Ótrúlegt en satt - 31.07.1940, Qupperneq 6

Ótrúlegt en satt - 31.07.1940, Qupperneq 6
Mcmnshöfuð til sölu. Þessi mynd er af manns- höfði, sem- selt. var fyrir fáum árum í Panama City fyrir tæpa hundrað doll- ara. Höfuðið er á stærð við venjulegan gúmmíbolta og hárið er 19 þumlunga á lengd. Fyrir nokkrum ár- um var höfuðið lífi gætt og eðlilega stórt og sat á herðum lífsglaðs Jivaro- Indíána í hitabeltisskógum Perú. En Indíáni þessi var svo óheppinn að missa lífið — og höfuðið, sem sigur- vegarinn hjó af búknum, og minkaði niður í þá stærð, sem það hefur nú. Það er sem sé ævagam- all siður meðal Jivaro-Ind- íánanna í Perú, að taka mannshöfuð og minka þau niður í hnefastærð. Siður þessi hefur síðari árin ver- ið bannaður með lögum, en það hefur ekki tekist að bæla hann niður með öllu, því að Jivaro-Indíánarnir halda áfram í laumi, að iðka þessa gömlu »kúnst«, og smigla höfðunum inn í Panama, þar sem þau eru seld hæstbjóðanda, eins og hver önnur bannvara. Um fjölda mörg ár var það algerlega myrkri hulið, hvernig Indí- ánarnir færu að því, að minka mannshöfuð og láta það halda lög- un sinni. Margir hafa reynt að komast að leyndardómi þessum. Sagt er frá því, að einu sinni hafi þýskur vísindamaður farið inn í land Jivarot-Indíánanna — Pongo de Seriche — til þess að komast að leyndardómi þeirra, en sex mánuðum síðar var uppþornað manns- Framh. á bls. 156. 144 óTRúLEG’T — EN SAT'T

x

Ótrúlegt en satt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ótrúlegt en satt
https://timarit.is/publication/1765

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.