Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Side 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022 Elsku Fiskurinn minn, tímabilið sem þú ert að synda inn í um þessar mundir er a.m.k. litríkt . Það er ofsalega mikil tilfinningasveifla í fallega hjartanu þínu. Þú veist oftast ekki hvort þú sért ofsakátur eða ofsakvíðinn. En þetta verða allt hamingjudagar hjá þér, en í raun bara aðeins minni hamingja suma daga en aðra. Þú ákveður að framkvæma og segja já við einhverju sem getur breytt svo miklu í lífi þínu. En um leið og þú ert búinn að því þá hugsarðu að þú hafir gert rangt. Hugsanirnar eru að blekkja þig, hjartagull, þú þarft bara að ákveða og sleppa. Ákveða svo annað og sleppa því líka, því annars frýstu eins og internetið. Hugsun um peninga og hvernig þú get- ir reddað og bjargað öllu og öllum brjótast inn í tíðnina þína oftar en þú kærir þig um. En eins og alltaf þá bjargast allt í sambandi við veraldlegan metnað. Það er ekkert að fara frá þér sem þú vilt hafa hjá þér. En þörf þín fyrir því að hafa allt skipulagt og allar blaðsíður í lífsbókinni þinni þéttskrif- aðar, er eitthvað sem þú þarft að sleppa og að treysta því að þú syndir áfram og þurfir engan kút. Það eru skilaboðin sem eru sterkust í kortunum þínum. Þegar þú sérð að tíminn er ekki til, því það er alltaf bara núna, ferðu að njóta hans eins og marglyttan sem lifir að eilífu. Því að í eðli þínu viltu tíma- setja allt; á föstudaginn er þetta, þriðjudaginn hitt og hvað ætla ég að hafa í matinn og svo framvegis. Orkuþjófar eru svolítið að setjast nálægt þér. Það er allt í lagi en gefðu þeim bara styttri eða eng- an tíma. Þetta er ekki vont fólk, heldur fólk sem ekki tilheyrir þínum sálnahópi. Það getur þrátt fyrir það verið í fjölskyldunni þinni. Það er eins og það sé vinningur eða einhvers konar óvæntur glaðn- ingur sem gleður þig svo mikið og hjálpar þér við að slaka á, að minnsta kosti um stund. Það eru svo margar góðar fréttir að berast þér og þó að einhverjar slæmar fylgi með, tekurðu það ekki eins mik- ið inn í harða drifið þitt. Vegna þess þú veist að þú heldur á hamingjunni í höndum þér. Margar góðar fréttir berast FISKARNIR | 19. FEBRÚAR - 20. MARS Elsku Nautið mitt, hjartað í þér er að stækka og þú finnur jafnvel að þú sért að breytast. Að þú sért að fá sterkari karaktereinkenni, eitthvað sem þú hefur óskað þér að bera. Þú fórst inn í þessa blessuðu tíma í kringum nýja tunglið sem var þann 28. júlí sl. og það verður ansi fátt sem getur dregið þig niður vegna þessa. En ef þú ert í stríði í sambandi við heilsu eða huga, þá þarft þú að finna þér nýjar leiðir til þess að verða heill á ný, því þessi gamla aðferð er ekki að duga. Farðu eftir tilfinningunum þínum, því þær tala við þig. Skiptu um lækni ef þér finnst ekkert hafa áunnist. Það er uppskerutími og það er af nógu að taka. Lífið er að færa þér dásemdarlystisemdir, það er verið að laga allt til hjá þér. Alls ekki hugsa aftur í tímann hvenær eitthvað var ömurlegt og heldur ekki fram í tímann, sérstaklega ekki ef þú heldur að eitthvað muni misheppnast. Þú ert svo sérstaklega að taka eftir lífinu, þú heyrir svo margt sem hresssir þig við og þú tekur það inn í hjartarótina þína. Þú slítur þig lausan frá þeim sem ekki vilja sjá frelsi þitt og það gæti verið uppreisn af einhverjum toga hjá okkur yngri Naut- unum, en það er partur af þroskaferli. Þú átt eftir að finna að þú hefur þann sjálfsaga sem þig vantar. Og um leið og þú tekur eftir því þá þarftu svo lítið að biðja um hjálp, er ekki frábært að þú sért alveg nóg? Það er svo mikilvægt að sætta sig við það sem maður getur ekki breytt og að hætta þá að hamast í því. Það er lykil- atriði í þessu dásamlega tímabili sem