Morgunblaðið - 28.12.2022, Síða 9

Morgunblaðið - 28.12.2022, Síða 9
FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022 9 HVÍTT SVART KRÓMGRÁTT BRASS KOPAR LIÐ IÐ HEIMAVARNAR Sundaborg 7 / Reykjavík / Sími 568 4800 / www.oger. is Mikið úr val s lökkvi tækja fyr ir al lar aðstæður og í mörgum li tum. Förum var lega – og verum við öl lu búin. SLÖKKVITÆKI FYRIR ÖLL HEIMILI – OG FYRIRTÆKI. Neyðarskýlin verða opin lÁkveðið í ljósi slæmrar veðurspár næstu daga Sólarhringsopnun verður í neyðarskýlunum að Grandagarði og á Lindargötu í Reykjavík til og með 1. janúar samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Konukot, sem er neyðarskýli fyrir konur, verður opið utan opnunartíma Skjólsins sem er opið hús fyrir konur sem Hjálparstarf kirkjunnar rekur. Skjólið er opið á milli 10 og 15 á virkum dögum. Staðan verður endurmetin að morgni 2. janúar. Þá verður viðbragðsáætlun málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir virk á þessu tímabili. Samkvæmt henni eru skýlin opin allan sólar- hringinn þegar veðurskilyrði eru á þann veg að einstaklingum sé hætt við ofkælingu eða alvarlegum slysum. Ákvörðunin er tekin í ljósi slæmrar veðurspár næstu daga. Neyðaráætlunin gerir ráð fyrir samvinnu allra viðbragðsaðila í Reykjavík, bráðamóttöku Landspít- ala Háskólasjúkrahúss, lögreglu, Rauða krossins, forsvarsmanna tjaldsvæða, Vettvangs- og ráð- gjafateymis Reykjavíkurborgar og neyðarúrræða fyrir heimilislausa. Morgunblaðið/Kristinn Neyðarskýli Reykjavíkurborg rekur neyðarskýli við Lindargötu. Síðumúli 35 (gengið inn að aftanverðu) 108 Reykjavík - S. 568 3920 - Opið 11.00-18.00 Allt fyrir píluna Pílusett Bull’s Flora 9.100 kr. Píluspjald og hringur + 2 sett af pílum OUTLAW 19.900 kr. Um áramótin tekur gildi mikilvæg breyting á lögum ummenningarminj- ar frá árinu 2012. Tilgangur laganna er að stuðla að verndun menn- ingarminja og tryggja að íslenskum menningararfi verði skilað óspillt- um til komandi kynslóða. Helsta breytingin nú felur í sér að hin svo- kallaða 100 ára regla mun ekki gilda framvegis um hús og mannvirki. Nú hljóðar 29. grein laganna svo: „Öll hús og mannvirki sem eru 100 ára eða eldri eru friðuð.“ Sú breyting verður á lögunum um áramótin að í stað orðanna „eru 100 ára eða eldri“ í 1. mgr. kemur: „byggð voru árið 1923 eða fyrr.“ Málsgrein númer tvö hljóð- ar svo: Óheimilt er að raska friðuð- um húsum og mannvirkjum, spilla þeim eða breyta, rífa þau eða flytja úr stað nema með leyfi Minjastofn- unar Íslands. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Stofnuninni er heimilt að setja skilyrði um slík- ar framkvæmdir eða gera tillögu um friðlýsingu umrædds húss eða mannvirkis. Í greinargerð með frumvarpi að lagabreytingunni kom fram að aldursfriðunarákvæði kom fyrst fram í þjóðminjalögum, nr. 88/1989, þar sem sett var ákvæði um friðun fornleifa við 100 ára aldur. Við gildistöku laganna frá 2012mið- aðist aldursfriðunarákvæðið við árið 1912 samkvæmt áðurnefndri 100 ára reglu.Með hverju árinu sem líður bæt- ast því við nýjar fornminjar og fjölgun verður á aldursfriðuðummannvirkj- um, eðli málsins samkvæmt. Af því leiðir að stutt er í aldursfriðunmikils fjölda steinsteyptra húsa og annarra mannvirkja í þéttbýli og sveit, sem og innviða úr fjöldaframleiddum efnivið, svo sem gaddavírsgirðinga í sveitum landsins. Fágæti eykur varðveislugildi minja en hið gagnstæða dregur úr því, segir í greinargerðinni. Ljóst sé að hvorki sé hægt né æski- legt að vernda allar menningarminjar og hús. Þá sé þörf á faglegum rökum fyrir vernd, ekki síst í ljósi þess að byggingarefni og verkhættir breyttu- st allnokkuð á þriðja áratug 20. aldar. Loks liggi fyrir að fjöldi aldursfrið- aðra fornminja og mannvirkja á eftir að stóraukast ár hvert með þeim af- leiðingum að álag á stjórnsýsluminja- mála muni aukast töluvert. Slíkt gæti dregið úr getu til að fjalla á vandaðan hátt um öll mál og til lengri tíma haft neikvæð áhrif á hús, önnurmannvirki og fornminjar með hátt varðveislu- gildi sem sannarlega þurfi að vernda. Lágt varðveislugildi? Að óbreyttum lögum muni því lík- ur aukast á að hús og önnur mann- virki með lágt varðveislugildi njóti aldursfriðunar án þess að fagleg rök um vernd liggi að baki. Loks verður gerð breyting á 1. málsgrein 30. grein- ar laganna sem hér segir: Eigendum húsa og mannvirkja sem ekki njóta friðunar en byggð voru 1940 eða fyrr, svo og forráðamönnum kirkna sem reistar voru 1940 eða fyrr, er skylt að leita álits hjá Minjastofnun Íslands með minnst sex vikna fyrirvara ef þeir hyggjast breyta þeim, flytja þau eða rífa. Morgunblaðið/Eggert Bíða endurbyggingar Fjölmörg eldri og friðuð hús hafa verið endurgerð á seinni árum og þau jafnvel verið flutt á nýja grunna í nýjum hverfum. Hundrað ára regla fellur nið- urumáramótin lLög ummenningarminjar breytast Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is w w w. i t r. i s

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.