Morgunblaðið - 28.12.2022, Síða 4

Morgunblaðið - 28.12.2022, Síða 4
FRÉTTIR Innlent4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022 Webasto ThermoConnect2 fjarhitun með Appi og þú þarft aldrei aftur að skafa Bíldshöfða 16, 110 Rvk | S. 567 2330 | bilasmidurinn.is miðstöð fyrir bílinn Rauntíma samband með tímastillingu, hitastigi, stöðu rafgeymis og staðsetningu. - Aukið öryggi - Aukin þægindi - Minni mengun Verið er að fara yfir staðsetningu nýrrar slökkvistöðvar í stað stöðv- arinnar á Tunguhálsi í Reykjavík. Nýjar athuganir á viðbragðstíma staðfesta það sem áður hefur verið gefið út að æskilegasta stað- setning nýrrar slökkvistöðvar er við Breiðholts- braut í tengslum við væntanlegan Arnarnesveg. Þar er hins vegar ekki nein lóð á lausu og eru þau mál í athugun. Lengi hefur verið rætt um staðsetn- ingu og byggingu nýrrar slökkvistöðv- ar í stað stöðvarinnar á Tunguhálsi. Málið var komið á framkvæmda- áætlun byggðasamlags um slökkvi- liðið á árinu 2021 en komst ekki til framkvæmda þá. Birgir Finnsson, starfandi slökkviliðsstjóri Slökkvi- liðs höfuðborgarsvæðisins, segir að það hafi lengi legið fyrir að stöðin á Tunguhálsi er ekki vel staðsett varðandi viðbragðstíma liðsins og vilji sé til að bæta úr því. Hann segir að óvissa hafi verið um málið, meðal annars vegna óvissu um endanlega legu Arnarnesvegar sem tengist Breiðholtsbraut ofan við Seljahverfi. Nú hafi verið leyst úr því máli. Ný stjórn Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins fékk kynningu á stöðu málsins á dögunum og starfsfólk slökkviliðsins er að vinna frekari gögn sem stjórnin mun fjalla um á fundi sínum í janúar. Birgir segir mikilvægt að við- bragðstími liðsins sé sem skemmstur fyrir sem flest hverfi sem hún á að þjóna. Hermanir sýni að þeir stað- ir sem áður hefur verið bent á, það er að segja ofarlega við Breiðholts- braut, í tengslum við Arnarnesveg, séu heppilegasta staðsetningin fyrir flest hverfin. Ný stöð eykur öryggi Staðsetning þar og nýr Arnarnes- vegur munu bæta mjög öryggi í Breiðholti og efri byggðumKópavogs sem hefur verið ábótavant. Þegar málið var síðast athugað, í byrjun árs 2019, komu tveir til þrír kostir þar til greina. Engin lóð var þó á lausu þar og það hefur ekki breyst, að sögn Birgis, en málið er í athugun. Unnið er að undirbúningi byggingar björgunarmiðstöðvar við Holta- garða en hún mun hýsa starfsemi nokkurra stofnana ríkisins, svo sem Landhelgisgæslunnar, Tollgæslunnar, Neyðarlínunnar, embættis ríkislög- reglustjóra og lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu en einnig Lands- bjargar og yfirstjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Birgir segir að óvissa sé um framtíð slökkvistöðvar- innar við Skógarhlíð þegar starfsemi björgunarmiðstöðvarinnar færist í nýtt hús. Þar þurfi að vera slökkvistöð til að þjóna nálægum hverfum, vest- urbæ Reykjavíkur og Seltjarnarnesi. Meta þurfi hvort hentugt sé að vera áfram í núverandi húsnæði eða hvort byggja þurfi nýja stöð á því svæði. lNý slökkvistöð í stað Tunguhálsstöðvar þarf að vera við Breiðholtsbraut/ArnarnesveglStyttir viðbragðstíma slökkviliðsins í flest hverfi á þjónustusvæðinulEngin lóð á lausu á umræddu