Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 28
LESBÓK
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum
FRAMBURÐUR Ana de Armas fékk það vandasama verkefni að
túlka Marilyn Monroe í væntanlegri kvikmynd sem sýnd verður á
Netflix. Eftir að stikla úr myndinni Blondie var sýnd í sumar
heyrðust efasemdarraddir um að talandi Armas væri líkur tal-
anda Monroe eða Normu Jeane Mortenson eins og hún hét. Ar-
mas er af spænskum ættum og ólst upp á Kúbu en eflaust
spilar það inn í efasemdir þeirra sem telja að hún nái ekki
að líkja vel eftir Monroe. Sjálf tjáði hún Times of Lond-
on að níu mánuði hafi tekið sig að ná framburðinum
réttum.
Authentic Brands Group á nú réttinn að því sem
tengist Marilyn Monroe og á það sem hún skildi eftir
sig. Marc Rosen forseti ABG lýsti á dögunum stuðn-
ingi við valið á Önu de Armas í viðtali við Variety.
Styðja valið á Armas
Ana de Armas
leikur Marilyn
Monroe
AFP/David Gannon
YFIRLÝSING Stórleikarinn Brad Pitt ætlar
ekki að setjast í helgan stein í leiklistinni á
næstunni og kom því skýrt á framfæri í sam-
tali við ABC-sjónvarpsstöðina bandarísku.
Pitt mun hafa sagt nýlega að hann væri á
leið inn í lokakaflann á sínum leikaraferli og
svo virðist sem margir hafi misskilið við hvað
hann átti.
Pitt segist ekki ætla að láta gott heita á
næstunni heldur segist hann hafa átt við að
hann myndi þurfa að velja af kostgæfni verk-
efnin sem hann vill taka þátt í þar sem hann
er kominn yfir miðjan aldur. Eflaust varpa
margir öndinni léttar.
Er ekki að draga saman seglin
Brad Pitt er 58
ára gamall.
AFP/Michael Tran
Gyllenhaal verður í aðahlutverki.
Roadhouse
endurgerð
ÚTKÖST Flest dettur mönnum í hug
í afþreyingariðnaðinum. Streym-
isveitan Amazon Prime hefur ákveð-
ið að endurgera slagsmálamyndina
Roadhouse frá árinu 1989. Þar léku
töffararnir Patrick Swayze og Sam
Elliot útkastara á heldur sveittum
skemmtistöðum í Bandaríkjunum.
Samkvæmt CNN mun enginn annar
en Jake Gyllenhaal leika aðahlut-
verkið í myndinni og mun því vænt-
anlega túlka Dalton sem Swayze lék.
Dalton á nú að vera fyrrverandi
keppandi í UFC sem tekur að sér
dyravörslu á skemmtistað á Flórída.
Doug Liman mun leikstýra en hann
er þekktastur fyrir myndina The Bo-
urne Identity.
H
ljómsveitin Dr. Gunni virð-
ist nú vera á fullu eftir að
hafa gefið út plötu síðasta
vetur og sent frá sér lagið Faðir
Abraham í sumar.
„Jú jú, eins mikið á fullu og ör-
markaður leyfir,“ segir forsprakkinn
Gunnar Lárus Hjálmarsson, einnig
þekktur sem Dr. Gunni, þegar
Sunnudagsblaðið tekur púlsinn á
honum. Spurður um hvort von sé á
nýrri plötu frá hljómsveitinni á
næsta ári vill hann ekki fullyrða að
sú verði raunin þótt sveitin sendi frá
sér nýtt efni.
„Það er ekki endilega málið. Við
sjáum bara til en við gefum alla vega
út ný lög og byrjum á því. Við fylgj-
um sama munstri og flestir gera.
Þar sem maður er fastur í gamalli
hugmyndafræði þá er keppikefli að
gera plötu en aðferðin að því er að
kynna nokkur lög fyrst,“ útskýrir
Gunnar og vísar þar til hins breytta
umhverfis hjá tónlistarfólki þar sem
einfalt er orðið að senda frá sér lög á
netinu.
