Morgunblaðið - 28.12.2022, Side 14

Morgunblaðið - 28.12.2022, Side 14
14 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022 ✝ Kristinn Björg- vin Sigurðsson fæddist í Reykjavík 14. júní 1926. Hann lést 19. desember 2022. Foreldrar Krist- ins voru Dagný Níelsdóttir, f. 14. nóvember 1885 á Stóra-Múla, Saur- bæjarhreppi í Dala- sýslu, d. 28. febrúar 1971, og Sigurður Brynjólfsson, f. 4. júní 1885 á Stærribæ, Gríms- neshreppi í Árnessýslu, d. 6. jan- úar 1970. Þau áttu fjögur börn auk Kristins. Harald Snæland, f. 15. febrúar 1914, d. 14. júní 1996, Bryndísi, f. 2. mars 1917, d. 16. maí 2007, Sigurborgu, f. 16. janúar 1920, d. 17. febrúar 2012, og Sigurð Ragnar, f. 19. desem- ber 1922, d. 10. janúar 1984. Kristinn kvæntist eiginkonu sinni Auði Guðmundsdóttur 7. nóvember 1947. Hún var fædd 23. nóvember 1924, d. 4. janúar 2014. Hún var dóttir Sesselju með Daníel Hrafni Magnússyni. Sonur þeirra er Anton Hilmar. 3) Snorri, f. 28. ágúst 1962, kvænt- ur Kristjönu Kristjánsdóttur. Börn þeirra eru a) Agnes Ósk í sambúð með Joshua Daniel Guð- steinssyni. Synir þeirra eru Dag- ur Guðsteinn og Brynjar Snorri og b) Kristján Björn í sambúð með Yrsu Ásgeirsdóttur. Kristinn hóf nám í Prent- smiðju Jóns Helgasonar 14. júní 1940. Lauk þar námi og tók sveinspróf í setningu 14. apríl 1946. Hann vann í Prentsmiðju Jóns Helgasonar til ársins 1950. Um sumarið réðist hann til Al- þýðuprentsmiðjunnar við Vita- stíg, en vann jafnframt við Al- þýðublaðið sem var til húsa við Hverfisgötu. Í janúar 1946 eign- aðist blaðið sjálft þann hluta sem var við Hverfisgötuna og nefndi hann Prentsmiðju Alþýðublaðs- ins. Kristinn var þar prent- smiðjustjóri til ársins 1966. Það ár réðist hann til Prentsmiðj- unnar Eddu og var þar verk- stjóri til ársins 1981. Fór þá að vinna við verslunarstörf hjá Harðviðarvali og vann þar til ársins 1995 er hann hætti störf- um. Útför Kristins fer fram frá Seltjarnarneskirkju í dag, 28. desember 2022, klukkan 13. Friðriksdóttur, f. 3. júní 1900, d. 11. mars 1981, og Guð- mundar Runólfs- sonar f. 30. desem- ber 1899, d. 3. september 1956. Þau áttu þrjá syni. Þeir eru: 1) Gylfi, f. 7. mars 1950, kvæntur Jón- ínu Völu Krist- insdóttur. Börn þeirra eru: a) Margrét Vala gift Stefáni Loga Sigurþórssyni. Synir þeirra eru Róbert Gylfi, Tómas Diðrik og Símon Böðvar. b) Kristinn Björgvin kvæntur Ebbu Kristínu Baldvinsdóttur. Synir þeirra eru Kolbeinn Viðar og Matthías Baldvin. c) Auður Sesselja gift Inga Þór Reyn- issyni. Dóttir þeirra er Jónína Vala. 2) Hilmar, f. 9. febrúar 1959, kvæntur Margréti Hauks- dóttur. Dætur þeirra eru a) Hild- ur Ýr í sambúð með Emil Hjalta- syni. Dóttir þeirra er Bryndís Björk, b) Íris Björk í sambúð Rúm hálf öld er liðin síðan ég kynntist tengdaforeldrum mín- um, þeim Kristni og Auði. Krist- inn var þá verkstjóri í prent- smiðjunni Eddu en hann starfaði við prentverk í 40 ár og síðar við verslunarstörf. Þau Auður höfðu búið sér og sonum sínum myndarheimili að Unn- arbraut 7 á Seltjarnarnesi og þar var alltaf tekið vel á móti mér. Tvö eldri börnin okkar Gylfa voru í áratug einu barna- börnin þeirra og urðu strax sannkallaðir sólargeislar í lífi þeirra. Sérstakir kærleikar voru á milli þeirra alnafnanna, Krist- ins Björgvins eldri og yngri, sem héldust fram til síðasta dags þó svo þeir hafi lengi búið sinn í hvoru landinu. Þá auð- veldaði tæknin þeim samskiptin og Kristinn yngri sá til þess að afi hans gæti nýtt sér nýjustu tækni á sviði fjarskipta. Það kom sér vel fyrir Kristinn eldri að geta nýtt sér