKLÆÐIN FRÁ CAWÖ ER TILVALIN JÓLAGJÖF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.