Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Side 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Side 22
Elsku Ljónið mitt, fyrir um það bil tveimur vikum á nýju tungli opnaðist nýr orkuheimur fyrir þér. Það er eins og þú sért kominn í sælgætisverksmiðju og getir valið þér úr alls konar vöruflokkum. Þú munt líka sjá betur að þó þú fengir að skipta og að vera einhver ann- ar, sama hver, þá sérðu og finnur að þú vilt bara vera þú. Í þessari orku sem verður framhald á, átt þú eftir að geta hjálpað bæði sjálfum þér og öðrum með hlýju virðingu og vináttu. Þú hefur gengið í gegnum svo margt sem hefur stungið þig í hjartað og brotið í þér beinin, en samt muntu sjá núna að það var bara til þess að gera þig sterkari. Næmni þín og andlegir kraftar eru að eflast eins og vindurinn. Og bara það að ef þú spyrð upp- hátt spurninga til Alheimsorkunnar er eins og stuttu seinna komi svarið. Þú annað hvort upp- götvar það sjálfur eða einhver segir þér það. Í þessu muntu skilja að þú ert kominn inn í heim töfranna, eins og þú sért nokkurs konar Aladdín sem gefur þér það að það verður þinn vilji. Þú skalt hafa það alveg á kristalstæru hvað sé þess virði að hlaupa eftir og við hverju þú ættir alls ekki að líta. Það eru breytingar í kortunum, jafnvel í sambandi við heimili eða heimilis- aðstæður og annað sem gæti skipt verulega miklu máli. Allt smellur þetta saman, þó jafnvel á síð- ustu mínútu. Það er svo margt búið að vera að gerast fyrir þig á þessu ári sem þýðir það þó að þú sért svo sannarlega lifandi. Það er að stytta upp og skýin eru að dragast frá sólinni og þú færð svo sterka skynjun um að þú getir hlakkað til næsta kafla. Það er eins og lífið sé að gerast miklu hraðar en það hefur gert síðustu ár og ég get sagt við þig með sanni, að það er satt. Ég sé það í kortunum þínum að meðvitund þín er að eflast og þú ert að byrja nýtt og betra líf. Breytingar í kortunum LJÓNIÐ | 23. JÚLÍ – 22. ÁGÚST 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022 Elsku Meyjan mín, mikið máttu vera fegin að haustið sé að koma. Því það er svo fjölbreytt orka á ferðinni sem þú munt umfaðma og svo margt sem þú munt finna að þú elsk- ar. Tilfinningarnar þínar verða á suðupunkti og orðheppni þín nær hærri hæðum. Þessi sannfær- andi orka mun efla þinn status margfalt. Því bara með orðunum einum gætirðu vakið einhvern upp frá dauðum, en þar sem við trúum ekki á dauðann verður það óþarfi. Taktu áhættu og séns á ástinni, ef það særir engan. Og þó að jafnvel einhverjir í fjölskyldunni séu ekki hlynntir ráða- hagnum þá eiga þeir sitt eigið líf, ekki þitt. Ef þú ert að framkvæma, skapa eða selja, þá verður öll athyglin á því sem þú ert að gera og þótt þú viljir ekki athygli, þá færðu hana samt. Margir segja við mig: Sigga ég ætla að ná ótrúleg- um árangri í því sem ég er að gera eða framleiða, en ég vil samt enga athygli sjálf. En þá verð- urðu að athuga, hjartað mitt, að annað hvort tekurðu allan pakkann eða strögglar áfram. Þú hef- ur svo bjarta orku og þess vegna munu svo margir veðja á að vera með þér í liði. Ekki hanga í neinu sem er bara að veita þér veraldleg gæði því að þú ert að uppskera það sem þú hefur í raun unnið lengi að. Að sjálfsögðu verða erfiðleikar samtvinnaðir þessu, því ekkert hefst nema fyrir því sé haft. Þú nýtur meira og betur hins einfalda vegna þess einungis að þú ert að einfalda líf þitt. Hjarta þitt er að stækka um marga, marga, marga, metra og þar munu svo ótalmargir eiga sér skjól sem þurfa á þér að halda. Það sem þér finnst að ekki hafi tekist nógu vel hjá þér í langan tíma gefur þér útkomu og ákveðni til þess að raða saman þessari krossgátu sem lífið er. Því að þú ert með þau spil á