Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 10
MYNDLIST 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022 þeim sem tóku þátt í fjöldamorðunum á Torgi hins himneska friðar,“ segir í textanum. „Það er ekki mikið til af þessum gripum í heiminum þar sem kínversk stjórnvöld ákváðu á end- anum að afturkalla þau, vegna þess að þau væru sönnun um að í raun hefði „eitthvað“ gerst. Á þau var ritað „89.6 Í minningu þess er uppreisnin var kveðin niður“.“ Í apríl í fyrra fór eitt af þessum úrum á upp- boð í London. Badiucao fékk pata af því og fór að vekja athygli á að selja ætti „sönnun um fjöldamorðin á Torgi hins himneska friðar á uppboði“. Uppboðinu var aflýst, en í kjölfarið hafði Bandaríkjamaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sam- band við Badiucao og gaf honum eitt af úr- unum með því skilyrði að hann vekti athygli á sögu þess. Annað verk á sýning- unni nefnist Dagbók frá Wuhan. Við verkið er tilvitnun í Badiucao þar sem hann ræðir dag- bókina árið 2020: „Ég er brú á milli meg- inlands Kína og heimsins. Ég nýt þess að búa erlendis og vera með marga fylgjendur á fé- lagsmiðlum. Að auki veit stjórn Kína hver ég er. Þessi verknaður mun ekki setja mig í meiri hættu en ég er í nú þegar.“ Myndirnar í verkinu eru tileinkaðar lækn- inum Li Wen-liang, sem þegar í upphafi varaði við útbreiðslu nýrrar tegundar af kórónuveir- unni og lést sjálfur af völdum hennar. Ba- diucao birti daglega frásagnir íbúa í Wuhan í fyrsta útgöngubanninu þar í borg. Þetta blogg er eini vitnisburðurinn, ásamt dagbók skálds- ins Fang Fang, um líf íbúa Wuhan á þessum tíma, sem ekki hefur sætt ritskoðun kín- verskra stjórnvalda. Samleið Kína og Rússlands á ný Innrás Rússa í Úkraínu leikur stóran þátt í nýjustu verkum Badiucaos. Hann veltir mikið fyrir sér hvaða áhrif stríðið muni hafa og tal- ar um fiðrildaáhrif Kænugarðs. Líkt og vængjasláttur fiðrildis geti það sem er að ger- ast í Kænugarði í dag valdið hvirfilbyl í Peking eftir mánuð. Í kynningartexta á sýningunni er farið yfir það að sambandinu milli Kína og Sovétríkj- anna hafi hrakað eftir að Stalín var steypt af stalli á sjöunda áratugnum og eftir deiluna um eyjuna Zhenbao 1969 hafi verið mjög stirt á milli ríkjanna. Nú séu þessi tvö stórveldi hins vegar að nálgast hvort annað á ný. Á einni myndinni gefur Xi Jinping, leiðtogi Kína, Vladimír Pútín Rússlandsforseta brjóst. Eitt áhrifamesta verkið á sýningunni nefnist „Ég elska lyktina af soja á morgnana“ og er vísun í myndina Apocalypse Now, þar sem Ro- bert Duvall í hlutverki hins stríðsóða Kilgores herforingja segist elska napalmlykt á morgn- ana. Þar hangir á vegg málverk af „PúXi“ þar sem andlit Xis og Pútíns renna saman. Fyrir framan verkið standa flöskur með sojasósu. Upp úr þeim stendur taubútur, svo minnir á molotov-kokteila og eiga að minna á mótmæli almennings. Badiucao fæddist í Kína 1986 og ólst upp í Sjanghaí. Hann ætlaði að verða lögfræðingur, en heimildamynd, sem gerð var á laun um fjöldamorðin á Torgi hins himneska friðar árið 1989, hafði slík áhrif á hann að hann hætti í laganámi og helgaði sig andófslist. Árið 2009 flutti hann til Ástralíu og nú vinnur hann þar. Í fyrra hlaut Badiucao Vaclav Havel- verðlaunin fyrir skapandi andóf. Garrí Kasp- arov, forseti mannréttindastofnunarinnar Human Rights Foundation, afhenti honum verðlaunin. Þau eru veitt listamönnum, sem með skapandi hætti afhjúpa blekkingar ein- ræðisríkja. Gestur virðir fyrir sér verk á sýningunni. Á öðru stingur stúlka sólblómi í hlaup rússnesks skrið- dreka, á hinu er lík á jörðinni og upp úr því sprettur sólblóm. Sólblómið er þjóðarblóm Úkraínu. Badiucao fjallar um mótmæli í Búrma. Höndin er almenningur og kaskeitið herforingjastjórnin. ’ Ég vil frekar samfélag þar sem listin hefur afskipti af pólitík, en þar sem pólitíkin hefur afskipti af listinni.“ Morgunblaðið/kbl Badiucao segir að eftir áratuga misklíð nálgist nú einræðisríkin Kína og Rússland með Kína í bíl- stjórasætinu. Hér sýnir hann Xi Jinping með Pútín veifandi kjarnorkuflaug sem hvítvoðung á brjósti. Þessa mynd af Pútín að hóta kjarnorkustríði málaði Badiucao eftir innrásina í Úkraínu. Badiucao veltir fyrir sér ábyrgð al- þjóðlegra stórfyr- irtækja á sýningunni í Prag og talar ekki undir rós. Hér setur hann umsvif þekktra fyrirtækja í samhengi við aðför kínverskra stjórnvalda að Úig- úrum í Kína með beinskeyttum hætti.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.