Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Qupperneq 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Qupperneq 15
7.8. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 hafa tekið foreldra sína með á fundi með lækn- um. „Þetta var mjög erfitt fyrir foreldra mína, miklu erfiðara heldur en þegar ég kom út sem kynsegin. Þeim fannst þetta svo stórt skref en fyrir mér var þetta eðlileg þróun og andlega nauðsynlegt. Ég gat ekki lifað mínu lífi með þau,“ segir Mars og segist hafa verið farið að fela brjóst sín og forðast sundstaði. „Mér leið strax betur eftir á. Ég lifi nú í sátt við líkama minn og finnst hann fínn. Fyrir fólk sem hefur aldrei verið í kringum kynsegin fólk þá finnst þeim það kannski skrítin hugmynd að lifa í þessu einskismannslandi á milli tveggja boxa. Þetta getur verið flókið í kynjuðum rým- um eins og í sundi; á ég að fara í karlaklefann af því að ég er ekki með brjóst eða á ég að fara í kvennaklefann af því ég er ekki með typpi.“ Hvað gerirðu? „Ég fer bara í báða, ég flakka á milli,“ segir hán og hlær. „Á þeim stöðum þar sem ekki eru kynlausir klefar, þar sem er ekki gert pláss fyrir mig, er það ekki mitt að hafa áhyggjur af því að þeim líði óþægilega. Ef ég fer í sund með vinkonum mínum fer ég í kvennaklefa; ef ég fer með vin- um mínum fer ég í karlaklefa. Ég upplifi mikið af störum hjá fullorðnu fólki,“ segir hán. „Ég hef einu sinni lent í því að móðir greip í börnin sín og fór í burtu þegar ég gekk inn í sundskýlu,“ segir hán og brosir. „Ég myndi vilja hafa kynhlutlausan fjöl- skylduklefa. Það væri líka miklu fleira fólk sem gæti notað hann en bara kynsegin fólk. Klefinn væri hentugur fyrir barnafólk, fatlað fólk sem er með aðstoðarfólk, sem dæmi. Ég held að það sé framtíðin. En á meðan það eru bara tveir klefar, held ég áfram að flakka á milli!“ Sýnilegt fyrir krakkana Nú ertu kynsegin aktívisti og vilt vera fyrir- mynd. Hvað ertu að gera til að koma þínum skilaboðum til skila? „Alltaf þegar ég kem fram reyni ég að vera hreinskilið með mínar upplifanir og tilfinn- ingar og þegar ég birti eitthvað á samfélags- miðlum hef ég það eitthvað sem er raunveru- legt. Svo gríp ég hvert tækifæri sem ég fæ til að vera opinbert. Mig vantaði mjög mikið fyrirmyndir þegar ég var að uppgötva minn hinseginleika. Ég hefði líklega uppgötvað það fyrr ef kynsegin fólk hefði verið sýni- legra. Ég vil vera sú manneskja fyrir annað fólk. Það skiptir öllu máli. Ég vil gera þetta fyrir krakkana og ég geri mér grein fyrir að þau eru kannski ekki að lesa fréttirnar en þau eru að skoða samfélagsmiðlana. Og þó að það séu bara foreldrar þeirra sem lesa grein- arnar sem ég skrifa eða horfa á viðtöl sem ég fer í, mun það komast niður til þeirra,“ segir hán og nefnir að auðvitað sé einnig mikið af kynsegin eldra fólki sem aldrei hefur komið út. „Það vantar að fólk sjái að það sé leið til að koma út og að það sé rými til þess innan vinnu- staða. Það er ekki nóg að hengja bara einn regnbogafána á ísskápinn heldur þarf líka að vera virk umræða um þessa hluti. Umræða um að taka fólki eins og það er og að fólk megi þróast með tímanum. Við erum ekki öll meitl- uð í stein, þó að við séum fullorðin. Það er mik- ilvægt að vita því annars fær fólk ekki tæki- færi til að koma út,“ segir hán og segir að með meiri sýnileika muni hópur kynsegin fólks stækka. „Við hjá Samökunum höfum lagt mikið upp úr hinsegin fræðslu og það er gríðarlega vinsælt hjá fyrirtækjum, stjórnmálaflokkum og félagasamtökum. Við kennum grunn- hugtökin en erum líka með ítarlegri fræðslu. Það er frábært að fara að hitta hópa þar sem er aðallega fullorðið fólk, jafnvel komið yfir miðjan aldur. Mér finnst vera áhugi fyrir þessu,“ segir hán og segir það koma fyrir að fólk mæti með fyrirfram ákveðnar hug- myndir sem eru kannski byggðar á for- dómum. Hán nefnir að slíka fræðslu er hægt að bóka á heimasíðu Samtakanna, sam- tokin78.is. „En yfirleitt vil ég meina að fólk sé móttæki- legt og tilbúið að læra. Hvert og eitt þarf að sjá að heimurinn er í stöðugri þróun og þá þarf fólk að endurmeta heimsmynd sína samkvæmt því. Ég get ekki gert það fyrir fólk; það þarf sjálft að lesa sér til og víkka sinn sjóndeildar- hring eða bara setjast niður og hugsa um sína upplifun. Það er oft gott að líta í eigin barm og pæla í þessum hlutum.