Ótrúlegt en satt - 31.07.1940, Page 11

Ótrúlegt en satt - 31.07.1940, Page 11
nú loks er þýzkt, skip Jiafði komið í höfn og' cg liafði þráð að fa að lreyra móðurmál mitt, skyldi ég vera rekinn í land og kallaður »ræfill«. Mörgum árum seinna sagði ég keisaranum frá þessu atvild. Hann horfði þegjandi á mig nokkur augnablik, svo sagði hann viö þá sem viðstaddir voru: »Það væri dálítið gaman að því, að gera Luckner greifa að yfirnjanni á Panther«. — Nokkrum seinna fékk ég tilkynningu um, að samkvæmt skipun keisarans væi'i mér falin stjórn skipsins. Hið fyrsta sem ég gerði er ég kom um borð í þetta glæsilega skip, var að ganga rakleitt þangað sem ég hafði setið meö hinum vingjarnlegu. félögum rnínum, hásetunum. Nú var ég sjálfur liðs- foringi með hvíta skó cg fallega einkennishúfu. Nú var hér enginn sem sagði: »Kast.ið þessum ræfli í land«. Svona breytast tímarnir og mennirnir með. Ég skal geta þess að hásetarnir á Panther reyndust mér vel. Þeir útveguðu mér nýjan alfatnað og’ skömmu seinna tókst mér að fá vinnu hjá hafnarverðinum í Jamaica og við það undi ég unz mér tókst að komast í skipsrúm. IV. Aftur í skóla. Ég' var nú í förum enn um skeið á ýmsum skipum m. a. á norsku skípi. Þá lærði ég norsku ,svo vel að ekki mátti heyra á mæli rnínu að það væri ekki móðurmál mitt, Þessi málkunnátta kom sér vel fyrir mig síður, eins og frá mun verða sagt. Að lokum lá svo leið mín til Hamborgar og nú hug'ði ég til skóíagöngu., En er til Hamborgar kom, var mér tjáð að til þess að fá að ganga undir stýrimannapróf yrði ég að hafa verið nokkurn tíma á gufuskipi. Ég liafði alltaf verið á seglskipi. I Hamborg réði ég mig' því á gufuskip, er var í förurn milli Þýzkalands og Miðjarðarhafslandanna. Síðar fór ég' á stranaferða- skip, er annaðist, flutninga á milli Rotterdam og Amsterdam og nú átti ekkert aö vera því til fyrirstöðu að ég fengi inngöngn a sfýri- mannaskóla, Eg fór nú upp á sparisjóð sjómannatrúboðsins til þess að sækja fé rnitt. Ég vissi mig eiga nákvæmlega, 3200 mörk, en mér til mik- illar undrunar var mér sagt að ég ætti 3600 mörk í sparisjóðnum. Ég hélt í fyrstu að það væru bara, almennilegheit, að þeir skyldu borga mér s'7ona mikið fram yfir, ég hafði aldrei heyrt getið um vexti af fé. Éfg þóttist, nú töluvert ríkur. Ég tók mér far til Lúbeck því ég ætlaði á stýrimannaskólann þar. óTRúLEGT — EN SATT 149

x

Ótrúlegt en satt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ótrúlegt en satt
https://timarit.is/publication/1765

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.