Morgunblaðið - 28.12.2022, Side 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022
Vetur Landið er allt í vetrarbúningi þessa dagana. Í Vík í Mýrdal urðu íbúarnir að ganga eftir Þjóðvegi 1 í dag innan um bílana vegna þess að snjórinn fyllti gangstéttirnar.
Jónas Erlendsson
Þegar ég fagnaði
komu nýs árs, skaut
upp nokkrum flug-
eldum og faðmaði fjöl-
skylduna, nágranna
og vini var stríð í
Evrópu óhugsandi. En
ég var bláeygður
gagnvart ofbeldis-
mönnum sem ógna
friði og frelsi. Innrás
Rússlands í Úkraínu
24. febrúar var harka-
leg áminning til allra frjálsra þjóða
um að halda vöku sinni í varðstöðu
um fullveldi og verða aldrei efna-
hagslega háðar þrælmennum. Á
einum degi gjörbreyttist heims-
myndin.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
hefur fyrir löngu skipað sér á bekk
sögunnar meðal illmenna sem tilbú-
in eru til að beita valdi og virða í
engu frelsi og líf almennra borgara
eða fullveldi annarra ríkja. Svívirði-
legir glæpir rússneskra hermanna
gagnvart óbreyttum borgurum í
Úkraínu vekja óhug og reiði. Þegar
hildarleiknum í Úkraínu lýkur
verða þeir sem ábyrgðina bera að
svara til saka.
Ársins 2022, sem senn er að baki,
verður fyrst og síðast minnst sem
ársins þegar stríð braust út að nýju
í Evrópu. Þetta er árið þar sem
óskhyggja og einfeldningsháttur
biðu skipbrot. Þetta er árið þar
sem það sannaðist enn og aftur að
sakleysi, barnalegar hugmyndir um
vopnleysi og friðelskandi heim,
kosta þjóðir fullveldi, þjáningar og
líf almennra borgara.
Maður ársins
Volodimír Selenskí, forseti Úkra-
ínu, hefur stigið fram á sviðið sem
kyndilberi þeirra sem
eru reiðubúnir að
ganga á hólm við illsk-
una sem ógnar frelsi
og fullveldi þjóða.
Framganga hans og
hugrekki úkraínsku
þjóðarinnar hefur ver-
ið innblástur fyrir
okkur öll sem höfum
gengið að frelsinu sem
sjálfsögðum rétt-
indum.
Þrautseigja her-
manna og óbreyttra
borgara Úkraínu í baráttu gegn of-
urefli hefur vakið aðdáun og látið
fáa ósnortna. Í þess að leggja á
flótta gripu almennir borgarar til
þeirra vopna sem voru í boði til að
verja bæi og borgir þegar rúss-
neskir skriðdrekar og árásarþyrlur
sóttu fram. „Herfræðin gerir ekki
ráð fyrir venjulegum náungum í
íþróttabuxum með veiðiriffla að
vopni,“ sagði Valeriy Zaluzhny
hershöfðingi í viðtali við blaðamann
Time á fyrstu vikum innrásarinnar.
Tímaritið Time hefur útnefnt
Selenskí mann ársins 2022. Rit-
stjórn tímaritsins segir að sjaldan
hafi valið verið jafn augljóst en
Time hefur útnefnt mann ársins frá
1927.
Bakgrunnur Selenskís gaf ekki
til kynna að þar færi maður með
ljónshjarta – reiðubúinn til að
bjóða öflugum innrásarher birginn.
Áður en hann var kjörinn forseti
árið 2019 var hann leikari og grín-
isti – einna frægastur fyrir að leika
forseta í „Þjónn fólksins“, vinsæl-
um gamanþáttum. Fáir höfðu trú á
því að Selenskí hefði hugrekki til
að leiða þjóð sína á stríðstímum.
Arsenij Jatsenjúk, fyrrverandi for-
sætisráðherra Úkraínu, ráðlagði
Selenskí að forðast að hitta Vladi-
mír Pútín Rússlandsforseta þar
sem hann myndi „borða hann í
morgunmat“.
