Morgunblaðið - 28.12.2022, Side 1

Morgunblaðið - 28.12.2022, Side 1
VIÐSKIPTA- FRÉTTIR ÁRSINS VIÐSKIPTAMOGGINN að 1913 • 304. tölublað • 110. árgangur • MIÐV IKUDAGUR 28. DESEMBER 20 Verktakafyrirtækið ÞG Verk seldi ríflega 200 íbúðir í ár en það er í eigu Þorvaldar Gissurarsonar. Miðað við að meðalverð seldra íbúða hafi verið 80 milljónir króna hefur salan skilað ÞG Verki um 16 milljörðum króna. Meirihluti hinna seldu íbúða er á þéttingarreitum í Vogabyggð í Reykjavík en Urriða- holt og Sunnusmári reyndust einnig drjúg í sölunni. Framlegðin að minnka „Byggingarkostnaður hefur verið að hækka allt árið og söluverðið líka, eða öllu heldur lengst af fram á haustið,“ segir Þorvaldur. „Á sumum tímapunktum innan ársins hefur verðlagning íbúðanna hækkað hraðar og meira en byggingarkostn- aðurinn og svo hefur það snúist við og jafnast í hina áttina, sérstaklega á seinni hluta ársins. Það er þó erfitt að segja nákvæmlega til um það og kostnaðarkúrfan á hverju verkefni er svo mismunandi eftir því á hvaða tímabili þorri íbúðanna var byggður,“ segir Þorvaldur í samtali við ViðskiptaMoggann. Horfur séu á að framlegð af sölu nýrra íbúða verði minni á næsta ári en hún hafi verið í ár. Seldi íbúðir fyrir 16 milljarða í ár lMeirihluti íbúðanna í Vogabyggð Baldur Arnarson baldura@mbl.is Teikning/ONNO Sala ÞG Verk hefur selt margar íbúðir í Vogabyggð á þessu ári. Björgunarsveitarfólk á fullu við undirbúning flugeldasölu sem hefst í dag Flugeldasala björgunarsveitanna hefst í dag, 28. desember, og í gær var björgunarsveitarfólk víða að undirbúa ver- tíðina sem fram undan er. Í Reykjavík er salan í höndum Björgunarsveitarinnar Ársæls, Hjálparsveitar skáta og Flugbjörgunarsveitarinnar. Hefðum samkvæmt hefur hver þessara sveita sína föstu sölustaði; í bækistöðvum sínum og svo á fjölförnum stöðum í borginni. Á myndinni sjást félagar í Flugbjörg- unarsveitinni flytja flugeldakassa inn í bækistöðvarnar við Flugvallarveg þar sem aðalsölustaðurinn er en sveitin er einnig með sölustaði við Kringluna, í Mjódd og Norðlinga- holti. „Veðurspáin fyrir gamlárskvöld er ágæt. Hér í borginni má gera ráð fyrir að verði heiðskírt en þá er líka óskandi að vind hreyfi eitthvað svo sá reykur sem flugeldarnir skilja eftir sig fjúki burt,“ segir Ingvi Stígsson gjaldkeri Flugbjörgunarsveitarinnar í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að um 100 manns komi að sölustarfi sveitarinn- ar nú fyrir áramótin. „Það er auðvitað misjafnt fyrir hvaða upphæðir fólk kaupir flugelda. Hjá sumum eru þetta litlar tölur en í öðrum tilvikum hundruð þúsunda króna. Annars gæti ég trúað að hefðbundin flugeldakaup hvers viðskiptavinar séu upp á 50-60 þúsund krónur,“ segir Ingvi. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg 22 n• Stof HVAÐ GERÐIST HELSTÁ ÁRINU? SMARTLAND 32 SÍÐUR Haraldur Þorleifsson, 45 ára gam- all hönnuður og stofnandi stafræna hönnunarfyrirtækisins Ueno, er manneskja ársins að mati lesenda Smartlands. Allt þetta ár hefur hann stutt við þá sem minna mega sín ásamt því að rampa upp Ísland og bæta þannig aðgengi fyrir fatlaða. Haraldur er sjálfur í hjólastól en hann er með vöðvarýrnunarsjúk- dóm. „Ég var greindur þegar ég var svo ungur. Ég var bara tveggja ára. Þannig að ég hef einhvern veginn aldrei verið meðvitaður um að ég væri ekki með sjúkdóm. Það er kannski öðruvísi áfall að fá aldrei áfallið. Það er aldrei rétti tíminn til að fara í eitthvert sorgarferli. Oft hjá fólki sem lendir í slysi eða eitt- hvað þannig þá fer sorgarferli strax í gang. Þegar fólk fæðist með eitthvað svona eða er í þessum aðstæðum frá byrjun þá fer það aldrei í gegnum sama ferlið,“ segir Haraldur og seg- ist vera í afneitun með sinn sjúkdóm. „Það fer rosalega lítill tími hjá mér í að hugsa um að ég sé með þennan sjúkdóm,“ segir hann. Haraldur hefur á árinu gefið fólki, sem átti erfitt, peningagjafir. Þegar hann er spurður að því hvað hann hafi gefið mikla peninga vill hann ekki gefa það upp. „Það er ákveðið frelsi sem fylgir peningum. Það eru oft ekki endilega háar upphæðir sem geta hjálpað fólki í gegnum erfiðar aðstæður. Þá hef ég reynt að bregð- ast við.“ Hefur þú ekkert áhyggjur af því að féð klárist? „Endurskoðandinn minn hefur miklar áhyggjur af því. Hann kvart- ar yfir því mánaðarlega. En nei, ekki miklar. En það getur allt gerst.“ Ítarlegt viðtal er við Harald í Smartlandsblaðinu, sem fylgir Morgunblaðinu í dag, og einnig er rætt við hann í sjónvarpsviðtali á mbl.is. lHefur á árinu sem er að líða stutt við þá semminna mega sín Haraldur Þorleifsson er manneskja ársins Marta María Winkel Jónasdóttir martamaria@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Frumkvöðull Haraldur Þorleifsson hefur látið gott af sér leiða á árinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.