hendi núna sem gefa þér forskot og sannkallaðar vinningslíkur. Hjartað þitt stækkar MEYJAN | 23. ÁGÚST – 22. SEPTEMBER Elsku Sporðdrekinn minn, það er hægt að segja þú notir tímann oft til að of- hugsa málin. Ég var reyndar að lesa að það væri einkennni snillinga. En þú verður að hafa jafn- vægi á milli hugsana og hvíldar, því ef þú sefur ekki þína átta tíma þá er eintómur pirringur út í allt og alla. Þessi tími sem þú ert að stíga inn í núna, skorar á þig að hafa jafnvægi í lífinu og að hafa rútínu. Það er hægt að segja að þú sért að lenda eftir viðburðaríkt sumar. Þú ert að læra svo mikið, hvernig þú átt að efla þig eða geta þetta eða hitt. En þegar þú finnur að það gerist ekki strax og helst í gær, þá vaknar óþolinmóði Sporðdrekinn og lemur sjálfan sig niður. Þú skalt vera alveg rólegur því þá leiðréttir lífið sig sjálft. Þú hefur töluverða spennu gagn- vart því sem þú ert að gera eða ert að fara að gera og hugurinn getur angrað þig með því að segja þér stöðugt að þetta gangi ekki upp. En um 80% af hugsunum eru neikvæðar og eintómar endur- tekningar. Svo lærðu að útiloka ruslið, þá verðurðu snilldarútgáfan af þér. Þú þarft að hreyfa þig mikið og að skoða nákvæmlega hvað þú ert að borða og hvenær, því það er rútínan sem setur þig á efstu hilluna. Það er svo ógnarheit ástríða hjá þér, en hún getur líka leitað í það neikvæða og erfiða, því þú átt það til að detta í þráhyggju. Þú getur vikið burt öllum kvíða vegna þess að þú ert að fara inn í það tímabil sem gefur af sér svo miklu meira og betra en þér finnst jafnvel að þú eigir skilið. Í þessu öllu saman verðurðu að endurprógramma þig til þess að sjá sjálfur að þú átt miklu meira en gott skilið. Þú þarft ekki að hafa móral yfir neinu, skammast þín fyrir nokkurn skapaðan hlut, því að þetta lífsform sem þú ert að fara í framkallar kraftaverk á líðan, betrumbætir orku og fyrir þá sem eru að leita að ástinni, þá er hún beint fyrir framan þig. Ástin beint fyrir framan þig SPORÐDREKINN | 23. OKTÓBER - 21. NÓVEMBER Elsku Steingeitin mín, þetta er öflugt ferðalag sem þú ert að fara í. Þú þarft að taka ákvarðanir sem þú jafnvel getur ekki staðið við. Það fer afskaplega í taug- arnar á þér, því þú vilt vera 100% í því sem þú tekur þér fyrir hendur. Þú getur sérstak- lega fundið fyrir að þú verðir ofsalega þreytt. En það er bara Alheimurinn og Veröldin að hjálpa þér til þess að stoppa þetta varabatterí sem þú ert að nota. Því að stundum ferðu áfram þó að ekkert batterí sé. Þegar þetta gerist þá brotnar orkan þín, sem er að segja þér að það sé komið alveg nóg af þessu kapphlaupi við suma hluti sem þú getur ekki alveg stjórnað. Leyfðu þér bara að hvíla þig, því þá róast andlega orkan þín og þú sérð fleiri möguleika til að einfalda lífið. Þú þarft að finna leiðir sem eru styttri og að vita að það er fullt af fólki sem vill vera í þínum hópi og þér til stuðnings. Núna þarftu að leika þér meira, horfa á lífið eins og þú gerðir þegar þú varst ung og fórst áhyggjulaus út að leika. Því að tíminn sem þú átt, og það er reyndar það eina sem við eigum, er að vinna með þér og er að raða í rétt hólf. Það er verið að senda hugskeyti til þín, já þau heita hugskeyti þegar þú hugsar eitthvað skýrt og þau skeyti lenda á réttum stöðum hjá réttum persónum. Á meðan þetta er að gerast þá sérðu allt í kringum þig sem lítil kraftaverk. Mörg lítil kraftaverk verða að einu stóru; margt smátt gerir eitt stórt. Þessi skref sem þú ert að taka núna boða þér lækningu andans og líkamans og þó það verði ekki á einum degi, þá gerist það fyrr en þú býst við. Í ástarlífinu eru fleiri tilbúnir að koma út að leika ef þú vilt það. Mörg lítil kraftaverk STEINGEITIN | 22. DESEMBER – 19. JANÚAR