Morgunblaðið - 28.12.2022, Side 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Sendibílar
Iveco S35 Ekinn 11900 km sk
11.2021
Mercedes Benz 314 CDi 19500 km
sk 11.2021
Toyota Proace stuttur Ekinn 26900
km 08.2019
Renault Master Ekinn 92 þ km
04.2019
Renault Trafic Ekinn 41 þ. km
04.2019
Ford Transit með kassa og lyftu
3500 kg. Ekinn 106 þ.km 12.2018
Uppl. 8201071
kaldasel@islandia.is
Smáauglýsingar
SumarhúsÝmislegt
HÚNAÞING
VESTRA
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi
sínum þann 8. desember 2022 að auglýsa skipu-
lagslýsingu fyrir deiliskipulag í kringum Hvítserk
skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
Skipulagslýsing sem um ræðir er 3,6 ha. að stærð
og er staðsett í vestanverðum botni Húnafjarðar,
í Húnaþingi vestra. Mótað verður framtíðarsýn og
lagt fram stefna um svæðið m.a. að standa vörð
um merkar náttúru- og söguminjar, kortleggja og
skilgreina gönguleiðakerfi og stuðla að betra að-
gengi almennings á svæðinu.
Skipulagslýsing fyrir deiliskipulagstillöguna er ekki
matsskylt samkvæmt reglugerð 66/2015 um mat
á umhverfisáhrifum og í samræmi við aðalskipulag
Húnaþings vestra 2014-2026.
Opið hús verður í ráðhúsi Húnaþings vestra
föstudaginn 9. janúar 2023 frá kl. 10:00-12:00.
Skipulagslýsinguna má nálgast á heimasíðu
sveitarfélagsins hunathing.is
Frestur til að skila inn ábendingum rennur út
20. janúar 2023 og skal þeim skilað á netfangið
skipulagsfulltrui@hunathing.is eða með bréfapósti
stílað á skipulagsfulltrúa Hvammstangabraut 5,
530 Hvammstanga.
Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulagsfulltrúi Húnaþings vestra,
Húnabyggðar og Skagabyggðar
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Útboð vetrarþjónustu
í Súðavík
Súðavíkurhreppur auglýsir útboð á vetrarþjónustu í
Súðavík.
Tilboðsfrestur er til kl. 12:00 þann 5. janúar 2023.
Útboðsfundur verður haldinn 5. janúar 2023
kl. 13:00 í Álftaveri, Grundarstræti 1 í Súðavík.
Útboðum má skila rafrænt á jbh@verkis.is og
bragi@sudavik.is eða til skrifstofu Súðavíkurhrepps.
Nánari upplýsingar um útboð á heimasíðu
Súðavíkurhrepps á sudavik.is en einnig fást frekari
upplýsingar hjá byggingafulltrúa Súðavíkurhrepps,
Jóhanni Birki (jbh@verkis.is s. 898 3772) og sveit-
arstjóra Súðavíkurhrepps (bragi@sudavik.is).
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14.. Bónusbíllinn, fer frá
Árskógum 6-8 kl. 12.45. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl.
14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími: 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 10:00-11:00.
Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Lokum kl. 14:00.
Gerðuberg Opnunartímar yfir hátíðarnar: kl. 10:00 - 15:00
Gjábakki Opin handavinnustofa og verkstæði kl. 8.30 til 16.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Félagsstarf eldri borgara
✝
Þóranna Brynj-
ólfsdóttir fædd-
ist á Reyni í Mýrdal
11. ágúst 1926. Hún
lést 19. desember
2022 á Hrafnistu
við Brúnaveg.
Foreldrar henn-
ar voru Áslaug Vig-
fúsdóttir frá Heið-
arseli á Síðu og
Brynjólfur Einars-
son frá Reyni í Mýr-
dal. Systkini hennar voru: Sig-
urður, d. 1998, Einar, d. 2017,
Sigfús, d. 2022, Sigríður, d. 2000,
Ólafur Siggeir, d. 1932, og Sig-
rún Ólöf, d. 1934. Vilborg Ragn-
hildur lifir systkini sín.
Þóranna giftist Gísla Brynj-
ólfssyni bifreiðastjóra 5. nóv-
ur. 3) Áslaug, landfræðingur og
jarðfræðikennari við Fjölbraut-
skólann í Breiðholti, eiginmaður
Þórður Kr. Jóhannesson við-
skiptafræðingur, börn Kristín
Rut hjúkrunarfræðingur, eig-
inmaður Kjartan Guðmundsson
líffræðingur, börn Una Katrín
og Freyja. Gísli Þór tölv-
unarfræðingur, sambýliskona
Anna Þuríður Pálsdóttir hag-
fræðingur.
Þóranna fluttist nokkurra
mánaða gömul í Hjörleifshöfða á
Mýrdalssandi ásamt foreldrum
og Sigurði elsta bróður sínum.