svæði Vitaðhvar slökkvistöðþarf aðvera Morgunblaðið/Eggert TunguhálsViðbragðstími slökkviliðsins styttist verulega með byggingu nýrrar stöðvar í Breiðholti. Birgir Finnsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Áætlað er að innvigtuð mjólk til aðildarfélaga Samtaka afurða- stöðva í mjólkuriðnaði verði tæplega 148 milljónir lítra þegar upp verður staðið um áramót. Er það tæpum milljón lítrum minna en var á síðasta ári. Ágætis jafnvægi er í framleiðslunni miðað við útgefið greiðslumark og sölu á innanlandsmarkaði. Mjólkurframleiðslan jókst mjög fram til ársins 2018 er hún náði hámarki og var þá orðin töluvert mikið umfram þörfina á innanlandsmarkaði sem heildar- greiðslumark á að endurspegla. Sést þróunin á meðfylgjandi grafi. Frá 2018 hefur framleiðslan minnkað en sala á innanlands- markaði aukist. Slaki unninn upp að hluta Slaki var í innvigtun mjólkur til mjólkursamlaganna fram yfir mitt þetta ár. Þannig var innlögð mjólk fyrstu sjö mánuði ársins 1,9 millj- ónum lítra minni en árið á undan og munaði þar 2,1%. Á sama tíma jókst sala mjólkurafurða á innan- landsmarkaði vegna fjölgunar ferðafólks og ekki síst vegna samsetningar hópsins þar sem fleiri komu frá löndum þar sem mjólk er hefðbundin neysluvara en frá öðrum löndum. Sem dæmi má nefna að sala á osti hefur aukist um 200 tonn. Það vegur þungt því til þess þarf tvær milljónir lítra mjólkur. Til að bregðast við þróuninni ákvað Auðhumla, samvinnufélag mjólkurframleiðenda, að hækka verð á mjólk sem framleidd er umfram kvóta einstakra bænda úr 70 krónum í 80 í byrjun apríl og síðan í 100 krónur frá 1. ágúst. Það varð til þess að framleiðslan tók við sér og dró til baka meira en helming samdráttar fyrri hluta ársins. Þótt framleiðslan nái ekki sömu tölu og á síðasta ári er hún vel yfir greiðslumarki. Fram- leiðslan er einnig nokkuð yfir sölu á innanlandsmarkaði sem áætlað er að verði rúmlega 146 milljónir lítra, miðað við fituhluta hráefnisins. Aukning á komandi ári Matvælaráðherra hefur gefið út heildargreiðslumark fyrir komandi ár. Það verður 149 millj- ónir lítra sem er 2,5 milljóna lítra aukning. Grundvallast það á spá um aukna sölu mjólkurafurða á næsta ári. Bjarni Ragnar Brynj- ólfsson, skrifstofustjóri Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði, segir að framleiðslan sé í góðu jafnvægi núna. Ef áfram verði stígandi í sölu þurfi framleiðslan að vera yfir heildargreiðslumarki næsta árs. lHeldurminnimjólkurframleiðsla en í fyrra þótt bændur hafi gefið vel í seinni hluta ársins lFramleiðsla og sala í nokkru jafnvægi vegna aukinnar sölulAukinn kvóti fyrir komandi ár Framleiðsla ámjólk nær sér á strik Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framleiðsla mjólkur minnkar lítillega Innvegin mjólk og heildargreiðslumark, milljónir lítra 150 140 130 120 110 100 Innvegin mjólk Greiðslu- mark 122,9 133,5 146,0 150,2 151,1 152,5 151,6 151,2 148,8 148,0 116 123 140 136 144 145 145 145 145 146,5 149 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 * *Áætlun fyrir 2022 Heimild: SAM Morgunblaðið/Styrmir Kári MjólkurkýrMjólkurframleiðslan tók við sér upp úr miðju ári.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.