mun skreyta hjarta þitt og sálu. Þú færð viðurkenningu, verðlaun eða eitthvað óvænt gerist sem hjálpar þér áfram til þess að sjá og að vita að þetta líf er bíómynd og þú ert með aðalhlutverkið því þér fer ekki að vera auka- leikari. Þú ert í aðalhlutverki NAUTIÐ | 20. APRÍL – 20. MAÍ Elsku Krabbinn minn, það er aldeilis búið að vera líf í tuskunum og mikill hraði á huganum. Þetta er svo miklu fallegra tímabil en þú heldur og þú veist lausnina til þess að láta lífið þitt ganga upp. Treystu ekki öllum eða næsta manni fyrir leyndarmálum þínum eða ein- hverju sem þér hefur verið treyst fyrir. Því eins máltækið segir, þjóð veit þá þrír vita. Láttu held- ur ekki alla vita um áform þín, því núna ertu að spekúlera í svo mörgu sem þú ætlar að gera þegar haustar. Það sem þú ert að spá í það geturðu en þú verður að fara í gegnum fjöll og hindranir. Þess vegna verður sigur þinn enn sætari. Þetta gæti líka tengst réttlæti gagnvart einhverjum sem hefur gengið á hlut þinn en alla vega þá getur þú verið sáttur og sæll. Þeir mínusar sem þér finnst þú vera að upplifa núna verða bara stutta stund. Það er líka mjög trúlegt að þetta gæti líka verið bara búið. Það eru svo margir að koma inn í líf þitt með klapp á bakið og það eru líka mun fleiri en þú heldur svo stoltir af þér. Svo þú getur bara verið dálítið montinn með þig, það færi þér vel. Þú skalt líka sjá að stundum er ágætt að stoppa það ferli sem maður er í þegar þér sýnist það ekki gefa þér neitt nema öryggi það minnsta. Hvort sem það er vinna, skóli eða samband, því ef þú ert alltaf með öryggisnet í kringum þig, þá verður ekkert að frétta. Svo þú skalt hoppa út í djúpu laugina eins oft og mögulegt er. Það eru spennandi kaflar skrifaðir inn í sögu þína á næstunni og ævintýri sem þú varst ekki bú- inn að sjá fyrir. Þú þarft sjálfur að halda ástinni við eða að kveikja ástarlogann. En ef þér finnst vera komið að leiðarlokum í því, þá getur það orðið þér farsælast að ganga í burtu. Lífið er stutt og núna er tíminn þér hliðhollur til þess að skipta um gír í lífinu og að fara á þeim hraða sem þér finnst bestur. Hoppaðu út í djúpu laugina KRABBINN | 21. JÚNÍ – 22. JÚLÍ Elsku Hrúturinn minn, þér hefur fundist að alls konar fólk sé eitthvað að pota í þig. Að það sé að fá þig til að breyta um skoðun, fá þig í samstarf, slíta samstarfi og alls kyns hugsanir flæða um kollinn á þér. Vertu bara eins kurteis og þú getur við alla og taktu þér þinn tíma til að taka ákvarðanir. Því að þetta er þitt líf og þú einn berð ábyrgð á því. Alveg er sama hversu mikið af peningum þú ættir, þá hefurðu alltaf áhyggjur af því hvort að allt muni reddast eða ekki. Þar sem eðli þitt er þannig uppbyggt og þú ert svo svakalega klár á miklu fleiri sviðum en þú heldur, þá er það eina sem þú þarft að spá í eða að fríska upp orkuna þína. Því að ein orka fæðir af sér aðra orku. Þú getur tekið miklu fleiri verkefni að þér en þú getur ímyndað þér, því þegar þú ert í flæði, þá ertu æði. Það eru margir í þessu merki búnir að hafa það af að stíga út fyrir þægindarammann sinn að undanförnu og það er í huga og hjarta mikil von um að allt fari á besta veg. Þegar þú ferð að nálgast haustið sérðu skýrt og greinilega hvað þú þarft að gera. Svo ekkert vera að eyða lífinu þínu í að stressa þig núna, heldur skaltu sleppa öllu slíku. Því að sá kraftur dregur þig bara niður í dökka pytti og þá dansar þú ekki við hamingjuna. Þetta allt er þitt val, því að Al- heimurinn er að gefa þér nýja sýn á lífið. Vertu ekki að pirra þig á því þó þú fáir ekki þakklæti fyrir það sem þú gefur af þér. Klapp- aðu bara sjálfum þér á öxlina og segðu: Ég er svo frábær, takk fyrir að vera ég. Vertu róleg- ur gagnvart fjölskyldunni og ástinni, því