Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Page 10
MYNDLIST
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022
þeim sem tóku þátt í fjöldamorðunum á Torgi
hins himneska friðar,“ segir í textanum. „Það
er ekki mikið til af þessum gripum í heiminum
þar sem kínversk stjórnvöld ákváðu á end-
anum að afturkalla þau, vegna þess að þau
væru sönnun um að í raun hefði „eitthvað“
gerst. Á þau var ritað „89.6 Í minningu þess er
uppreisnin var kveðin niður“.“
Í apríl í fyrra fór eitt af þessum úrum á upp-
boð í London. Badiucao fékk pata af því og fór
að vekja athygli á að selja ætti „sönnun um
fjöldamorðin á Torgi hins himneska friðar á
uppboði“. Uppboðinu var aflýst, en í kjölfarið
hafði Bandaríkjamaður, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, sam-
band við Badiucao og
gaf honum eitt af úr-
unum með því skilyrði
að hann vekti athygli á
sögu þess.
Annað verk á sýning-
unni nefnist Dagbók frá Wuhan. Við verkið er
tilvitnun í Badiucao þar sem hann ræðir dag-
bókina árið 2020: „Ég er brú á milli meg-
inlands Kína og heimsins. Ég nýt þess að búa
erlendis og vera með marga fylgjendur á fé-
lagsmiðlum. Að auki veit stjórn Kína hver ég
er. Þessi verknaður mun ekki setja mig í meiri
hættu en ég er í nú þegar.“
Myndirnar í verkinu eru tileinkaðar lækn-
inum Li Wen-liang, sem þegar í upphafi varaði
við útbreiðslu nýrrar tegundar af kórónuveir-
unni og lést sjálfur af völdum hennar. Ba-
diucao birti daglega frásagnir íbúa í Wuhan í
fyrsta útgöngubanninu þar í borg. Þetta blogg
er eini vitnisburðurinn, ásamt dagbók skálds-
ins Fang Fang, um líf íbúa Wuhan á þessum
tíma, sem ekki hefur sætt ritskoðun kín-
verskra stjórnvalda.
Samleið Kína og Rússlands á ný
Innrás Rússa í Úkraínu leikur stóran þátt í
nýjustu verkum Badiucaos. Hann veltir mikið
fyrir sér hvaða áhrif
stríðið muni hafa og tal-
ar um fiðrildaáhrif
Kænugarðs. Líkt og
vængjasláttur fiðrildis
geti það sem er að ger-
ast í Kænugarði í dag
valdið hvirfilbyl í Peking eftir mánuð.
Í kynningartexta á sýningunni er farið yfir
það að sambandinu milli Kína og Sovétríkj-
anna hafi hrakað eftir að Stalín var steypt af
stalli á sjöunda áratugnum og eftir deiluna
um eyjuna Zhenbao 1969 hafi verið mjög stirt
á milli ríkjanna. Nú séu þessi tvö stórveldi
hins vegar að nálgast hvort annað á ný. Á
einni myndinni gefur Xi Jinping, leiðtogi
Kína, Vladimír Pútín Rússlandsforseta
brjóst.
Eitt áhrifamesta verkið á sýningunni nefnist
„Ég elska lyktina af soja á morgnana“ og er
vísun í myndina Apocalypse Now, þar sem Ro-
bert Duvall í hlutverki hins stríðsóða Kilgores
herforingja segist elska napalmlykt á morgn-
ana. Þar hangir á vegg málverk af „PúXi“ þar
sem andlit Xis og Pútíns renna saman. Fyrir
framan verkið standa flöskur með sojasósu.
Upp úr þeim stendur taubútur, svo minnir á
molotov-kokteila og eiga að minna á mótmæli
almennings.
Badiucao fæddist í Kína 1986 og ólst upp í
Sjanghaí. Hann ætlaði að verða lögfræðingur,
en heimildamynd, sem gerð var á laun um
fjöldamorðin á Torgi hins himneska friðar árið
1989, hafði slík áhrif á hann að hann hætti í
laganámi og helgaði sig andófslist. Árið 2009
flutti hann til Ástralíu og nú vinnur hann þar.
Í fyrra hlaut Badiucao Vaclav Havel-
verðlaunin fyrir skapandi andóf. Garrí Kasp-
arov, forseti mannréttindastofnunarinnar
Human Rights Foundation, afhenti honum
verðlaunin. Þau eru veitt listamönnum, sem
með skapandi hætti afhjúpa blekkingar ein-
ræðisríkja.
Gestur virðir fyrir sér verk á sýningunni. Á öðru stingur stúlka sólblómi í hlaup rússnesks skrið-
dreka, á hinu er lík á jörðinni og upp úr því sprettur sólblóm. Sólblómið er þjóðarblóm Úkraínu.
Badiucao fjallar um mótmæli í Búrma. Höndin er almenningur og kaskeitið herforingjastjórnin.
’
Ég vil frekar samfélag þar
sem listin hefur afskipti af
pólitík, en þar sem pólitíkin
hefur afskipti af listinni.“
Morgunblaðið/kbl
Badiucao segir að eftir áratuga misklíð nálgist nú einræðisríkin Kína og Rússland með Kína í bíl-
stjórasætinu. Hér sýnir hann Xi Jinping með Pútín veifandi kjarnorkuflaug sem hvítvoðung á brjósti.
Þessa mynd af Pútín að hóta kjarnorkustríði
málaði Badiucao eftir innrásina í Úkraínu.
Badiucao veltir fyrir
sér ábyrgð al-
þjóðlegra stórfyr-
irtækja á sýningunni í
Prag og talar ekki
undir rós. Hér setur
hann umsvif þekktra
fyrirtækja í samhengi
við aðför kínverskra
stjórnvalda að Úig-
úrum í Kína með
beinskeyttum hætti.