Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 2
Hvenær og hvernig varð Starína til? Starína sjálf varð til fyrir tuttugu árum og hefur tekið á sig ýmsar myndir síðan. Hvernig karakter er Starína? Í dag er hún algjör prinsessa sem vill bera út boðskap um kærleika og frið. Hún vill kenna öllum að hver einasti ein- staklingur er einstakur og á að elska sjálfan sig alveg eins og hann er. Nú er Starína að lesa fyrir börn, hvernig byrjaði það? Það var langþráður draumur að gera eitthvað fyr- ir börn. Þegar ég var krakki horfði ég á Með afa og síðar sá ég myndina Mrs. Doubtfire, en í lok myndar er hún með sitt eigið barnaefni í sjónvarpi. Þetta heillaði mig upp úr skónum og ég fann að mig langaði að gera eitthvað svona. Þegar ég fór í dragið kom ég meira fram innan um annað hinsegin fólk en í dag eru drag- drottningar um allan heim að fara inn á bókasöfn og lesa barnabækur. Mér datt í hug að fara að gera þetta og þrátt fyrir lesblindu lét ég til skarar skríða. Ég las í fyrsta sinn fyrir börn árið 2018 á jólaskemmtun. Þá byrjaði bolt- inn að rúlla. Hvað ætlar þú að lesa um helgina? Á hinsegin dögum finnst mér skemmtilegast að lesa bækur með hinsegin karakterum. Það eru til margar skemmtilegar bækur, meðal annars bókin Ég er Jazz, saga um trans stúlku. Hvernig taka börnin þér? Mjög vel! Þau eru opin, forvitin og heiðarleg. STARÍNA SITUR FYRIR SVÖRUM Prinsessa með boðskap Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022 Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga innlifun.is Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is N ú í lok Hinsegin daga er tilvalið að tileinka blaðið hinsegin fólki og heyra í nýjum röddum. Í blaði dagsins er rætt við tvo aktívista, Mars M. Proppé, sem er kynsegin, og trans konuna Uglu Stefaníu Kristjönu- dóttur Jónsdóttur. Auk þess er rifjuð upp saga gleðigöngunnar í máli og mynd- um. Bæði Mars og Ugla brenna fyrir málefnum hinsegin og kynsegin fólks og ástríðan og eldmóðurinn leynir sér ekki. Mars nefnir að hvert og eitt beri ábyrgð á að víkka út sinn sjóndeildarhring og breyta sinni heimsmynd í takt við þróun og breytingar í samfélaginu þegar kemur að málefnum hinsegin og kynsegin fólks, réttindum þess og tilverurétti. Mér finnst þetta áhugaverð pæling og hárétt hjá háni; auðvitað á hvert og eitt að finna hjá sér þörf fyrir að fræðast og skilja svo hægt sé að útrýma fordómum sem við erum öll haldin, þó flest okkar vilji ekki viðurkenna það. Réttindabarátta homma og lesbía er ekkert ný af nálinni og flest eigum við vini og fjölskyldumeðlimi sem eru sam- kynhneigð. Það þykir fæstum neitt at- hugavert við það í dag, að minnsta kosti engum sem ég þekki. En það var ekki alltaf svo og hefur þurft blóð, svita og tár hjá hinsegin fólki til að fá sömu réttindi og önnur og sömu tækifæri. En bar- áttan er aldrei búin, þó margt gott hafi áunnist. Trans fólk og kynsegin fólk hefur ekki verið jafn sýnilegt og hommar og lesbí- ur til þessa, en það er löngu tímabært. Þau eru hluti af samfélaginu og eru ekki að fara neitt! Eins og flest þekki ég mörg samkynhneigð, en Mars er fyrsta kynsegin mann- eskjan sem ég hitti og Ugla fyrsta trans konan sem ég tala við (svo ég viti), og kominn tími til. Margt sem þau sögðu opnaði augu blaðamanns. Bæði tala þau um bakslag í baráttu hinsegin og kynsegin fólks víða um heim og velta þau upp spurningum um hvað valdi því og hvers vegna neikvæð orðræða sé að færast í aukana. Bæði Ugla og Mars telja að ekki megi sofna á verðinum í baráttunni enda eiga öll rétt á að lifa eins og þau kjósa, án þess að verða fyrir ofbeldi eða aðkasti. Nú er mál að opna augun og kynna sér málefni trans fólks og kynsegin fólks og hætta að dæma. Ef við viljum búa í kærleiksríku samfélagi þar sem er pláss fyrir öll verðum við öll, eins og Ugla segir, að standa vörð hvert um annað. Hinsegin og kynsegin kærleikur Pistill Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Trans fólk og kynsegin fólk hefur ekki verið jafn sýnilegt og hommar og lesbíur til þessa, en það er löngu tímabært. Þau eru hluti af samfélaginu og eru ekki að fara neitt! Íris Björk Aradóttir Já, ég ætla að gera það. Ég fer vel búin í gönguna. SPURNING DAGSINS Ætlar þú að sjá nýja eldgosið? Jón Breki Jónasson Nei, ég hef heyrt að það sé hættu- legt og ég sá síðasta gos, það er nóg. María Selma Haseta og Viktor Bjarki Kannski, það getur verið. Ég sá ekki síðasta gos því ég var ólétt. Gísli Þorsteinsson Nei, ekki séns, hef engan áhuga. Ég sá fyrra gos og það dugar mér. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Dragdrottningin Starína verður með Dragstund Starínu í Borgarbóka- safninu Grófinni sunnu- daginn 7. ágúst klukkan 15-15.30. Eftir lesturinn geta börnin heilsað upp á Starínu og fengið mynd með henni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.