„Já já, það er mjög auðvelt en aft-
ur á móti er mjög erfitt að gera plötu
því þá bíður maður mánuðum saman
eftir því að fá hana í hendurnar. Ef
við tölum um vínylplötu sem er nátt-
úrlega eina útgáfuformið sem meik-
ar sens í dag þótt salan sé brotabrot
af því sem áður þekktist.“
„Best að kalla þetta rokk“
Var Gunnar duglegur að semja lög
þegar skemmtanahald lá niðri í
samkomubanninu? „Ég á ekki feitan
lager af lögum. Við viljum helst ekki
senda frá okkur lög nema eygja ein-
hverja von um vinsældir en samt má
ekki semja lög bara til að reyna að
gera vinsæl lög. Þannig að það getur
verið dálítið erfitt að finna einhvern
milliveg,“ segir Gunnar og bætir við
að listrænn metnaður sé á undan-
haldi hjá honum en blaðamaður fær
á tilfinninguna að slíka yfirlýsingu
beri ekki að taka hátíðlega.
„Maður er svo einfaldur að ég
hugsa bara um vinsældalistana og
útvarpsspilun. Maður er alveg kom-
inn með nóg af listrænum metnaði.
Nei nei. Eigum við ekki að segja að
þetta sé blanda af listrænum metn-
aði og von um vinsældir.“
Hvernig skilgreinir doktorinn tón-
list hljómsveitarinnar ef mið er tekið
af þeim lögum sem nýjust eru og
þeim sem kunna að vera á teikni-
borðinu?
„Það er í raun ekki niðurnjörvað.
Sennilega er best að kalla þetta bara
rokk enda er það vítt hugtak. Sjálfur
er ég nú farinn að hlusta dálítið á djass
en á nú ekki von á að það skili sér í
músíkinni sem ég bý til. Einfaldlega
vegna þess að ég skil ekkert í þessari
músík sem er kannski það besta við að
hlusta á hana. Það er svo leiðinlegt að
skilja allt. Djassinn er svona fílingur
frekar en eitthvað sem maður man og
getur endurtekið – en góður fílingur.“
Spiluðu fyrst í Viðey
Hljómsveitin Dr. Gunni á tuttugu
ára starfsafmæli í sumar en hún
kom fyrst saman í Viðey í júlí árið
2002.
„Já já, ég á tengingar við Viðey
einnig vegna þess að við í hljóm-
sveitinni Svarthvítur draumur spil-
uðum á þessari frægu ‘84-hátíð sem
enginn mætti á. Eitthvert mesta
flopp í sögu útihátíða á Íslandi. Ég
kom á laugardegi og þá held ég að
þrjú hafi tjaldað og öll í sama tjald-
inu. Þetta leit nú ekkert vel út en
maður var vanur því að spila fyrir
fáa. Árið 2002 fengu krakkar í
hljómsveitinni Rúnk leyfi til að
halda tónleika í Viðey og fannst
voða sniðugt að spila í minningu
Listrænn metnaður
ásamt von um vinsældir
Tuttugu ár eru síðan hljómsveitin Dr. Gunni var sett saman.
Nýtt lag var kynnt í sumar og búast má við fleirum.
Kristján Jónsson, kris@mbl.is
Dr. Gunni kemur fram á Suðureyri við Súgandafjörð um helgina
á hátíð sem helguð er einleikjum. „Ég og Kristján Freyr verðum
með fjölskylduskemmtun á Suðureyri á laugardaginn. Ég var
beðinn um að spila á einleikshátíðinni Act Alone en ég fékk að
svindla smá og fékk Kristján til að spila á slagverk. Þar verður
meiri áhersla á Abbababb-plötuna og Glaðasta hund í heimi
enda barna- og fjölskylduskemmtun. Maður getur svissað á milli
áherslna,“ segir Gunnar en barnaplatan Abbababb! kom út árið
1997 og féll í afar góðan jarðveg.
Gunnar spilaði á Flateyri á dög-
unum og nú á Suðureyri en með-
limir hljómsveitarinnar Dr. Gunni
tengjast allir Vestfjörðum með
einhverjum hætti. Bjarnveig eig-
inkona Gunnars er frá Ísafirði sem
og Guðmundur Birgir.
Kristján Freyr er úr
Hnífsdal og Grímur bjó
um tíma í Bolung-
arvík.
Svindlar smá á Suðureyri
Dr.
Gunni