Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.03.2022, Síða 6

Víkurfréttir - 23.03.2022, Síða 6
Hvenær var loðnu síðast landað á Suðurnesjum? Loðnan er komin. Bræðslurnar í Sandgerði, Helguvík og Grindavík yfirfullar af loðnu, unnið í loðnufrystingu í mörgum frystihúsum í Keflavík, Sandgerði, Garði og Grindavík, og ilmurinn af loðnunni leikur um alla bæði ... ... eða ... hmm, nei. Það er víst árið 2022 og búið að loka öllum bræðslum á Suðurnesjum og þrátt fyrir að jú, loðnan sé fyrir utan og skipin eru að veiða hana þá kemur ekkert til Suðurnesja. Eins og ég hef áður skrifað um í þessum pistlum þá er þetta ansi grátlegt að svona sé staðan. Sér­ staklega þegar horft er til sögunnar. Því það voru bátar frá Suðurnesjum sem hófu loðnuveiðar. Vonin KE var sá fyrsti og Árni Magnússon GK var þar á eftir og fyrsta loðnubræðslan sem tók á móti loðnu var í Sand­ gerði. Hvenær var þá loðnu síðast landað á Suðurnesjunum? Lítum á Grindavík. Þar var loðnu landað alveg fram á vetrarvertíðina 2005 en í febrúar árið 2005 kom upp mikill eldur í fiskimjölsverksmiðju Samherja í Grindavík. Þessi verk­ smiðja hét áður Fiskimjöl og Lýsi en Samherji keypti verksmiðjuna árið 1997 og gerði miklar endur­ bætur á verksmiðjunni, jók t.d. af­ kastagetu hennar í um 1.500 tonn á sólarhring. Þegar að bruninn varð í verksmiðjunni í Grindavík í febrúar árið 2005 þá var ekki lið nema rúmt eitt ár frá því að verksmiðjan var að fullu endurbætt. Allur brennslu­ búnaður verksmiðjunnar eyðilagðist í þessum stórbruna, búnaður til hrognatöku skemmdist ekki, Síðasti báturinn sem landaði loðnu í Grindavík var Háberg GK 299 sem landaði loðnu þann 14. mars árið 2005 alls 427 tonnum. Eftir þessa loðnuvertíð í Grindavík var verksmiðjan rifin og í dag er ekkert sem minnir á að þar hafi verið stór og mikil verksmiðja Það var ekki eldur sem lagði niður verksmiðjuna í Sandgerði. Eins og að ofan segir var lengi vel bræðsla sem Guðmundur á Rafnkelsstöðum í Garði rak í Sandgerði, síðan tók Hafliði Þórsson og fyrirtæki hans Njörður hf. við rekstrinum og gerði meðal annars út loðnubátana Dag­ fara GK og Sjávarborg GK. Árið 1997 var fyrirtækið selt til Snæfells hf. og það fyrirtæki átti þá orðið ansi margar eignir víða um landið. Loðnuverksmiðjan í Sand­ gerði var lengi vel með fremur litla afkastagetu eða um 300 til 400 tonn á sólarhring en þegar Snæfell hf. keypti fyrirtækið var afkasta­ geta hennar aukin í um 600 tonn á sólarhring. Loðnulöndun í Sand­ gerði jókst að nokkru þau ár sem að Snæfell rak fyrirtækið og t.d. kom hið mikla aflaskip Súlan EA ansi oft og og bátur sem hét Birtingur NK. Árið 2001 kaupir Síldarvinnslan Snæfell og átti SVN þá orðið verk­ smiðjuna í Helguvík. Árið 2003 þá var öllu starfsfólki verksmiðjunnar í Sandgerði sagt upp og var það mikið kjaftshögg fyrir Sandgerði, m.a. vegna þess að miklar hafnar­ framkvæmdir voru búnar að vera í gangi til að taka á móti stækkuðum flota af loðnubátum. Í viðtali sem tekið var í júní árið 2003, en þá var verksmiðjan í Sandgerði rifin og tækin fóru víða um land, sagði Hermann Jóhann Ólafsson, verksmiðjustjóri, að „væntanlega verður ekki vinnsla framar á uppsjávarfiski hér í þessum bæ framar.