Ótrúlegt en satt - 31.07.1940, Síða 17
Dr. Cobanes getur þess í bók sinni »Le Sixiénne Sens«, að árið
1756 hafi öll Parísarborg og öll hirðin komist í uppnám út af þeim
fáheyrða atburði, að níu ára gömul telpa, Madelaine Charlotte
Jacquette Renaud að nafni, væri með barni. Líflæknir Madame la
Dauphine (frönsku krónprinsessunnar) ákvað, eftir að hafa rætt
við franska læknafélagiö, að taka telpuna inn á heimili sitt, og 30.
júni var gerður á henni »keisaraskurður«, sem tókst vel, og fædd-
ist henni sveinbarn, heil'brigt og að öllu leyti eins og barn fuliþrosk-
aðrar móður. Drengurinn var skírður í þorpinu St. André-des-Arcs,
og nefndur Jean-Louis.
Þegar hin unga móðir var búin að ná sér, var henni komiö
íyrir í klaustri og veittur 1500 franka styrkur á ári, er hún skyldi
njóta æfilangt.
Faðir te'punnar, sem hafði. misnotað sér sakleysi hennar og
óvitaskap, andaðist, áður en hann var látinn sæta hegningu fyrir
afbrot sitt.
OTRúLEGT — EN SATT
155