“ Hvað finnst þér um ung börn sem upplifa sig ekki í því kyni sem þeim var úthlutað við fæð- ingu? „Mér finnst um að gera að sýna börnunum stuðning í öllu því sem þau gera. Þó að barn komi til að mynda út sem trans stelpa fjögurra ára, og komi svo út sem strákur sex ára, þá er það bara allt í lagi. Barnið lifði þá alla vega hamingjusamt í þessi tvö ár og fékk að tjá sig þar til það ákvað að tjá sig öðurvísi. Annars myndi barninu líða illa. Með því að styðja barnið erum við að leyfa því að tjá sig, sama hvað verður síðar.“ Enn þarf að breyta lögum Mars segir að þrátt fyrir að til séu nú lög um kynrænt sjálfræði, sé langt í land að kynsegin fólk hafi sömu réttindi og aðrir. „Réttindatapið sést í því að það er ekkert skrifað um kynsegin fólk í öðrum lögum en þeim um kynrænt sjálfræði. Alls staðar þar sem talað er um konu eða karl, er ekki búið að breyta því þannig að talað sé líka um okkur. Það hefur í för með alls konar réttindatap. Nýjasta dæmi var um það þegar manneskja breytti kynskráningu sinni og missti þá bætur frá sjúkratryggingum af því það vantar í lögin að tryggja eigi kynsegin fólk á sama máta og aðra. Eins getur verið vesen með aþjóðarétt- indi þegar maður er að ferðast; þá er ekki endilega víst að þú komist inn í sum lönd, ef þú ert með merkt kynsegin í passanum,“ segir hán og nefnir að í sumum löndum sé beinlínis hættulegt að vera með skráð í passann annað en kona eða karl, en ekki sé gott að ferðast um með passa með röngum upplýsingum. „Því miður er ekki öruggt alls staðar að vera út úr skápnum.“ Megum ekki slaka á Nú virðist víða vera bakslag í baráttunni fyrir réttindum hinsegin fólks. Hvað er hægt að gera til að sporna við hatursumræðu og for- dómum? „Já, það er mikið bakslag í gangi núna, ekki bara á Íslandi heldur víða. Það mikilvægasta sem við gerum, við sem stöndum með hinsegin samfélaginu, er að vera á verði og leiðrétta misskilninginn sem er í gangi í samfélaginu. Við þurfum að standa upp hvert fyrir öðru og ekki leyfa þessum hlutum að líðast.“ Þannig að best er að fara gömlu góðu leið- ina, að fræða og upplýsa? „Já, algjörlega. Og brjóta þessar mýtur upp að hinsegin málefni sé eitthvað sem eigi að skammast sín fyrir og hafa lágt um. Því hærra sem við höfum og því meira sem við tölum um þessi mál, því minni hætta er á svona bakslagi. Það er einhver undiralda núna. Það hafa orðið miklar breytingar undanfarið í menningunni og mikið batnað varðandi réttindi okkar og sýnileika. Það kallar á bakslag því sumu fólki finnst sér ógnað,“ segir Mars. „Hér heima heyrir maður ummæli, eins og til dæmis ummæli vararíkissaksóknara, sem maður furðar sig á að fólk skuli leyfa sér að segja opinberlega. En það er kannski það sem bakslagið felur í sér, að fólk sé að leyfa sér að segja hluti sem það hefur verið að hugsa og koma út með þessi sjónarhorn því það finnur kraft í fjöldanum,“ segir hán og segir vissulega marga hafa gagnrýnt slíka hegðun. „Við megum ekki slaka á núna.“ Svo glatt að vera kynsegin Við förum að slá botninn í áhugavert samtal en blaðamaður á tvær spurningar eftir. Ertu glatt að vera kynsegin? „Já, ég er svo glatt að vera kynsegin og gæti ekki hugsað mér að fast innan boxanna, að vera karl eða kona. Ég velti mér upp úr þessu frelsi alla daga.“ Ertu bjartsýnt fyrir framtíð hinsegin sam- félagsins? „Já, algjörlega. Ég er mjög bjartsýnt vegna jákvæðrar heildarþróunar síðustu ára en að- allega vegna unga fólksins. Þau eru fólkið sem mun klára þetta. Ég mun ekki koma öllum þessum hlutum í höfn en ég hef trú á næstu kynslóð sem er mikið framsæknari en við sem eldri erum. Ég held að við munum lenda á frá- bærum stað, en þetta verður ekki auðvelt.“ Morgunblaðið/Ásdís ’ Ég átti við mig alvarlegt samtal um hvort ég vildi koma út, því kannski væri léttara að vita þetta innst inni en segja engum. Kannski yrði lífið auð- veldara ef ég myndi þykjast og reyna að passa inn í samfélagið.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.