Ótrúlegt en satt - 31.07.1940, Side 3

Ótrúlegt en satt - 31.07.1940, Side 3
9. hefti ÓTRÚLEGT - EN I. árg. Reykjavík 31. júlí 1940 Örlog keisarahjónanna. Fáir konungbornir menn hafa þótt glæsilegri og mentaðri en Ferdinand Maximilian Joseph, erkihertogi af Austurríki. Hann var fæddur 1832 og var yngri bróðir Franz Joseps, Austurríkiskeisara. Hann var afburða tungumálagarpur og lagði stund á náttúruvísindi moð svo miklum árangri, að Humboldt sjálfur dáðist að honum. Tuttugu ára gamall var hann orðinn sjóliðsforingi, og sem slíkur gat hann sér góðan orðstýr, og kom í verk ýmsum athyglisverðum umbótum, er vóktu aðdáun. Þegar hann var tuttugu og fimm ára að aldri heimsótti hann Leopold Belgíukonung og þar sá hann í fyrsta skifti hina yndisfögru Carlottu. Hún var þá aðeins seytján ára, há og tíguleg. Hún var einnig vel mentuð og tungumálagarpur, eins og hann, og talaði og ritaði frönsku, þýsku, ensku, ítölsku og spænsku. Þau feldu ástarhug hvort til annars, og brúðkaup þeirra fór fram með þeim glæsileik, e,r þeim sæmdi. Ungu hjónin reistu sér veglega höll við Adriahafið, er líktist öllu meira Aladinshöll e-n bústað menskra manna. Höllin var látin heita Miramar. En þótt fegurð hallarinnar og umhverfisins væri töfrandi, þá fullnægði hún ekki hinni ungu hertogafrú til lengdar. Hirðsiðir og valdafíkn heilluðu, hug hennar. Hún varð því harla glöð. þegar manni htnnar bauðst jarlsdæmi í Langbarðalandi, er þá tii- heyrði Austurríki. Hann þáði bcðið mestmegnis konu sinnar vegna. Hirð ungu hjónanna í Milan gaf Vínarhirðinni lítið eftir að gia'sileik. Stórhóf og dansleikir voru þar næstum daglegir viðburðir, en svo fór að lokum, að harðar aðfinslur bárust frá hirðinni í Vín- arborg þess efnis„ að eyðslusemin keyrði úr hófi fram. Og enda þótt Maximilian væri að ýmsu leyti vel til embættisins f^llinn, þá varð hanr að segja af sér eftir tveggja ára stjórn. Ungu hjónin fóru aft- ur til Miramar og undí Maximilian sér þar hið besta, eftir allan veisluglauminn við hirðina í Milan. En öðru máli var aó gegna með konu hans. Henni leiddist kyrð- in í Miramar og fanst höllin engu betri en fangelsi. Hún þráði að vera þar, sem fegurð hennar og mentun gátu notið sín til fulls. Tækifærið bauðst von bráðar. 1 septembermánuði 1836 kom sendinefnd frá Mexico, að undir-

x

Ótrúlegt en satt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ótrúlegt en satt
https://timarit.is/publication/1765

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.