Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 18
S egja má að Gleðigangan sé hápunktur Hinsegin daga á Íslandi en tuttugu og tvö ár eru frá því að Gleðigangan var í fyrsta skipti haldin í Reykjavík eða sumarið 2000. Hinsegin dagar í Reykjavík eru sjálfstæð félagasamtök og ann- ast undirbúning og framkvæmd hátíðahaldanna. Ári áður höfðu Hinsegin dagar formlega orðið aðili að InterPride á þingi í Glasgow. Sama ár eða 1999 var haldin hátíð á Ingólfstorgi en fyrir henni stóðu Sam- tökin ’78. Þangað mættu um 1.500 manns en ef til vill mætti segja að sú hátíð hafi verið vísir að Hinsegin dögum. Þá voru hátíðahöldin kölluð Hinsegin helgi en ekki var þá farið í göngu. Einn hvatinn á bak við hátíðina var að minnast Stonewall-uppreisnarinnar á Manhattan 28. júní 1969. Eins konar kröfugöngur fóru fram 1993 og 1994 Hér má skjóta inn í að vorið 1982 höfðu Samtökin ’78 áhuga á að taka þátt í kröfugöngunni hinn 1. maí en var ekki vel tekið af skipuleggjendum göng- unnar samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu samtakanna. Í lok júní árið 1993 skipulagði hópur fólks úr Samtökunum ’78 göngu niður Laugaveg. Var það einnig gert árið eftir og þá í samstarfi við Félag samkyn- hneigðra og tvíkynhneigðra. Þessar göngur teljast ekki fjölmennar og tíðar- andinn var annar. Stutt var þó í veigamikinn áfangasigur í mannréttinda- baráttu samkynhneigðra þegar lög um staðfesta samvist tóku gildi árið 1996. Þar sem fremur rólegt var yfir göngunni 1993 og 1994 voru margir efins um að meðbyr yrði með Gleðigöngunni árið 2000. Svo fór hins vegar að um 12 þúsund manns mættu til að sýna hinsegin fólki stuðning og ljóst varð að við- burðurinn gæti náð hér fótfestu eins og víða erlendis. Óx Gleðigöngunni fljótt fiskur um hrygg eins og landsmenn þekkja. Gangan varð að einum fjölsótt- asta viðburði á Íslandi en féll niður síðustu tvö árin vegna samkomutakmark- ana í tengslum við kórónuveiruna. Frá Gleðigöngunni árið 2018. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Frá Gleðigöngunni árið 2017. Ljósmynd/Hanna Andrésdóttir Með gleðina að vopni Gleðigangan setti skemmtilegan svip á höfuðborgina í tvo áratugi. Hún fer nú aftur fram í fyrsta skipti síðan 2019. Kristján Jónsson kris@mbl.is Morgunblaðið/Júlíus Frá Gleðigöngunni árið 2008. 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022 HINSEGIN DAGAR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.