fjarsamskipti á meðan Covid faraldurinn gekk yfir. Hann var duglegur að til- einka sér þau og taka þátt í samskiptum við fjölskylduna, bæði við einstaklinga og á fjöl- skyldufundum. Þegar barnabörnunum fjölg- aði glöddust þau hjónin yfir hverju nýju barni og nutu þau öll ástríkis og umhyggju þeirra. Kristinn var einstaklega dugleg- ur við að snúast í kringum börn- in, sækja og keyra, þegar kallað var. Sælureitur þeirra hjóna á Kjalarnesi var sérstaklega vin- sæll hjá yngri kynslóðinni og voru ófá skiptin sem þau tóku börnin með sér þangað. Þar fengu þau tækifæri til að leika sér við frændsystkini sín og kynntust því vel. Börnin nutu þess að taka þátt í ræktunar- störfum með ömmu sinni og afa. Kristinn var ötull við að miðla þeim fróðleik um náttúruna og margt fleira sem hann sjálfur hafði áhuga á. Það var ánægju- legt að fylgjast með þeirri natni sem hann sýndi börnunum og hvernig hann lagði sig eftir að kynnast hverju og einu og styðja þau til þroska og náms. Þegar við Gylfi bjuggum í Svíþjóð og síðar í Belgíu voru þau hjónin dugleg að heimsækja okkur og var alltaf mikil eft- irvænting hjá börnunum þegar von var á þeim. Kristinn var duglegur að sinna þeim og minnistætt er þegar hann studdi elsta barnabarnið, Margréti, við að læra að hjóla. Hann gafst ekki upp fyrr en hún náði tökum á listinni og sveif um á hjólinu í stúdentahverfinu í Uppsölum. Yngri dóttirin, Auður, naut þess að sýna afa sínum og ömmu heimkynni okkar í Brussel og sýndi Kristinn sérstakan áhuga á að kynnast skólanum hennar. Kristinn eignaðist tíu langafa- börn, fagnaði hverju þeirra og naut þess að hafa þau nálægt sér. Að leiðarlokum þakka ég Kristni fyrir ánægjulega sam- fylgd og vináttu. Jónína Vala Kristinsdóttir. Ég hef alltaf verið algjör afa- stelpa og það er erfitt að hugsa til þess að ég muni aldrei getað knúsað afa og spjallað við hann aftur. Afi var besti afi í heimi og verð ég ævinlega þakklát fyrir samband okkar. Afi var alltaf til staðar fyrir mig. Þegar Oliver, hundurinn minn, dó þá var afi fyrstur að mæta á svæðið og gefa mér knús. Hann mætti á alla píanó- tónleika og hjálpaði mér með heimanám. Hann heyrði í mér daglega þegar ég var veik til að athuga hvort ég væri ekki örugglega að hressast og bauðst alltaf til að koma með mat til mín. Þegar eitthvað spennandi var að gerast í lífi mínu hlakkaði ég alltaf til þess að deila því með afa. Hann var mín helsta klapp- stýra og hafði óbilandi trú á mér. Ég var heppin að afi og amma bjuggu við hliðina á grunnskól- anum mínum og ég gat því alltaf labbað til þeirra eftir skóla og fengið kókó og ristað brauð. Við afi vorum dugleg að spila og var olsen olsen í miklu uppáhaldi hjá okkur. Einnig áttum við það til að semja vísur og skrifa smá- sögur í tölvunni hans. Ég er þakklát fyrir það að afi fékk að kynnast syni mínum, Antoni Hilmari. Hann gat setið í fanginu hjá langafa sínum tím- unum saman og spjallað. Það eru minningar sem munu ylja mér um ókomna tíð. Söknuðurinn er sár en minn- ingarnar sem ég á um afa munu lifa hjá mér að eilífu. Íris Björk Hilmarsdóttir. Elsku afi minn, nú er víst komið að því að ég verði að kveðja þig. Þrátt fyrir að ég kveðji þig með söknuð í hjarta og tár í augum þá er það fyrst og fremst ómælt þakklæti sem situr eftir. Takk fyrir að vera ávallt til staðar fyrir mig, takk fyrir allar góðu stundirnar og samræðurnar, takk fyrir alla þolinmæðina, takk fyrir alla um- hyggjuna og takk fyrir að vera svona frábær fyrirmynd. Þvílík forréttindi að þú ert afi minn! Ég mun sakna