Þar fæddust Einar, Sigfús og
Sigríður en fjölskyldan fór úr
Höfðanum 1930. Fjölskyldan
hafði stutta viðkomu á Suður-
Götum í Mýrdal þar sem Vilborg
fæddist og fluttu síðan að Dyr-
hólum í Mýrdal 1931 þar til for-
eldrar hennar fluttu til Reykja-
víkur 1950.
Þóranna gekk í barnaskóla í
Litla-Hvammi og aðstoðaði við
búskapinn á Dyrhólum. Hún fór
síðar í húsmæðraskólann á
Laugalandi í Eyjafirði 1950-51.
Þar naut hún sín vel, eignaðist
vinkonur fyrir lífstíð, nam hús-
stjórnun, matreiðslu og lærði á
skíði. Á lífsleiðinni fékkst hún
við ýmis störf í nærsveitum, á
Austfjörðum og loks í Reykjavík.
Frá 1976 til 1996 vann hún sem
aðstoðarmaður á Landspít-
alanum, auk húsmóðurstarfa.
Gísli og Þóranna gengu í
byggingarsamvinnufélag ungra
framsóknarmanna, sem reisti
fjölbýlishús í Bogahlíð 12-18. Þar
bjuggu þau í skemmtilegu sam-
félagi ungra foreldra með börn-
in sín þrjú. Vorið 1968 byggðu
þau einbýlishúsið í Fornastekk
13 í Breiðholti og voru ein af
frumbýlingunum þar. Síðar
fluttu þau í Árskóga 6. Þóranna
bjó þar áfram eftir að Gísli dó
2008, þar til hún flutti á Hrafn-
istu fyrir fimm árum.
Útför Þórönnu fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 28. desem-
ber 2022, klukkan 13.
ember 1955. Börn
þeirra eru: 1) Guð-
rún, prófessor í
landfræði við Há-
skóla Íslands. Sonur
Freyr Tómasson
hagfræðingur, eig-
inkona Erna Ein-
arsdóttir hönnuður,
dætur Salka og
Yrsa. 2) Sigurður
Reynir, rann-
sóknaprófessor í
jarðefnafræði við Háskóla Ís-
lands, eiginkona Málfríður Klara
Kristiansen arkitekt, börn Anna
Diljá upplýsingahönnuður og
Birnir Jón sviðslistamaður og
rithöfundur, sambýliskona Hall-
veig Kristín Eiríksdóttir sviðs-
listakona og leikmyndahönnuð-
Mamma var nokkurra mánaða
gömul þegar hún flutti í Hjör-
leifshöfða, brimbrjót Kötlu-
hlaupa á Mýrdalssandi. Frá
reisulegum bænum var stórkost-
legt útsýni á haf út og vestur
Sand. Ein sterkasta minning
mömmu úr Höfðanum var þegar
afi, sem var sigmaður, var dreg-
inn upp á brún með blómvönd
handa mömmu í hendinni. Í
Höfðanum fæddust Einar og Sig-
fús, báðir á miðju sumri, og svo
Sigríður rétt fyrir jól 1929. Þegar
stefndi í fæðingu Vilborgar seint
í desember 1930 var þrýst á ungu
hjónin að flytja til „byggða“ áður
en skammdegið skylli á. Þá voru
aðeins 12 ár frá Kötlugosi og
ferðalög um sandinn uggvænleg
fyrir ljósmóðir og héraðslækni.
Fjölskyldan hafði stutta viðkomu
á Suður-Götum í Mýrdal þar sem
Vilborg fæddist og hófu þau síð-
an búskap á Dyrhólum í Mýrdal
1931. Þar lærði mamma að klifra
og upplifði önnur ævintýri. Þegar
hún stálpaðist réð hún sig sem
matráðskonu í símavinnuflokk.
Eitt kvöldið voru strákarnir að
æfa sig í skotfimi og mamma
fékk að prufa. Einn strákanna
benti þá á símavírskúluna á
næsta símastaur. Hún smellhitti
og strákurinn varð að gjöra svo
vel að spenna á sig klifurlykkj-
urnar og hengja símalínuna upp
á ný. Hún vann svo um tíma á
hótelinu í Vík og klifraði oft upp á
fjallið Höttu áður en hún fór í
vinnuna. Seinna fór mamma í
vinnu austur á firði þar sem hún
gekk í Æskulýðsfylkinguna til að
komast á ball í Neskaupstað. Það
kom henni í koll áratugum síðar
þegar hún og pabbi ætluðu að
heimsækja Sigga til Bandaríkj-
anna. Hún var í vandræðum með
að fá vegabréfsáritun því hún var
skráð sem kommúnisti í skjölum
bandaríska sendiráðsins í
Reykjavík vegna Neskaupstað-
arballsins.
Mamma var meistarakokkur,
ræktaði sitt grænmeti sjálf, tíndi
ber, saftaði og sultaði. Hún leið-
beindi okkur með heimanámið og
kærar eru minningarnar um
Skólaljóðin sem við lásum og
sungum saman. Mömmu langaði
alltaf að læra meira, en tækifær-
in gáfust ekki og metnaður henn-
ar var mikill fyrir hönd okkar
systkinanna. Mamma og pabbi
byggðu sælureit í Fornastekk 13.
