Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Síða 28
LESBÓK 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum FRAMBURÐUR Ana de Armas fékk það vandasama verkefni að túlka Marilyn Monroe í væntanlegri kvikmynd sem sýnd verður á Netflix. Eftir að stikla úr myndinni Blondie var sýnd í sumar heyrðust efasemdarraddir um að talandi Armas væri líkur tal- anda Monroe eða Normu Jeane Mortenson eins og hún hét. Ar- mas er af spænskum ættum og ólst upp á Kúbu en eflaust spilar það inn í efasemdir þeirra sem telja að hún nái ekki að líkja vel eftir Monroe. Sjálf tjáði hún Times of Lond- on að níu mánuði hafi tekið sig að ná framburðinum réttum. Authentic Brands Group á nú réttinn að því sem tengist Marilyn Monroe og á það sem hún skildi eftir sig. Marc Rosen forseti ABG lýsti á dögunum stuðn- ingi við valið á Önu de Armas í viðtali við Variety. Styðja valið á Armas Ana de Armas leikur Marilyn Monroe AFP/David Gannon YFIRLÝSING Stórleikarinn Brad Pitt ætlar ekki að setjast í helgan stein í leiklistinni á næstunni og kom því skýrt á framfæri í sam- tali við ABC-sjónvarpsstöðina bandarísku. Pitt mun hafa sagt nýlega að hann væri á leið inn í lokakaflann á sínum leikaraferli og svo virðist sem margir hafi misskilið við hvað hann átti. Pitt segist ekki ætla að láta gott heita á næstunni heldur segist hann hafa átt við að hann myndi þurfa að velja af kostgæfni verk- efnin sem hann vill taka þátt í þar sem hann er kominn yfir miðjan aldur. Eflaust varpa margir öndinni léttar. Er ekki að draga saman seglin Brad Pitt er 58 ára gamall. AFP/Michael Tran Gyllenhaal verður í aðahlutverki. Roadhouse endurgerð ÚTKÖST Flest dettur mönnum í hug í afþreyingariðnaðinum. Streym- isveitan Amazon Prime hefur ákveð- ið að endurgera slagsmálamyndina Roadhouse frá árinu 1989. Þar léku töffararnir Patrick Swayze og Sam Elliot útkastara á heldur sveittum skemmtistöðum í Bandaríkjunum. Samkvæmt CNN mun enginn annar en Jake Gyllenhaal leika aðahlut- verkið í myndinni og mun því vænt- anlega túlka Dalton sem Swayze lék. Dalton á nú að vera fyrrverandi keppandi í UFC sem tekur að sér dyravörslu á skemmtistað á Flórída. Doug Liman mun leikstýra en hann er þekktastur fyrir myndina The Bo- urne Identity. H ljómsveitin Dr. Gunni virð- ist nú vera á fullu eftir að hafa gefið út plötu síðasta vetur og sent frá sér lagið Faðir Abraham í sumar. „Jú jú, eins mikið á fullu og ör- markaður leyfir,“ segir forsprakkinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, einnig þekktur sem Dr. Gunni, þegar Sunnudagsblaðið tekur púlsinn á honum. Spurður um hvort von sé á nýrri plötu frá hljómsveitinni á næsta ári vill hann ekki fullyrða að sú verði raunin þótt sveitin sendi frá sér nýtt efni. „Það er ekki endilega málið. Við sjáum bara til en við gefum alla vega út ný lög og byrjum á því. Við fylgj- um sama munstri og flestir gera. Þar sem maður er fastur í gamalli hugmyndafræði þá er keppikefli að gera plötu en aðferðin að því er að kynna nokkur lög fyrst,“ útskýrir Gunnar og vísar þar til hins breytta umhverfis hjá tónlistarfólki þar sem einfalt er orðið að senda frá sér lög á netinu. „Já já, það er mjög auðvelt en aft- ur á móti er mjög erfitt að gera plötu því þá bíður maður mánuðum saman eftir því að fá hana í hendurnar. Ef við tölum um vínylplötu sem er nátt- úrlega eina útgáfuformið sem meik- ar sens í dag þótt salan sé brotabrot af því sem áður þekktist.