þín en ég veit samt að þú munt alltaf vera með mér. Þín Hildur. Þegar karlsvagninum bregð- ur fyrir á heiðum stjörnuhimni minnist ég alls þess sem afi kenndi mér. Honum fannst sjálf- sagt að lítill snáði fylgdi með og lærði allt frá stjörnufræði til girðingavinnu. Þær ótal stundir sem ég fékk að eyða með afa og ömmu á Unnarbrautinni, á Kjal- arnesinu og á ferð um landið voru uppspretta fróðleiks og reynslu, svo þegar kom að lífs- þrautum eins og bílprófi, bygg- ingaframkvæmdum eða sósu- gerð leystust þær fyrirhafnarlaust. Natni og þol- inmæði afa við okkur barna- börnin reyndist verðmæt gjöf og verður okkur til fyrirmyndar. Takk fyrir mig. Kristinn Björgvin. Kristinn Björgvin Sigurðsson ✝ Steinunn Ásta Björnsdóttir fæddist í Reykja- vík 20. október 1948. Hún lést 14. desember 2022 á Landspítalanum í Fossvogi. Foreldrar henn- ar voru Björn Jónsson yfirflug- umferðarstjóri, f. 25.1. 1915, d. 21.3. 1995, og María Hafliðadóttir húsmóðir, f. 6.1. 1920, d. 12.1. 1999. Systkini Steinunnar eru: Hafliði Örn, f. 2.6. 1941, Hilm- ar Þór, f. 28.8. 1945, og Birna, f. 18.8. 1956. Steinunn giftist 16.8. 1986 unn gekk í Austurbæjarskóla, Melaskóla, Hagaskóla og Var- márskóla. Steinunn vann við afgreiðslu í Tómstundabúðinni, sem þjónn í Glaumbæ og Klúbbnum samhliða skrifstofustarfi hjá Innkaupastofnun Reykjavíkur- borgar. Lengst af vann hún hjá Íslenska álfélaginu í Straumsvík (nú Rio Tinto á Ís- landi) á verkáætlanadeild, síð- an á tæknisviði, frá 1973 til 2014, og náði því 40 ára starfs- aldri. Steinunn hefur verið í stjórn í klúbbum innan Starfs- mannafélags ISAL, m.a. ljós- myndaklúbbnum, pöntunar- félaginu og tvisvar í stjórn steinasafnaraklúbbsins. Eftir að Steinunn greindist með MND gerðist hún fé- lagsmaður í MND-félaginu og var um tíma í stjórn félagsins. Útförin fer fram frá Grafar- vogskirkju í dag, 28. desember 2022, klukkan 13. Jóni Frímanni Ei- ríkssyni, f. 26.5. 1942. Dóttir þeirra er Anna María, f. 20.9. 1979, sam- býlismaður hennar er Christian Han- sen, f. 13.5. 1978. Synir þeirra eru Emil Frimann, f. 13.4. 2012, og Oli- ver Frimann, f. 7.3. 2015. Í bernsku bjó Steinunn á Þórsgötu, á Keflavík- urflugvelli, á Hverfisgötu og á Dunhaga, þar til hún flutti ásamt foreldrum sínum og systur til Frakklands og bjó þar á unglingsárunum. Stein- Í dag kveðjum við ástkæra systur mína, Steinunni Ástu. Það voru átta ár á milli okk- ar, hún var stóra systir mín. Átta ár eru mörg ár þegar mað- ur er barn, en eftir því sem við eltumst virtist aldursmunurinn sama sem enginn. Aðaláhuga- málin okkar voru þau sömu; börnin, barnabörnin, fjölskyld- an, ferðalög, garðarnir okkar beggja og fleira. Við systur giftum okkur á sama degi, í ágústmánuði árið 1986. Þetta var sameiginlegt brúðkaup í Hallgrímskirkju, sem þá var ekki fullbyggð. Steinunn fékk hann Jón sinn og ég fékk minn Steen. Veislan var haldin hjá foreldrum okkar á Laugateigi og svo var matarboð fyrir þá nánustu um kvöldið. Þetta var í fyrsta skiptið sem við systur skipulögðum eitthvað stórt saman. Mér er sérstak- lega minnisstætt hvað við vor- um sammála í öllu varðandi brúðkaupið, enda var Steinunn alltaf mjög lausnamiðuð og allt- af tilbúin að leysa þau vanda- mál sem upp komu. Hún var skipulögð, og skrif- aði allar ákvarðanir niður svo að engu yrði gleymt. Dagurinn okkar systra var yndislegur, og við höfum oft minnst hans með mikilli gleði, ásamt eiginmönn- um okkar. Ég og fjölskyldan mín höfum margoft gist á fallegu heimili Steinunnar og Jóns þegar við höfum verið í heimsókn á