Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Qupperneq 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022
Á
stin er fögur. Um ástina eru
samin skemmtilegustu lögin,
gerðar notalegustu bíó-
myndirnar og ort fegurstu ljóðin. Af
öllum þeim tilfinningum sem almætt-
ið, náttúran eða alheimsvitundin hef-
ur gert manninum kleift að njóta þá
er ástin í öllum sínum myndum lík-
lega sú æðsta og sú persónulegasta.
En hún er líka margslungin og mátt-
ug þannig að í gegnum söguna hafa
samfélög lagt sitthvað á sig til þess að
hafa á henni taumhald. Þegar illskan
nær undirtökum þá er ástin notuð til
þess að bæla, útskúfa og niðurlægja.
Það er hins vegar til marks um gott
og frjálst samfélag að fólk fái að hafa
sín ástarmál í friði.
En að frelsinu til að njóta mann-
réttinda á borð við tjáningarfrelsi og
frelsinu til að
elska eftir eigin
höfði er víða sótt,
ekki síst í nafni
óprútinna stjórn-
málamanna eins
og Pútíns, og ann-
arra sem þola ekki
fjölbreytni og
frelsi. Það er nöt-
urleg staðreynd
að í um þriðjungi aðildarríkja Sam-
einuðu þjóðanna er samlíf fólks af
sama kyni bannað með lögum. Í ellefu
ríkjum getur dauðarefsing legið við
því ef upp kemst um ástir tveggja
manneskja af sama kyni og í sex lönd-
um hefur ríkisvaldið drepið borgara
sína fyrir sakir slíkrar ástar. Að fólki
sé refsað með lögum, ofbeldi og jafn-
vel dauða fyrir að njóta þess fegursta
sem finnst í náttúru mannanna, að
elska og vera elskaður, er vitaskuld
hin argasta ónáttúra og úrkynjun.
Á Íslandi er staðan blessunarlega
betri en nánast alls staðar annars
staðar á byggðu bóli. Þessi helgi hef-
ur um langt árabil verið ein sú lit-
skrúðugasta og skemmtilegasta á
árinu hér á Íslandi. Í Reykjavík koma
yfir hundrað þúsund saman á
Reykjavík Pride, Hinsegin dögum, til
þess að sýna stuðning og samstöðu.
Fólk og fyrirtæki draga við hún lit-
fagra fána sem tákna samhug með
þeim sem hafa í gegnum árin og ald-
irnar þurft að fara í felur með sínar
innstu og dýpstu tilfinningar af ótta
við útskúfun samfélagsins. Fánarnir
fagna fegurð ástarinnar og frelsinu til
þess að elska. Þessi áberandi tákn
skipta máli og eru í samræmi við boð-
skap vinar míns, Guðmundar Inga
Guðbrandssonar, félags- og vinnu-
markaðsráðherra, í ávarpi sínu á opn-
unarhátíð Hinsegin daga. Þar sagði
hann meðal annars um viðbrögð við
bakslagi í stöðu hinsegin fólks: „Ég á
því miður ekki einfalt svar við þessum
spurningum. En það sem ég veit er
að samstaða, sýnileiki og fyrirmyndir
eru grundvallaratriði í réttinda- og
viðurkenningarbaráttu okkar hinseg-
in fólks.“
Gleðigangan er því langt frá því að
vera innantóm skemmtun, hún er líka
háalvarleg áminning um það órétt-
læti sem víða viðgengst og þá döpru
staðreynd að víða um heim, jafnvel í
löndum þar sem réttindi hinsegin
fólks hafa þótt trygg, er sigurinn ekki
unninn og sums staðar er bakslag í
bæði lagalegri og samfélagslegri
stöðu þess.
Þótt mikill árangur hafi vissulega
náðst á síðustu árum og áratugum þá
er langt frá því að algjört samþykki
og skilningur ríki í samfélaginu á
frelsi fólks til að elska. Enn eru fréttir
af illþyrmilegu einelti sem börn utan
hins hefðbundnasta ramma verða
fyrir í skólum og menn sem ganga
saman stoltir og
sælir í ást og
friði geta átt von
á því að í þá sé
hreytt niðrandi
orðum á borð við
„faggi“ og komið
sé fram við þá
með ógnandi til-
burðum og fasi,
eða þeir orðið
fyrir ofbeldi. Íslenskt samfélag þarf
að vera vel vakandi fyrir hvers kyns
afturför í þessum efnum og taka öll-
um vísbendingum um slíkt alvarlega.
Þótt ætíð sé vandasamt að nota
orðið „stolt“ þá er það mjög viðeig-
andi í því samhengi sem það er notað
þessa helgi. Stolt er andheiti við orðið
„skömm“ sem var einmitt sú þung-
bæra tilfinning sem ætlast var til að
öll þau sem falla utan hefðbundins
ramma um kynhneigð, kynhegðun og
kynvitund, hefðu á eigin tilfinningum.
Ég er í Sjálfstæðisfloknum af því
að hann er flokkur einstaklingsfrels-
isins og mín pólitíska afstaða umber
ekki að vegið sé að frelsi fólks til þess
að elska. Sjálf er ég líka stolt af því að
baráttan fyrir réttindum fólks til að
elska hefur verið sérstakt áherslumál
í utanríkisþjónustu Íslands. Ísland
hefur beitt sér af einurð í baráttunni
fyrir réttindum hinsegin fólks á al-
þjóðlegum vettvangi og verið í for-
ystu ríkja á margvíslegum vettvangi í
þeim efnum. Við á Íslandi getum ver-
ið stolt af því að hafa verið í farar-
broddi þeirrar þróunar sem átt hefur
sér stað víða um heim á undanförnum
árum og áratugum. Rödd Íslands hef-
ur skipt máli í þessu samhengi.
Ég óska okkur öllum til hamingju
með hátíðarhöld helgarinnar.
Morgunblaðið/Ómar
Frelsi til að elska
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@althingi.is
’
Þótt mikill árangur
hafi vissulega náðst á
síðustu árum og áratug-
um þá er langt frá því að
algjört samþykki og skiln-
ingur ríki í samfélaginu á
frelsi fólks til að elska.