Morgunblaðið - 28.12.2022, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.12.2022, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022 Vetur Landið er allt í vetrarbúningi þessa dagana. Í Vík í Mýrdal urðu íbúarnir að ganga eftir Þjóðvegi 1 í dag innan um bílana vegna þess að snjórinn fyllti gangstéttirnar. Jónas Erlendsson Þegar ég fagnaði komu nýs árs, skaut upp nokkrum flug- eldum og faðmaði fjöl- skylduna, nágranna og vini var stríð í Evrópu óhugsandi. En ég var bláeygður gagnvart ofbeldis- mönnum sem ógna friði og frelsi. Innrás Rússlands í Úkraínu 24. febrúar var harka- leg áminning til allra frjálsra þjóða um að halda vöku sinni í varðstöðu um fullveldi og verða aldrei efna- hagslega háðar þrælmennum. Á einum degi gjörbreyttist heims- myndin. Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur fyrir löngu skipað sér á bekk sögunnar meðal illmenna sem tilbú- in eru til að beita valdi og virða í engu frelsi og líf almennra borgara eða fullveldi annarra ríkja. Svívirði- legir glæpir rússneskra hermanna gagnvart óbreyttum borgurum í Úkraínu vekja óhug og reiði. Þegar hildarleiknum í Úkraínu lýkur verða þeir sem ábyrgðina bera að svara til saka. Ársins 2022, sem senn er að baki, verður fyrst og síðast minnst sem ársins þegar stríð braust út að nýju í Evrópu. Þetta er árið þar sem óskhyggja og einfeldningsháttur biðu skipbrot. Þetta er árið þar sem það sannaðist enn og aftur að sakleysi, barnalegar hugmyndir um vopnleysi og friðelskandi heim, kosta þjóðir fullveldi, þjáningar og líf almennra borgara. Maður ársins Volodimír Selenskí, forseti Úkra- ínu, hefur stigið fram á sviðið sem kyndilberi þeirra sem eru reiðubúnir að ganga á hólm við illsk- una sem ógnar frelsi og fullveldi þjóða. Framganga hans og hugrekki úkraínsku þjóðarinnar hefur ver- ið innblástur fyrir okkur öll sem höfum gengið að frelsinu sem sjálfsögðum rétt- indum. Þrautseigja her- manna og óbreyttra borgara Úkraínu í baráttu gegn of- urefli hefur vakið aðdáun og látið fáa ósnortna. Í þess að leggja á flótta gripu almennir borgarar til þeirra vopna sem voru í boði til að verja bæi og borgir þegar rúss- neskir skriðdrekar og árásarþyrlur sóttu fram. „Herfræðin gerir ekki ráð fyrir venjulegum náungum í íþróttabuxum með veiðiriffla að vopni,“ sagði Valeriy Zaluzhny hershöfðingi í viðtali við blaðamann Time á fyrstu vikum innrásarinnar. Tímaritið Time hefur útnefnt Selenskí mann ársins 2022. Rit- stjórn tímaritsins segir að sjaldan hafi valið verið jafn augljóst en Time hefur útnefnt mann ársins frá 1927. Bakgrunnur Selenskís gaf ekki til kynna að þar færi maður með ljónshjarta – reiðubúinn til að bjóða öflugum innrásarher birginn. Áður en hann var kjörinn forseti árið 2019 var hann leikari og grín- isti – einna frægastur fyrir að leika forseta í „Þjónn fólksins“, vinsæl- um gamanþáttum. Fáir höfðu trú á því að Selenskí hefði hugrekki til að leiða þjóð sína á stríðstímum. Arsenij Jatsenjúk, fyrrverandi for- sætisráðherra Úkraínu, ráðlagði Selenskí að forðast að hitta Vladi- mír Pútín Rússlandsforseta þar sem hann myndi „borða hann í morgunmat“. Jatsenjúk, líkt og Pútín, vanmat Selenskí og úkraínsku þjóðina full- komlega. Sem leiðtogi á stríðs- tímum hefur Selenskí sýnt og sann- að að hugrekki er smitandi. Það hefur breiðst út meðal almennra borgara í Úkraínu og gefið almenn- ingi í öðrum löndum styrk og trú á að „ljósið muni hafa betur í barátt- unni við myrkrið“. Sólin verður daufari Selenskí neitaði að yfirgefa Úkraínu þrátt fyrir hvatningu þar um þegar innrás Rússa hófst. Sag- an geymir mörg dæmi um leiðtoga sem velja fremur þann kost að flýja land en halda baráttunni gegn ofur- efli áfram við hlið samlanda sinna. Snemma í síðari heimsstyrjöldinni flúðu leiðtogar Albaníu, Belgíu, Tékkóslóvakíu, Grikklands, Pól- lands, Hollands, Noregs og Júgó- slavíu undan sókn þýska hersins. Þeir völdu útlegð. Ashraf Ghani, forseti Afganistans, lagði á flótta þegar talibanar nálguðust höfuð- borg landsins. „Þetta gæti verið í síðasta skipti sem þið sjáið mig á lífi,“ sagði Sel- enskí á fjarfundi með leiðtogum Evrópu skömmu eftir að innrásin hófst. Hann hefur verið óþreytandi að halda málstað Úkraínu á lofti og hvatt frjálsar þjóðir heims til að leggja Úkraínu lið. Þar hefur hann nýtt eðlislæga eiginleika sína og sannfæringarkraft: Úkraína verður að vinna stríðið, hvað sem það kost- ar. „Sýnið að þið standið með okk- ur,“ sagði hann í ávarpi til Evrópu- þingsins á fyrstu dögum innrásarinnar. „Sýnið að þið slepp- ið okkur ekki. Sannið að þið séuð Evrópubúar og þá mun lífið sigra dauðann og ljósið sigra myrkrið.“ Selenskí hefur minnt þjóðir heims á að hernám einnar þjóðar rýrir frelsi annarra. Ef Úkraína falli verði „sólin á himni þínum daufari“. Í viðtali við blaðamann Time segist hann vilja byggja upp land „tækifæranna, þar sem allir eru jafnir fyrir lögum og þar sem allar reglur eru sanngjarnar, gagn- sæjar og gilda jafnt fyrir alla. Til þess þurfum við stjórnvöld sem þjóna fólkinu.“ Það er skylda allra frjálsra þjóða að hlýða kalli Selenskís og styðja við bakið á fólki sem sýnt hefur hugdirfsku gagnvart yfirgangi og hrottaskap. Á árinu 2022 vorum við minnt á að síðasti ofbeldismaðurinn og hrottinn er ekki fæddur. Og þess vegna verðum við að halda vöku okkar. Þegar Alþingi kemur saman á nýju ári bíða mörg verkefni. Eitt þeirra er endurskoðun á þjóðar- öryggisstefnu landsins. Innrásin í Úkraínu verður óhjákvæmilega ofarlega í huga þingmanna. Þátt- taka Íslands í öflugu varnarsam- starfi NATO og varnarsamning- urinn við Bandaríkin hafa fengið nýja og dýpri merkingu. Þjóðaröryggisstefna sem byggist ekki á þessu tvennu er ekki miklu meira virði en orð á blaði. Óli Björn Kárason » Selenskí hefur minnt þjóðir heims á að hernám einnar þjóðar rýrir frelsi ann- arra. Ef Úkraína falli verði „sólin á himni þínum daufari“. Óli Björn Kárason Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Hugrekki er smitandi AFP „Sem leiðtogi á stríðstímum hefur Selenskí sýnt og sannað að hugrekki er smitandi," segir greinarhöfundur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.