Ís- landi. Þar ríkti ró, næði og kær- leikur. Þótt hún hafi barist við MND-sjúkdóminn síðustu árin buðu þau Jón okkur alltaf vel- komin á heimili sitt hvenær sem var; á jólum, páskum, sumrum og vetrum. Steinunn var blíð í fasi, bros- mild og jákvæð. Þótt MND- sjúkdómurinn hrjáði hana mikið síðustu árin kvartaði hún aldrei en brosti alltaf þegar við kom- um til hennar. Elsku systir. Þú ert ekki lengur hér hjá okkur, en þú munt lifa áfram í hjarta mínu þar sem ég mun bera minning- arnar með mér hvert sem ég fer það sem eftir er af lífi mínu. Þín systir, Birna. Þegar Steinunn Ásta, systir okkar og mágkona, greindist með MND-sjúkdóminn fyrir tæpum níu árum ákvað hún að taka sér tíma og reyna að átta sig á ástandi sínu og framtíð- inni og ná sátt við sjúkdóminn áður en hún segði sínum nán- ustu. Hún vissi að MND átti eftir að verða henni samferða það sem eftir lifði. Hún tók þessum örlögum sínum af miklu æðruleysi og lærði að lifa með sjúkdómnum. Hún vissi að þessi sjúkdómur væri einhver sá versti sem til væri og engin von um bata. Það var bara spurning um tíma. Steinunn hafði með einhverjum óskiljan- legum hætti tekið sjúkdóminn í sátt og þau leiddust hönd í hönd áfram þar til yfir lauk. Við urðum aldrei vör við að hún kvartaði eða vorkenndi sér eða að henni leiddist lífið. Þetta var aðdáunarverð afstaða og okkur hinum óskiljanleg, en til fyr- irmyndar. Hún hélt sínu glaða skapi en breyttist úr hógværri konu í mikinn baráttumann um mál- efni fatlaðra. Hún beitti sér fyr- ir réttindum og hagsmunum fatlaðra og náði umtalsverðum árangri með félögum sínum í MND-félaginu þar sem hún sat í stjórn til nánast hinstu stund- ar, sótti fundi hér á landi og víða erlendis. Steinunn Ásta lést hinn 14. desember sl. eftir níu ára von- lausa baráttu. MND-sjúkdóm- urinn herjar á taugakerfi lík- amans sem allt lamast hægt og rólega þar til heilinn er einn eftir. Síðustu misseri var nán- ast eina samband Steinunnar um sérstaka tölvu sem hún stjórnaði af mikilli færni með augunum einum. Skrollaði og þysjaði út og inn. Fletti dag- blöðum og fylgdist með á Face- book. Aðeins fáum klukku- stundum áður en hún lokaði augunum í síðasta sinn skrifaði hún okkur systkinunum kær- leiksfullan tölvupóst þar sem hún sagði okkur hug sinn allan. Steinunn vann skrifstofu- störf allan sinn starfsaldur. Fyrst hjá Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar og síðustu áratugi sem ritari á tæknideild ÍSAL í Straumsvík. Steinunn var heimskona sem hafði búið í Frakklandi ásamt foreldrum sínum um tíma og ferðaðist víða um lönd með eig- inmanni sínum og dóttur. Hún vann hluta árs á samyrkjubúi í Ísrael sem varð nokkuð enda- sleppt þegar hún þurfti að flýja vegna stríðsins þar í landi árið 1973. Hún var mikil fjölskyldu- manneskja og kom sér upp húsi á uppeldisslóðum forfeðranna í Flatey á Breiðafirði ásamt frændgarðinum. Þar undi hún sér afskaplega vel meðan heils- an leyfði. Steinunn var dagfarsprúð og hafði hógværa og ljúfa skap- gerð og háttvís sem best var hægt að hugsa sér. Góðviljuð og kom alls staðar fram til fyr- irmyndar þar sem hún mátti því við koma enda vinsæl og vandræðalaus. Gekk varlega fram, en af mikilli festu. Hafði sterka sýn á veruleikann og framtíðina. Elsku Steinunn, hvíl þú í friði og þakka þér fyrir allar góðu minningarnar og þann reynsluheim sem þú færðir okkur og sannfæringuna um að hamingjuna er einungis að finna í hjarta hvers og eins. Við munum sakna þín og vottum Jóni Frímann, Önnu Maríu og fjölskyldu okkar dýpstu samúð og lýsum