Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Page 2
Hvenær og hvernig varð Starína til?
Starína sjálf varð til fyrir tuttugu árum og hefur tekið á sig
ýmsar myndir síðan.
Hvernig karakter er Starína?
Í dag er hún algjör prinsessa sem vill bera út boðskap um
kærleika og frið. Hún vill kenna öllum að hver einasti ein-
staklingur er einstakur og á að elska sjálfan sig alveg
eins og hann er.
Nú er Starína að lesa fyrir börn,
hvernig byrjaði það?
Það var langþráður draumur að gera eitthvað fyr-
ir börn. Þegar ég var krakki horfði ég á Með afa
og síðar sá ég myndina Mrs. Doubtfire, en í
lok myndar er hún með sitt eigið barnaefni
í sjónvarpi. Þetta heillaði mig upp úr
skónum og ég fann að mig langaði að
gera eitthvað svona. Þegar ég fór í
dragið kom ég meira fram innan um
annað hinsegin fólk en í dag eru drag-
drottningar um allan heim að fara inn á
bókasöfn og lesa barnabækur. Mér datt í
hug að fara að gera þetta og þrátt fyrir
lesblindu lét ég til skarar skríða. Ég
las í fyrsta sinn fyrir börn árið 2018
á jólaskemmtun. Þá byrjaði bolt-
inn að rúlla.
Hvað ætlar þú að lesa
um helgina?
Á hinsegin dögum finnst mér
skemmtilegast að lesa bækur
með hinsegin karakterum. Það
eru til margar skemmtilegar
bækur, meðal annars bókin Ég er
Jazz, saga um trans stúlku.
Hvernig taka börnin þér?
Mjög vel! Þau eru opin, forvitin og heiðarleg.
STARÍNA
SITUR FYRIR SVÖRUM
Prinsessa með boðskap
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga innlifun.is
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
N
ú í lok Hinsegin daga er tilvalið að tileinka blaðið hinsegin fólki og heyra
í nýjum röddum. Í blaði dagsins er rætt við tvo aktívista, Mars M.
Proppé, sem er kynsegin, og trans konuna Uglu Stefaníu Kristjönu-
dóttur Jónsdóttur. Auk þess er rifjuð upp saga gleðigöngunnar í máli og mynd-
um.
Bæði Mars og Ugla brenna fyrir málefnum hinsegin og kynsegin fólks og
ástríðan og eldmóðurinn leynir sér ekki. Mars nefnir að hvert og eitt beri ábyrgð
á að víkka út sinn sjóndeildarhring og breyta sinni heimsmynd í takt við þróun og
breytingar í samfélaginu þegar kemur
að málefnum hinsegin og kynsegin
fólks, réttindum þess og tilverurétti.
Mér finnst þetta áhugaverð pæling og
hárétt hjá háni; auðvitað á hvert og eitt
að finna hjá sér þörf fyrir að fræðast og
skilja svo hægt sé að útrýma fordómum
sem við erum öll haldin, þó flest okkar
vilji ekki viðurkenna það.
Réttindabarátta homma og lesbía er
ekkert ný af nálinni og flest eigum við
vini og fjölskyldumeðlimi sem eru sam-
kynhneigð. Það þykir fæstum neitt at-
hugavert við það í dag, að minnsta kosti
engum sem ég þekki. En það var ekki
alltaf svo og hefur þurft blóð, svita og
tár hjá hinsegin fólki til að fá sömu réttindi og önnur og sömu tækifæri. En bar-
áttan er aldrei búin, þó margt gott hafi áunnist.
Trans fólk og kynsegin fólk hefur ekki verið jafn sýnilegt og hommar og lesbí-
ur til þessa, en það er löngu tímabært. Þau eru hluti af samfélaginu og eru ekki
að fara neitt!
Eins og flest þekki ég mörg samkynhneigð, en Mars er fyrsta kynsegin mann-
eskjan sem ég hitti og Ugla fyrsta trans konan sem ég tala við (svo ég viti), og
kominn tími til. Margt sem þau sögðu opnaði augu blaðamanns. Bæði tala þau
um bakslag í baráttu hinsegin og kynsegin fólks víða um heim og velta þau upp
spurningum um hvað valdi því og hvers vegna neikvæð orðræða sé að færast í
aukana.
Bæði Ugla og Mars telja að ekki megi sofna á verðinum í baráttunni enda eiga
öll rétt á að lifa eins og þau kjósa, án þess að verða fyrir ofbeldi eða aðkasti. Nú er
mál að opna augun og kynna sér málefni trans fólks og kynsegin fólks og hætta
að dæma. Ef við viljum búa í kærleiksríku samfélagi þar sem er pláss fyrir öll
verðum við öll, eins og Ugla segir, að standa vörð hvert um annað.
Hinsegin og
kynsegin kærleikur
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’
Trans fólk og kynsegin
fólk hefur ekki verið
jafn sýnilegt og hommar
og lesbíur til þessa, en það
er löngu tímabært. Þau
eru hluti af samfélaginu
og eru ekki að fara neitt!
Íris Björk Aradóttir
Já, ég ætla að gera það. Ég fer vel
búin í gönguna.
SPURNING
DAGSINS
Ætlar þú
að sjá nýja
eldgosið?
Jón Breki Jónasson
Nei, ég hef heyrt að það sé hættu-
legt og ég sá síðasta gos, það er nóg.
María Selma Haseta og
Viktor Bjarki
Kannski, það getur verið. Ég sá ekki
síðasta gos því ég var ólétt.
Gísli Þorsteinsson
Nei, ekki séns, hef engan áhuga. Ég
sá fyrra gos og það dugar mér.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Dragdrottningin Starína
verður með Dragstund
Starínu í Borgarbóka-
safninu Grófinni sunnu-
daginn 7. ágúst klukkan
15-15.30. Eftir lesturinn
geta börnin heilsað upp
á Starínu og fengið
mynd með henni.