“ Því miður þá hefur það reynst rétt. Ástæðan fyrir þessari lokun í Sandgerði var sögð minnkaði hrá­ efni. Þarna árið 2003 var sagt að þetta væri þróun sem við getum ekki stöðvað, að verksmiðjurnar fækki og bátarnir stækki. Birtingur var síðastur til að landa loðnu í Sandgerði þegar hann landaði 670 tonnum í júlí árið 2002. Ný verksmiðja var smíðuð í Helguvík árið 1997 og var eigandi hennar SR mjöl. Þessi staðsetning var mjög góð því höfnin var með mjög mikið dýpi og gátu öll stærstu loðnuskipin komist þarna að án nokkura vandræða og nóg pláss var í Helguvík fyrir verksmiðjuna. Þorsteinn Erlingsson í Saltveri, og lengi vel útgerðarmaður Arnar KE sem var mikið aflaskip á loðnu­ veiðum, hafði lengi gengið með þá hugmynd að byggja stóra verk­ smiðju í Helguvík og hafði komið um 1995 upp flokkunarstöð fyrir loðnu sem þá var flokkuð fyrir loðnufryst­ ingu en hratið var þá brætt í Sand­ gerði og Grindavík. Þessi verksmiðja í Helguvík var nokkuð öflug gat brætt tæp 1.000 tonn á sólarhring. Árið 2001 kaupir Síldarvinnslan SR mjöl og eins að ofan getur þá bitnaði þá á loðnuverksmiðjunni í Sandgerði en verksmiðjan í Helguvík var rekin áfram og gekk rekstur hennar vel. En árið 2019 var tekin ákvörðun um að SVN myndi loka verksmiðjunni í Helguvík og var það ansi mikill áfall fyrir Reykja­ nesbæ, sem og Suðurnesin öll, því með lokun þessarar verksmiðju var líka lokað á það að loðna væri fryst í á Suðurnesjunum eins og hafði verið gert í um 50 ár. Hákon EA var sá síðasti til að landa loðnu í Helguvík, í desember árið 2018. Já, loðnan er komin en allt er svo dapurlegt við það varðandi Suður­ nesin. aFlaFrÉttir á suðurNEsJuM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Útgefandi: Víkurfréttir ehf. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421­0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893­3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898­2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421­0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Thelma Hrund Hermannsdóttir. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Það er nú sjálfsagt að bera í bakkafullann lækinn að fjalla um að eitt ár er liðið frá því að eldgos hófst í Geldingadölum þann 19. mars 2021. Ég læt nú samt vaða. Það er ekki ofsögum sagt að farið hafi um mann ónotatilfinning þegar fréttir bárust af því að eldgos væri hafið nánast í bakgarði heimilis manns. Þegar leið frá upphafinu og menn áttuðu sig á því að þetta kæmi nú ekki til með að ógna öryggi íbúa og/ eða innviðum samfélagsins þá tók við skemmtilegt tímabil þar sem maður, ásamt svo mörgum öðrum, hafði gosið að áhugamáli og skemmtun. Farnar voru ófáar ferðirnar til þess að mynda, njóta og upplifa. Það var kyngi­ magnað þegar myrkva tók að setjast niður og horfa á þetta sjónarspil sem gosið var, finna kraftinn og heyra hljóðið í drununum þegar gosstrókarnir risu hátt í loft upp. Einnig var ekki síður ánægjulegt að sjá hversu jákvæð áhrif þetta hafði á ferða­ þjónustuna. Hingað flykktust ferðamenn í þúsundatali til að berja þennan atburð augum þrátt fyrir Covid­faraldur sem ekki vann með okkur í þessum málum. Nú þegar Covid er á undanhaldi læðist að manni sú hugsun hvort ekki væri hægt að semja við almættið (það er að segja ef hann ræður þessu) um að koma með smá gusu þarna á sama stað. Hún mætti mín vegna bara vera í viku, svona til þess að trekkja að í sumar. Ég bið bara um lítið ... oggulítið gos. Ár frá upphafi gossins augNablik MEð JÓNi stEiNari Jón Steinar Sæmundsson Sólfell EA kemur með loðnu til Sandgerðis. 6 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.