aðdáun á framgöngu þeirra á þeim erfiða tíma sem á undan er genginn. Svanhildur Sigurðardóttir, Hilmar Þór Björnsson. Ótal minningar renna í gegn- um hugann nú þegar Steinunn Ásta föðursystir mín hefur kvatt þessa jarðvist. Þetta eru minningar sem rifjast reyndar oft upp en meira nú en áður. Þessar minningar eru hlýjar og gleðilegar. Steinunn frænka var skemmtileg kona og góð mamma. Uppátækjasöm og blíð. Mamma sem gott er að taka sér til fyrirmyndar. Við Anna María, dóttir hennar og Jóns Frímanns, lékum okkur mikið saman sem börn. Á heim- ilum hvor annarrar og hjá ömmu Maju og afa Bjössa á Laugateigi. Feluleikur, bannað að snerta gólf, kleppari, hollinn- skollinn, snú-snú inn í bleika sumarnótt og eltingaleikur fram að háttatíma. Steinunni frænku var sama þótt við drösl- uðum til svo lengi sem við gengjum á endanum frá eftir okkur. Hún leyfði okkur að hafa hátt meðan það truflaði engan sem ekki þoldi það. Við máttum hlaupa um inni og hlæja okkur máttlausar. Við fengum að vera börn. Máttum lita okkur gular í framan með fíflum, hoppa í pollum og koma drulluskítugar heim. Þá skipaði hún okkur að fara í bað og hrein föt meðan hún hitaði kakó. Svo fléttaði hún á okkur hárið og hló inni í sér. Það var svo gott. Steinunn var ströng í stóru atriðunum en brosti yfir öllu öðru. Við litlu skottin föttuðum alveg hverjar reglurnar voru. Þetta er jafn- vægislist sem bestu uppalendur tileinka sér og Steinunn frænka var meistari í. Það var eins og hún skildi svo vel hvað ærsla- leikur barna er skemmtilegur, mikilvægur og hvað barnæskan er undur fljót að líða. Steinunn var blíð og traust og á heimili þeirra hjóna var af- slappað og gott andrúmsloft. Skemmtilegast af öllu var þeg- ar við Anna María fengum að gista saman. Við suðuðum oft í foreldrum okkar í helgar- kaffinu þar sem fjölskyldan kom saman hjá ömmu og afa um það og fengum stundum já- kvætt svar. Það var best. Við skríktum og hoppuðum af kæti. Steinunn og Jón leyfðu okkur að vaka aðeins lengur og spila kleppara uppi í rúmi. Svo feng- um við Cocoa Puffs í morg- unmat. Þau voru með áskrift að Stöð 2 sem var glæný og fáir höfðu. Við gátum vaknað og horft á Örn Árnason sem Afa í morgunsjónvarpinu á náttföt- unum um helgar og graðgað í okkur Cocoa Puffs með ný- mjólk. Steinunn og Jón áttu heima í Austurbergi í Breið- holti þegar við Anna María vor- um litlar. Þar var róluvöllur í garðinum og við renndum okk- ur á fleygiferð niður stigagang- inn á handriðinu. Seinna bjuggu þau í Logafold í Graf- arvogi sem var að byggjast upp og var mikið ævintýraland. Ég brosi alltaf þegar ég á leið um þessi hverfi. Steinunn tókst á við veikindi sín, MND-sjúk- dóminn, með aðdáunarverðum hætti. Alltaf jákvæð og bros- andi með blik í auga. Þótt lík- ami hennar lamaðist hægt og rólega yfir níu ára skeið og engin lækning fyrir hendi var Steinunn frænka alltaf í jafn- vægi og blíð og brosandi. Til- litssemi hennar gagnvart litlu frænkunum sem hoppuðu fullar af orku í rúmum hennar og sóf- um áratugum áður kalla fram kærleikstár hjá öllum sem gera sér grein fyrir þeim alvarlega sjúkdómi sem hún þurfti að eiga við. Föst í eigin líkama. En Steinunn frænka var alltaf frjáls inni í sér. Sönn hetja. Ég mun varðveita allar góðu minningarnar um Steinunni frænku, og verma mér við þær til æviloka. Hjartans bestu samúðark- veður til Jóns Frímanns, Önnu Maríu, Christians og drengj- anna þeirra. Hvíl í fríði elsku frænka. María Sigrún Hilmarsdóttir. Steinunn Ásta Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.