Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 8
MYNDLIST 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022 S ýningin á verkum eftir Badiucao í listasafninu Dox í Prag nefnist MADe IN CHINA og gerir eini lágstafurinn í yfirskriftinni hana tvíræða. Það var þó ekki einungis sú tvíræðni sem stóð í Kínverjum þegar þeir reyndu að koma í veg fyrir að sýningin yrði opnuð 12. maí. Kínverska sendiráðið í Prag setti mikinn þrýsting á listasafnið og sagði að sýningin væri „rógur um leiðtoga Kína og særði tilfinningar kínversku þjóðarinnar“. Daginn fyrir opnunina hringdi farsími Mich- aelu Silpochovu, annars sýningarstjóra sýn- ingarinnar í Dox. Á línunni var Hao Hong, menningarfulltrúi sendiráðsins, sem kvaðst vera að hringja fyrir hönd þess. Sagði hann að verk Badiucaos „svertu ímynd leiðtoga Kína“ og „særðu tilfinningar kínversku þjóðarinnar“. Sagði hún að sýningin myndi „eyðileggja sam- bandið milli þjóðanna tveggja“. Safnið ákvað að halda sínu striki. Badiucao sagði í viðtali, eftir að sýningin var opnuð, að kínversk stjórnvöld litu á alla gagnrýni sem róg. „Allt þetta tal um særðar tilfinningar og róg er bara fyrirsláttur þeirra til að komast hjá gagnrýni og aðhaldi,“ sagði hann í viðtali við Radio Free Asia. Badiucao sagði að í sýningunni væru kín- versk stjórnvöld gagnrýnd, en hann hefði aldr- ei gert lítið úr Kínverjum eða viljað særa kín- versku þjóðina. Listin ætti að skipta sér af pólitík, sagði hann og bætti við: „Ég vil frekar samfélag þar sem listin hefur afskipti af póli- tík, en þar sem pólitíkin hefur afskipti af list- inni.“ Hann sagði að í lýðræðisríki væri fáránlegt að kæfa tjáningu, beita ritskoðun og hóta lista- mönnum: „Tékkar bjuggu eitt sinn einnig í al- ræðisríki og minningin um ritskoðun er enn mjög sterk hjá þeim. Með því að gera þetta eru kínversk stjórnvöld að endurvekja mjög sárs- aukafullar minningar úr sögu þeirra.“ Sýningin í Prag var fyrst sett upp í Brescia á Ítalíu í fyrrahaust. Í sýningarskrá með sýn- ingunni í Prag segir að nokkrum dögum áður hafi kínversk stjórnvöld skrifað borgarstjóra Brescia og krafist þess að sýningunni yrði af- lýst. Það hafi spurst hratt út og verið mikið fjölmiðlaslys fyrir kínverska menningarpólitík. Á yfirlitssýningunni í Dox kennir ýmissa grasa. Badiucao fjallar um blóðbaðið á Torgi hins himneska friðar 1989, kúgun Úígúra, að- förina að lýðræði í Hong Kong, hastarlegar að- gerðir kínverskra stjórnvalda vegna kór- ónuveirunnar og innrás Rússa í Úkraínu. Verkin eru yfirleitt kröftug og sláandi. Málar með blóði sínu Í einu herberginu eru 64 myndir hlið við hlið, sem gerðar eru með blóði listamannsins. Í hverjum ramma er far eftir úr og ól þess. Í skýringartexta segir að í ljóðrænu Badiucaos megi greina það sem var „fyrir og eftir Torg hins himneska friðar“. „Í leitinni að því sem kom á eftir, kom fram hin ótrúlega saga um stálúrið, sem smíðað var til minningar handa Andóf gegn blekking- um einræðisríkja Kínverski listamaðurinn Badiucao hefur verið kínverskum stjórnvöldum óþægur ljár í þúfu. Verk hans eru beitt og ágeng eins og sjá má á yfirlitssýningu, sem nú stendur yfir í Prag. Texti og myndir eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is Fyrir framan mynd þar sem andlit Xi Jinpings og Vladimírs Pútíns renna saman í PúXi standa soja- flöskur með hönskum á stútum og minna á molotovkokteila. Morgunblaðið/kbl Ádeila á morðin á Torgi hins himneska friðar árið 1989 máluð með blóði listamannsins. Hugmyndir eru skotheldar er yfirskrift myndar sem Badiucao gerði á meðan mótmæli stóðu yfir gegn aðför kínverskra stjórnvalda að lýðræði í Hong Kong. Snúið út úr þekktum vörumerkjum á neonljósabás á sýningu Baduicaos í safninu Dox í Prag. Kín- verska sendiráðið í Prag reyndi að koma í veg fyrir að sýningin yrði opnuð.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.