“ „Best að kalla þetta rokk“ Var Gunnar duglegur að semja lög þegar skemmtanahald lá niðri í samkomubanninu? „Ég á ekki feitan lager af lögum. Við viljum helst ekki senda frá okkur lög nema eygja ein- hverja von um vinsældir en samt má ekki semja lög bara til að reyna að gera vinsæl lög. Þannig að það getur verið dálítið erfitt að finna einhvern milliveg,“ segir Gunnar og bætir við að listrænn metnaður sé á undan- haldi hjá honum en blaðamaður fær á tilfinninguna að slíka yfirlýsingu beri ekki að taka hátíðlega. „Maður er svo einfaldur að ég hugsa bara um vinsældalistana og útvarpsspilun. Maður er alveg kom- inn með nóg af listrænum metnaði. Nei nei. Eigum við ekki að segja að þetta sé blanda af listrænum metn- aði og von um vinsældir.“ Hvernig skilgreinir doktorinn tón- list hljómsveitarinnar ef mið er tekið af þeim lögum sem nýjust eru og þeim sem kunna að vera á teikni- borðinu? „Það er í raun ekki niðurnjörvað. Sennilega er best að kalla þetta bara rokk enda er það vítt hugtak. Sjálfur er ég nú farinn að hlusta dálítið á djass en á nú ekki von á að það skili sér í músíkinni sem ég bý til. Einfaldlega vegna þess að ég skil ekkert í þessari músík sem er kannski það besta við að hlusta á hana. Það er svo leiðinlegt að skilja allt. Djassinn er svona fílingur frekar en eitthvað sem maður man og getur endurtekið – en góður fílingur.“ Spiluðu fyrst í Viðey Hljómsveitin Dr. Gunni á tuttugu ára starfsafmæli í sumar en hún kom fyrst saman í Viðey í júlí árið 2002. „Já já, ég á tengingar við Viðey einnig vegna þess að við í hljóm- sveitinni Svarthvítur draumur spil- uðum á þessari frægu ‘84-hátíð sem enginn mætti á. Eitthvert mesta flopp í sögu útihátíða á Íslandi. Ég kom á laugardegi og þá held ég að þrjú hafi tjaldað og öll í sama tjald- inu. Þetta leit nú ekkert vel út en maður var vanur því að spila fyrir fáa. Árið 2002 fengu krakkar í hljómsveitinni Rúnk leyfi til að halda tónleika í Viðey og fannst voða sniðugt að spila í minningu Listrænn metnaður ásamt von um vinsældir Tuttugu ár eru síðan hljómsveitin Dr. Gunni var sett saman. Nýtt lag var kynnt í sumar og búast má við fleirum. Kristján Jónsson, kris@mbl.is Dr. Gunni kemur fram á Suðureyri við Súgandafjörð um helgina á hátíð sem helguð er einleikjum. „Ég og Kristján Freyr verðum með fjölskylduskemmtun á Suðureyri á laugardaginn. Ég var beðinn um að spila á einleikshátíðinni Act Alone en ég fékk að svindla smá og fékk Kristján til að spila á slagverk. Þar verður meiri áhersla á Abbababb-plötuna og Glaðasta hund í heimi enda barna- og fjölskylduskemmtun. Maður getur svissað á milli áherslna,“ segir Gunnar en barnaplatan Abbababb! kom út árið 1997 og féll í afar góðan jarðveg. Gunnar spilaði á Flateyri á dög- unum og nú á Suðureyri en með- limir hljómsveitarinnar Dr. Gunni tengjast allir Vestfjörðum með einhverjum hætti. Bjarnveig eig- inkona Gunnars er frá Ísafirði sem og Guðmundur Birgir. Kristján Freyr er úr Hnífsdal og Grímur bjó um tíma í Bolung- arvík. Svindlar smá á Suðureyri Dr. Gunni

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.