Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Side 8
MYNDLIST
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022
S
ýningin á verkum eftir Badiucao í
listasafninu Dox í Prag nefnist
MADe IN CHINA og gerir eini
lágstafurinn í yfirskriftinni hana
tvíræða. Það var þó ekki einungis
sú tvíræðni sem stóð í Kínverjum þegar þeir
reyndu að koma í veg fyrir að sýningin yrði
opnuð 12. maí.
Kínverska sendiráðið í Prag setti mikinn
þrýsting á listasafnið og sagði að sýningin væri
„rógur um leiðtoga Kína og særði tilfinningar
kínversku þjóðarinnar“.
Daginn fyrir opnunina hringdi farsími Mich-
aelu Silpochovu, annars sýningarstjóra sýn-
ingarinnar í Dox. Á línunni var Hao Hong,
menningarfulltrúi sendiráðsins, sem kvaðst
vera að hringja fyrir hönd þess. Sagði hann að
verk Badiucaos „svertu ímynd leiðtoga Kína“
og „særðu tilfinningar kínversku þjóðarinnar“.
Sagði hún að sýningin myndi „eyðileggja sam-
bandið milli þjóðanna tveggja“.
Safnið ákvað að halda sínu striki. Badiucao
sagði í viðtali, eftir að sýningin var opnuð, að
kínversk stjórnvöld litu á alla gagnrýni sem
róg. „Allt þetta tal um særðar tilfinningar og
róg er bara fyrirsláttur þeirra til að komast
hjá gagnrýni og aðhaldi,“ sagði hann í viðtali
við Radio Free Asia.
Badiucao sagði að í sýningunni væru kín-
versk stjórnvöld gagnrýnd, en hann hefði aldr-
ei gert lítið úr Kínverjum eða viljað særa kín-
versku þjóðina. Listin ætti að skipta sér af
pólitík, sagði hann og bætti við: „Ég vil frekar
samfélag þar sem listin hefur afskipti af póli-
tík, en þar sem pólitíkin hefur afskipti af list-
inni.“
Hann sagði að í lýðræðisríki væri fáránlegt
að kæfa tjáningu, beita ritskoðun og hóta lista-
mönnum: „Tékkar bjuggu eitt sinn einnig í al-
ræðisríki og minningin um ritskoðun er enn
mjög sterk hjá þeim. Með því að gera þetta eru
kínversk stjórnvöld að endurvekja mjög sárs-
aukafullar minningar úr sögu þeirra.“
Sýningin í Prag var fyrst sett upp í Brescia
á Ítalíu í fyrrahaust. Í sýningarskrá með sýn-
ingunni í Prag segir að nokkrum dögum áður
hafi kínversk stjórnvöld skrifað borgarstjóra
Brescia og krafist þess að sýningunni yrði af-
lýst. Það hafi spurst hratt út og verið mikið
fjölmiðlaslys fyrir kínverska menningarpólitík.
Á yfirlitssýningunni í Dox kennir ýmissa
grasa. Badiucao fjallar um blóðbaðið á Torgi
hins himneska friðar 1989, kúgun Úígúra, að-
förina að lýðræði í Hong Kong, hastarlegar að-
gerðir kínverskra stjórnvalda vegna kór-
ónuveirunnar og innrás Rússa í Úkraínu.
Verkin eru yfirleitt kröftug og sláandi.
Málar með blóði sínu
Í einu herberginu eru 64 myndir hlið við hlið,
sem gerðar eru með blóði listamannsins. Í
hverjum ramma er far eftir úr og ól þess. Í
skýringartexta segir að í ljóðrænu Badiucaos
megi greina það sem var „fyrir og eftir Torg
hins himneska friðar“. „Í leitinni að því sem
kom á eftir, kom fram hin ótrúlega saga um
stálúrið, sem smíðað var til minningar handa
Andóf gegn blekking-
um einræðisríkja
Kínverski listamaðurinn Badiucao hefur verið kínverskum
stjórnvöldum óþægur ljár í þúfu. Verk hans eru beitt og ágeng
eins og sjá má á yfirlitssýningu, sem nú stendur yfir í Prag.
Texti og myndir eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is
Fyrir framan mynd þar sem andlit Xi Jinpings og Vladimírs Pútíns renna saman í PúXi standa soja-
flöskur með hönskum á stútum og minna á molotovkokteila.
Morgunblaðið/kbl
Ádeila á morðin á Torgi hins himneska friðar
árið 1989 máluð með blóði listamannsins.
Hugmyndir eru skotheldar er yfirskrift myndar sem Badiucao gerði á meðan mótmæli stóðu yfir
gegn aðför kínverskra stjórnvalda að lýðræði í Hong Kong.
Snúið út úr þekktum vörumerkjum á neonljósabás á sýningu Baduicaos í safninu Dox í Prag. Kín-
verska sendiráðið í Prag reyndi að koma í veg fyrir að sýningin yrði opnuð.