Víkurfréttir - 16.03.2022, Qupperneq 11
Leikfélag Keflavíkur er um þessar
mundir að æfa söngleikinn Grease
í samstarfi við leikfélag NFS, Vox
Arena. Æfingar á söngleiknum
hófust í janúar en byrjuðu af fullum
krafti um miðjan febrúar þegar sýn-
ingum lauk á Fyrsta kossinum.
Leikhópurinn samanstendur af
átján krökkum á framhaldsskóla-
aldri sem hafa mismikla reynslu í
leiklist, söng og dansi en öll eru þau
að standa sig stórkostlega vel. Það
reyndist listrænum stjórnendum
mjög erfitt að velja í hlutverk en
u.þ.b. 30 einstaklingar mættu í
prufur. Auk leikara er sex manna
hljómsveit á sviðinu sem sér um
þau fjölmörgu og líflegu tónlistarat-
riði sýningarinnar. Tónlistarstjóri er
Sigurður Smári Hansson sem hefur
verið virkur meðlimur Leikfélags
Keflavíkur í mörg ár og er jafnframt
formaður þess.
Danshöfundur sýningarinnar er
Sigríður Rut Ragnarsdóttir Ísfeld og
er þetta frumraun hennar sem dans-
höfundur. Leikstjórn er í höndum
Brynju Ýrar Júlíusdóttur en þetta
er í annað skipti sem hún leikstýrir
sýningu hjá Vox Arena en hún leik-
stýrði einnig Burlesque árið 2018
sem er jafnframt síðasta sýning sem
Vox Arena setti upp.
Það veitir Leikfélagi Keflavíkur
mikla gleði að geta hjálpað nemenda-
félagi Fjölbrautaskóla Suðurnesja að
byrja aftur með leiklistarstarf fyrir
nemendur skólans og fleiri nem-
endur á framhaldsskólaaldri en í
sýningunni eru nemendur úr ýmsum
framhaldsskólum. Við hvetjum bæj-
arbúa að sjálfsögðu til að mæta á
sýninguna og styðja við öflugt menn-
ingarstarf hjá leikfélögum bæjarins.
Söngleikurinn verður frumsýndur
föstudaginn 18. mars og miðasala fer
fram á tix.is.
Elíza Newman
gefur út Maybe
Someday
Nýtt lag með Elízu Newman kallast
Maybe someday er komið út og
er önnur smáskífan af komandi
fimmtu breiðskífu hennar sem
kemur út á vormánuðum 2022.
Lagið er kæruleysislegt trall
sungið á íslensku og ensku með fiðlu
og blístri og boðar vor og betri tíma.
Það fjallar um sveimhuga sem fer
sínar eigin leiðir en ratar samt alltaf
aftur heim.
Á umslaginu er mynd af Mjálmari
Randalín. Upptöku stjórnaði Gísli
Kjaran Kristjánsson og syngur Elíza
og spilar á gítar, fiðlu, ukulele, raf-
magnsgítar og bassa. Gísli trommar
og spilar á hljómborð.
Um Elízu Newman:
Tónlistarkonan Elíza Newman kom
fyrst fram í sviðsljósið með hljóm-
sveit sinni Kolrössu Krókríðandi
er þær sigruðu Músiktilraunir með
látum hér um árið. Hún hefur starfað
við tónlist alla tíð síðan og er fjöl-
hæfur listamaður bæði sem laga-
höfundur og flytjandi. Elíza hefur
farið víða í tónlistarsköpun sinni, og
samið allt frá pönki til óperu til euro-
vision-laga með smá stoppi á Eyja-
fjallajökli og nú síðast Fagradalsfjalli!
Hún starfaði erlendis lengi og hefur
gefið út fimm plötur með Kolrössu/
Bellatrix, eina með hljómsveitinni
Skandinavia og fjórar sóló plötur til
þessa sem allar hafa hlotið lof gagn-
rýnenda bæði heima og erlendis
og hlaut síðasta breiðskífa Elízu,
Straumshvörf m.a tvær tilnefningar
til íslensku tónlistarverðlaunanna
sem plata ársins og lag ársins.
Maybe Someday á Spotify:
Framhaldsskólanemendur
setja upp söngleikinn Grease
Hljómsveitinni Midnight Librarian er um þessar mundir að gefa út tón-
listarmyndband fyrir lag af fyrstu plötu sveitarinnar. Myndbandið er við
lagið Mindless af fyrstu plötunni, From Birth til Breakfast, sem sveitin
gaf út í ágúst í fyrra.
Í Midnight Librarian eru sjö upprennandi tónlistarmenn af Suðurnesjum.
Þeir gáfu út fyrrnefnda plötu í fyrra, héldu tvenna útgáfutónleika í kjölfarið
sem að seldist upp á og lagið Funky Fresh sem komast á A lista Rásar 2.
Í tilkynningu frá sveitinni kemur fram að mikil vinna var lögð í myndbandið
og eru meðlimir sveitarinnar rosalega ánægðir með útkomuna. Þá er sveitin
að vinna að nýju efni sem er væntanlegt á næstunni.
Myndband við Mindless
FRÁ MIDNIGHT LIBRARIAN
Tjaldur á hraðferð
frá Írlandi heim
til Sandgerðis
Sölvi Rúnar Vignisson, fuglafræðingur,
segir frá því á fésbókarsíðunni Sand-
gerði og Sandgerðingar að fyrsti GPS-
merkti tjaldurinn í Suðurnesjabæ sem
stundaði far er kominn heim. Hann
hélt til í Enniscrone á Írlandi í vetur en
lenti í Lóni þann 5. mars 2022 og var
svo kominn á leiruna í Sandgerði daginn
eftir.
Tjaldurinn var 23 og hálfan tíma til Ís-
lands og svo tíu tíma frá Lóni og heim í
Sandgerði. Nú fer hann á fullt að safna
orku og finna makann sinn fyrir varp og
verja óðalið sitt við Hólkot. Vorið er á
næsta leiti, segir Sölvi Rúnar í færslunni.
Sölvi Rúnar
Vignisson,
fuglafræðingur.
Tjaldur.
Flugleiðin heim til
Sandgerðis er merkt rauð.
Bláa línan er leiðin sem
tjaldurinn fór út til Írlands.
TÓNLEIKAR FORSKÓLA 2 OG LÚÐRASVEITAR
Tvennir stórtónleikar forskóladeildar verða haldnir í Stapa, Hljómahöll, fimmtudaginn 17. mars.
Fram koma nemendur Forskóla 2 ásamt elstu lúðrasveit skólans.
Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 17.
Forskólanemendur úr Háaleitisskóla, Holtaskóla og Stapaskóla.
Seinni tónleikarnir hefjast kl.18.
Forskólanemendur úr Akurskóla, Heiðarskóla, Myllubakkaskóla og Njarðvíkurskóla.
Allir velkomnir.
Tónleikunum verður jafnframt streymt á Youtube-rás skólans.
Skólastjóri
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 11