Jatsenjúk, líkt og Pútín, vanmat
Selenskí og úkraínsku þjóðina full-
komlega. Sem leiðtogi á stríðs-
tímum hefur Selenskí sýnt og sann-
að að hugrekki er smitandi. Það
hefur breiðst út meðal almennra
borgara í Úkraínu og gefið almenn-
ingi í öðrum löndum styrk og trú á
að „ljósið muni hafa betur í barátt-
unni við myrkrið“.
Sólin verður daufari
Selenskí neitaði að yfirgefa
Úkraínu þrátt fyrir hvatningu þar
um þegar innrás Rússa hófst. Sag-
an geymir mörg dæmi um leiðtoga
sem velja fremur þann kost að flýja
land en halda baráttunni gegn ofur-
efli áfram við hlið samlanda sinna.
Snemma í síðari heimsstyrjöldinni
flúðu leiðtogar Albaníu, Belgíu,
Tékkóslóvakíu, Grikklands, Pól-
lands, Hollands, Noregs og Júgó-
slavíu undan sókn þýska hersins.
Þeir völdu útlegð. Ashraf Ghani,
forseti Afganistans, lagði á flótta
þegar talibanar nálguðust höfuð-
borg landsins.
„Þetta gæti verið í síðasta skipti
sem þið sjáið mig á lífi,“ sagði Sel-
enskí á fjarfundi með leiðtogum
Evrópu skömmu eftir að innrásin
hófst. Hann hefur verið óþreytandi
að halda málstað Úkraínu á lofti og
hvatt frjálsar þjóðir heims til að
leggja Úkraínu lið. Þar hefur hann
nýtt eðlislæga eiginleika sína og
sannfæringarkraft: Úkraína verður
að vinna stríðið, hvað sem það kost-
ar. „Sýnið að þið standið með okk-
ur,“ sagði hann í ávarpi til Evrópu-
þingsins á fyrstu dögum
innrásarinnar. „Sýnið að þið slepp-
ið okkur ekki. Sannið að þið séuð
Evrópubúar og þá mun lífið sigra
dauðann og ljósið sigra myrkrið.“
Selenskí hefur minnt þjóðir
heims á að hernám einnar þjóðar
rýrir frelsi annarra. Ef Úkraína
falli verði „sólin á himni þínum
daufari“. Í viðtali við blaðamann
Time segist hann vilja byggja upp
land „tækifæranna, þar sem allir
eru jafnir fyrir lögum og þar sem
allar reglur eru sanngjarnar, gagn-
sæjar og gilda jafnt fyrir alla. Til
þess þurfum við stjórnvöld sem
þjóna fólkinu.“
Það er skylda allra frjálsra þjóða
að hlýða kalli Selenskís og styðja
við bakið á fólki sem sýnt hefur
hugdirfsku gagnvart yfirgangi og
hrottaskap. Á árinu 2022 vorum við
minnt á að síðasti ofbeldismaðurinn
og hrottinn er ekki fæddur. Og
þess vegna verðum við að halda
vöku okkar.
Þegar Alþingi kemur saman á
nýju ári bíða mörg verkefni. Eitt
þeirra er endurskoðun á þjóðar-
öryggisstefnu landsins. Innrásin í
Úkraínu verður óhjákvæmilega
ofarlega í huga þingmanna. Þátt-
taka Íslands í öflugu varnarsam-
starfi NATO og varnarsamning-
urinn við Bandaríkin hafa fengið
nýja og dýpri merkingu.
Þjóðaröryggisstefna sem byggist
ekki á þessu tvennu er ekki miklu
meira virði en orð á blaði.
Óli Björn Kárason » Selenskí hefur
minnt þjóðir heims
á að hernám einnar
þjóðar rýrir frelsi ann-
arra. Ef Úkraína falli
verði „sólin á himni
þínum daufari“.
Óli Björn Kárason
Höfundur er formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Hugrekki er smitandi
AFP
„Sem leiðtogi á stríðstímum hefur Selenskí sýnt og sannað að hugrekki er
smitandi," segir greinarhöfundur.