Þar verpti skógarþröstur í birk-
inu við svefnherbergisgluggann
þeirra, og mamma spilaði fót-
bolta við barnabörnin á stóru
flötinni sunnan megin. Frey,
elsta barnabarninu, fannst það
engin afsökun þótt mamma væri
hælbrotin og í gifsi eitt sumarið,
„… hún gæti alla vega verið í
marki“.
Þegar mamma og pabbi voru
komin á sjötugsaldurinn seldu
þau húsið í Fornastekk og
keyptu íbúð á 12. hæð í Árskóg-
um í Breiðholti. Þar var gott að
vera, mamma fór á gönguskíði á
ÍR-vellinum, gekk iðulega upp
hæðirnar tólf sér til heilsubótar
þegar enginn sá, og stalst til að
gefa hröfnunum afgangs slátur-
vambir. Mamma varð lögblind en
fór þó samt gangandi í verslunar-
leiðangra í Mjóddina, þar sem
starfsfólkið hjálpaði henni með
innkaupin. Loks, rúmlega níræð,
komst hún inn á Hrafnistu þar
sem vel var að henni hlúð.
Mamma var kjarkmikil en
undurblíð kona, allt fram á síð-
ustu stundu.
Sigurður Reynir,
Guðrún og Áslaug.
Þóranna var glæsileg kona,
skvísa til hinsta dags og hafði
áhrif á marga með gæsku sinni
og gáfum. Ég kynntist henni fyr-
ir um 40 árum þegar við Siggi
fórum að draga okkur saman og
ég gisti endrum og eins í Forn-
astekk í fríum, en við vorum þá
við nám hvort sínum megin við
Atlantshafið. Það var gott að
koma heim til Gísla og Önnu, við-
mótið var afslappað og ég fann
mig velkomna.
Þóranna var fluggreind, en
löng skólaganga stóð ekki til
boða. Hún fór hins vegar í Hús-
mæðraskólann á Laugalandi, og
hefur greinilega lært allt sem
mögulegt var þar á þessum eina
vetri. Hún var algjör fyrirmynd
hvað varðaði sjálfbærni og lýð-
heilsu, nýtin, vel að sér í næring-
arfræði, ræktaði grænmeti, eld-
aði allan mat frá grunni,
útilegunaslið var smörrebröd,
bakaði epískar tertur, var dugleg
að hreyfa sig og þegar hún komst
ekki í Bláfjöll tók hún bara
gönguskíðin sín út á túnið í Suð-
ur-Mjódd og gekk þar. Krakk-
arnir hennar urðu allir náttúru-
fræðingar og er ég viss um að
það voru áhrif frá Önnu, bænda-
dóttirin kunni á náttúruna,
þekkti fugla og blóm og á meðan
hún bjó í eigin húsnæði nutu
smáfuglar og hrafnar veitinga
þegar jarðbönn voru. Anna hafði
góðan húmor, tók vel eftir ýmsu
spaugilegu, en fór fínt með, enda
alltaf kurteis og tillitssöm, stund-
um of fannst mér, en kannski
skildi ég bara ekki alltaf skaft-
fellskuna hennar. Eftir að við
Siggi eignuðumst krakkana að-
stoðaði hún okkur þegar þörf var
á og skemmti sér oft vel yfir
uppátækjum og tilsvörum þeirra.
Þrátt fyrir alla hennar reynslu
gaf hún mér bara eitt uppeldis-
ráð: Vertu góð við börnin þín, ráð
sem rúmar í raun allt.
Minningar um nærandi sam-
verustundir eru margar og ég
þakka tengdamömmu samfylgd-
ina af öllu hjarta.
Málfríður Klara.
Þóranna
Brynjólfsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SÆVAR FRIÐÞJÓFSSON
útvegsbóndi,
Rifi,
lést á Landspítala við Hringbraut
15. desember. Útför fer fram föstudaginn 30. desember
klukkan 14 frá Ingjaldshólskirkju. Streymt verður frá athöfn:
https://youtu.be/i70a5j6SVxY.
Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat.
Helga Hermannsdóttir
Halldóra Sævarsdóttir Reynir Rúnar Reynisson
Sæunn Sævarsdóttir Geir Jón Karlsson
Friðþjófur Sævarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar elskulegi pabbi, afi, bróðir og vinur,
SIGURÐUR ÓLAFUR GUNNARSSON
flugvélstjóri,
lést í faðmi fjölskyldunnar á sjúkrahúsi í
Alícante þriðjudaginn 6. desember.
Jarðarförin verður þriðjudaginn
3. janúar klukkan 13 í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Hægt verður að nálgast streymi frá athöfninni á streyma.is.
Einnig verður hægt að nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat.
Jökull Sigurðsson Guðrún Elva Guðmundsdóttir
Mjöll Sigurðardóttir
Geir Sigurðsson Vilma Kinderyte
Gerður Gunnarsdóttir Grétar Br. Kristjánsson
Gauti Gunnarsson Jacqueline Gunnarsson
og afabörn