alveg eins og allt annað mun þetta smella með gæfu og gengi fyrir þig á réttum tíma. Þú ert æði í flæði HRÚTURINN | 21. MARS – 19. APRÍL Elsku dásamlegi Tvíburinn minn, það er bara tvennt í stöðunni hjá þér. Annað hvort er allt að rokka í kringum þig, eða bara alls ekki. Það getur verið dagamunur á því hvernig þú sérð krossgátuna sem lífið er. Það er svo mikilvægt og lífið er að gefa þér möguleika til þess að hafa svo mikið jafnvægi, en til þess þarftu að spila á góða skapið þitt. Alveg sama hvað fýkur í þig, hugsaðu þá; ég er með góða skapið í vasanum og ég ætla að taka það upp. Bara með þessum einföldu skilaboðum leikurðu bæði á sjálfan þig og þá sem eru kannski ekki eins ánægðir yfir því hversu vel þér gengur. Það er hægt að segja að þér fylgi gleði og orkuregnbogi og þú skalt skoða að þegar þig vantar eitthvað þá er regnbogi yfir þér. Svo óskaðu þér og trúðu og treystu á að allt komi í réttri röð, þó kannski ekki nákvæmlega eins og óskin er orðuð, því lífsorkan veit betur. Það er alveg bannað á þessu yndislega sumri, sem þú elskar svo, að skjóta rótum inni hjá sér og tengjast ekki fólki eins mikið og þú ættir að gera. Ekki taka lífið svona alvarlega, þá verður tilvera þín miklu léttari. Þegar þú hugsar til manneskju sem á við mikla erfiðleika að stríða eða til einhvers ástands sem er í heiminum sem fær þig til að líða illa, þá missirðu lista- manns- og lífsorkuna þína. Svo vandaðu hugsanir þínar því hugsanir þínar verða að lífinu þínu. Þú skalt ganga skrautlega til fara og nota sterka liti eins og appelsínugult eða gult og vera stoltur af því hversu mikil áhrif þú hefur á aðra til þess að hressa þá við. Taktu áhættu í sambandi við ástina, hún er þess virði. Taktu líka áhættu í sambandi við kærleikann, hann er þess virði. Þú ert kominn til að sjá og sigra, svo njóttu lífsins. Orkuregnbogi yfir þér TVÍBURINN | 21. MAÍ – 20. JÚNÍ Þú ert góð fyrirmynd. Knús og kossar Elsku Vatnsberinn minn, þetta er svo magnað tímabil og meiriháttar mögu- leikar sem blikka allt í kringum þig eins og umferðaljós. Það er fullt tungl í þínu frábæra merki þann 12. ágúst og 12 er líka ótrúleg tala. Til dæmis tólf lærisveinar og svo 12 tímar sem fylla dag- inn og ég gæti endalaust haldið svona áfram og fyllt inn í þær eyður. Einnig er talan 8 sem táknar ágústmánuð og er líka tala Vatnsberans fyrir þetta ár. Þessi tala gefur þér ótrúlegan hraða og þú þarft að vera svo vel vakandi. Því annars ferðu yfir á rauðu ljósi og þá geturðu fengið stóru sekt- ina eða dóm. Þú þarft að vera eins sýnilegur og þú mögulega getur, taka þátt í öllum þeim mannamótum sem þú sérð að geta hjálpað þér að áorka því sem fer á ljóshraða í gegnum hugann þinn. Á þessu tímabili skapar þú líka frið og sátt á meðal fólks og þú gefur bæði auðmýkt og kærleika. En þú átt ekki að fara eftir þeim ráðum sem berast frá misgóðu fólki, heldur vita það að þú gerir hið rétta. Og sjáðu hvað er margt öflugt að gerast! Þú þarft að taka vel eftir því að alls staðar í kringum þig liggja lítil skilaboð. Ef það er órói í þínum beinum og þér þú finnst þú eigir að fara í ferðalög út í heim og geim, þá er besta ráðið fyrir þig að anda djúpt inn, telja í huganum eins hátt og þú kemst og anda svo út. Því það er nefnilega þannig að orkan, krafturinn og sú leit sem þú ert í að sjálfum þér finnst akk- úrat hér, þar sem þú ert núna. Ef þú ert ekki viss hvar hjarta þitt tikkar í ástinni, þá eru skilaboðin þau að þú skalt halda þeim þétt að þér sem elska þig, því þá blómstrar ástin sem aldrei fyrr. Eftir því sem þú gefur meira fyllist hjarta þitt ástríðuloga. Lítil skilaboð alls staðar VATNSBERINN | 20. JANÚAR – 18. FEBRÚAR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.