Elsku Vogin mín, það er annað hvort allt eða ekkert að frétta, logn eða stormur, því sterki karakterinn þinn leyfir ekki annað. Þú ert að díla við svo margt sem er al- veg beintengt þér, annað hvort í tengslum við vinnu, fjölskyldu eða vini. Einnig ertu að leita að svörum, því óréttlæti fléttast hér inn í orkuna þína. Þú átt erfitt með að taka ákvörðun eða ákvarðanir því þér finnst þú verðir að vera viss. Þú segir alltaf að það sé allt gott að frétta og það er alla vega góð mantra. Líka það að trúa því að lífið leysi þetta fyrir þig, svo slakaðu bara á meðan lífið gerir það. Þínar svartsýnishugsanir ganga ekki eftir, því eina leiðin til þess að fara í gegnum erfiða hluti er að halda áfram. Og þá veistu það og það verður þér til hagsbóta, þó svo að breytingar verði. Ef þú gerir ekkert í fljótfærni, heldur að vel athuguðu máli, þá ertu á réttri siglingu. Ef þér finnst þú hafir gert eitthvað á hlut annarra með orðum þínum eða athöfnum, taktu þá alla þá ljúfmennsku sem þú átt til og sáldraðu yfir það. Innan sextíu daga eða fyrr kemur líf þitt betur út en þú hafðir nokkurn tímann búist við. Sannleikurinn mun koma í ljós og þú munt horfast í augu við hann og peningar streyma til þín svo þú getir gengið frá því sem þú þarft. Afstaða þín gagnvart fólki sem er nálægt þér verður skýr, hvort sem það tengist því sem þú ert að gera eða ástinni. Það er mikil vinna framundan þegar hausta tekur. Þú endurlífgar líka orku úr fortíðinni því þú sérð í henni hvað þú varst að gera þegar þér gekk sem best. Svo þú sækir þá tilfinningu og orku aftur og þó þú verðir stundum þreytt, þá verðurðu sátt því þú sérð þú ert að gera rétta hluti. Það verða margir í Voginni sem munu skilja þetta. Sannleikurinn kemur í ljós VOGIN | 23. SEPTEMBER – 22. OKTÓBER Elsku Bogmaðurinn minn, þó að það hafi skiptst á með skini og skúrum hjá þér, þá er nákvæmlega allt eins og það á að vera. Þetta er bara Yin og Yang og það helst í hendur. Tímasettu það sem þú ætlar að framkvæma því þá stimplast það inn í hugann á þér. Þú getur átt það til að gleyma og að fresta, en ef þú tímasetur, þá er enginn möguleiki til þess. Þér verður leiðbeint og þú verður verndaður þegar þú ert að velja leiðina sem þú vilt fara í líf- inu. Það er líka sterkt hjá þér að þú ert svo vel tengdur við orkuna í kringum þig og þarft á breyt- ingum að halda, því eins og þú veist allra best sjálfur, þá ertu ekki tré. Það er eitthvað stórbrotið í lífinu að birtast þér og þegar þú tengist þessari tíðni eða orku, þá verða þér allir vegir færir. Ekki halda aftur af löngunum þínum, því að draumar þínir margir hverjir eru að rætast og að raungerast. Ákvarðanir sem þú tekur geta verið öðrum óskiljanlegar vegna þess að hvatvísi þín kemur jafn- vel sjálfum þér á óvart. Þetta ár gefur þér lífstöluna 6 sem er sama tala og Ísland hefur árið 2022. Þú sérð hlutina í öðru ljósi og ástin, fjölskyldan og vinir eru lífsmottóið þitt. Vond ást springur í öllum tegundum, hvort sem það er í vináttu eða öðru, en góð ást dafnar og verður sannari. Þetta tengist líka ást á þínu eigin lífi og gleði yfir því sem þú hefur og spenna yfir því sem er að koma. Passaðu þig einlægt á reiðinni, gefðu engum það færi að geta ýtt á þína takka svo að skapið þitt blossi upp. Þá eyðirðu kröftunum þínum til einskis og ekkert annað gerist en að hægja á því sem bætir hag þinn og eykur blessun. Þetta er kærleiksríkt tímabil og þú hefur leyfi til að vera góður við þann sem þú vilt. Á þessu tímabili byggirðu líka upp undirstöður fyrir næstu 20 mánuði sem verður grunnurinn að góðu lífi. Hvatvísi kemur á óvart BOGMAÐURINN | 22. NÓVEMBER – 21. DESEMBER Ágúst

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.