Víkurfréttir - 23.03.2022, Page 8
8 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM
Samkaup hafa gefið út samfélags-
skýrslu fyrir árið 2021. Í skýrslunni
kemur m.a. fram að Samkaup hafa
nú náð jöfnu kynjahlutfalli á meðal
stjórnenda, þá var sérstök velferð-
arþjónusta fyrir starfsfólk tekin í
gagnið og fram kemur að Samkaup
losuðu í fyrra 27% minna af kolefni
en árið áður, þrátt fyrir að versl-
unum hafi fjölgað. Þennan árangur
má þakka umræðu og áherslu síð-
ustu ára á aukið vægi samfélags-
legrar ábyrgðar á öllum stigum
reksturs fyrirtækja, stefnumótunar
og í daglegum ákvörðunum.
Samkaup hafa lagt mikla áherslu á að
vinna kerfisbundið að samfélagslegri
ábyrgð. Til marks um það hlutu Sam
kaup jafnvægisvog FKA og Hvatn
ingarverðlaun jafnréttismála, bæði á
sviði fjölmenningar og atvinnumála
starfsmanna með skerta starfsgetu.
Árangurinn á þessum sviðum má
ekki síst þakka farsælu samstarfi við
Samtökin ‘78, Þroskahjálp og Mirru
rannsókna og fræðslusetur fyrir er
lent starfsfólk.
„Jafnréttti er áfram í miklum
brennidepli hjá okkur. Samkaup
hlaut jafnlaunavottun árið 2018
og fór í gegnum fjórðu úttektina á
jafnlaunakerfinu í nóvember í fyrra
þar sem niðurstaðan er einungis
0,4% launamunur. Sé heildarfjöldi
stjórnenda hjá Samkaupum skoð
aður út frá kynjahlutföllum, er jafn
vægi milli kynja afar gott eða 48%
karlar og 52% konur. Þá höfum við
lagt áherslu á að fjölga konum í efsta
stjórnendalagi félagsins sérstaklega
og í dag er helmingur framkvæmda
stjóra félagsins kvenkyns. Þetta
skiptir gríðarlegu máli og við viljum
hvetja önnur fyrirtæki til að gefa
þessum málaflokki aukna athygli.
Það ber árangur,“ segir Gunnur Líf
Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
mannauðssviðs Samkaupa.
Sálfræði- og lögfræðiráðgjöf
Í fyrra var sérstakri velferðarþjón
ustu Samkaupa hleypt af stokk
unum sem miðar að því að stuðla að
auknum lífsgæðum starfsfólks. Þetta
er nýjung en í þjónustunni felast úr
ræði til að takast á við óvænt áföll
og aðra erfiðleika, starfsfólkinu að
kostnaðarlausu og án milligöngu
stjórnenda. Heilsuvernd hefur um
sjón með velferðarþjónustunni, sem
nær m.a. til hjónabands og fjöl
skylduráðgjafar, streitu og tilfinn
ingastjórnunar, sálfræðiráðgjafar,
lögfræðiráðgjafar og svefnmeðferða.
„Meginmarkmið Samkaupa er að
vera eftirsóknarverður vinnustaður,
þar sem áhersla er lögð á jákvæða
og heilbrigða menningu, jafnrétti og
sterka liðsheild. Að auki höfum við
lagt okkur fram um að hvetja starfs
fólk til aukinnar menntunar og við
viljum virkja fólk til að bæta við sig
þekkingu. Við höfum mótað öfluga
menntastefnu sem mætir starfsfólki
hvar sem það er, hvort sem er í formi
símenntunar (dæmi um slíkt verk
efni er Fræðsluskot kaupmannsins),
fagnáms í verslun og þjónustu í sam
vinnu við Verslunarskóla Íslands
eða diplómanám í viðskiptafræði og
verslunarstjórnun við Háskólann á
Bifröst og Háskólann í Reykjavík.
Auk þess settum við á fót árið 2021
sérstaka leiðtogaþjálfun fyrir versl
unarstjóra Samkaupa með yfir
heitinu Forysta til framtíðar en það
er 12 ECT eininga nám í samstarfi
við Háskólann á Bifröst og er ein
stakt í atvinnulífinu,“ segir Gunnur
Líf.
Losuðu 27% minna af kolefni
þrátt fyrir fjölgun verslana
Heiður Björk Friðbjörnsdóttir,
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Samkaupa segir að stærsti vendi
punkturinn í loftslagsmálum hjá
Samkaupum hafi verið þegar fyrir
tækið skrifaði undir yfirlýsingu sem
afhent var á loftslagsráðstefnunni í
París árið 2015. Samkaup hafi verið
leiðandi í að minnka losun á dag
vörumarkaði síðan. Í fyrra losaði
Samkaup 27% minna af kolefni en
ári áður, þrátt fyrir að verslunum
hafi fjölgað og þá dróst eldsneytis
notkun vegna ökutækja fyrirtækisins
saman um 8,36%.
„Við gerðum margar smærri breyt
ingar í fyrra sem þó hafa allar mikil
áhrif, svo sem að taka upp rafrænar
hillumerkingar í stað límmiða, hefja
notkun á rafrænum kvittunum í
Samkaupa appinu, og setja upp
fyrstu hraðhleðslustöðvarnar við
verslanir. Þá hefur matarsóunará
takið „Minni sóun allt nýtt“ verið í
gangi í nokkur ár en árið 2021 var al
gjört metár þegar afslættir í gegnum
átakið námu tæplega 320 milljónum
króna. Við opnuðum líka aðra græna
Nettó verslun, þar sem hugmynda
fræði grænu skrefanna er höfð til
hliðsjónar. Við ætlum að halda áfram
á þessari braut. Loks innleiddum
við umhverfisstjórnunarhugbúnað
frá Klöppum sem gerir okkur kleift
að mæla og fylgjast með kolefnis
spori fyrirtækisins í rauntíma auk
ýmissa annarra aðgerða með það
fyrir augum að draga úr neikvæðum
umhverfisáhrifum, bæði beinum og
afleiddum,“ segir Heiður Björk.
Auka sölu á íslenskum afurðum
„Við gerðum samstarfssamning
við Skógræktarfélag Íslands um
Opna skóga árið 2020,“ segir Stefán
Ragnar Guðjónsson, framkvæmda
stjóri innkaupasviðs Samkaupa.
Hann segir markmiðið að bæta að
stöðu og auka aðgengi að opnum
skógræktarsvæðum þannig að al
menningur geti nýtt sér skóga til
útivistar og heilsubótar. „Við höfum
líka gert mikið í innkaupadeildinni,
svo sem með því að bjóða neyt
endum upp á umhverfisvæna kosti
og sjálfbæra framleiðendur eins
og Änglamark en það er dæmi um
vörumerki þar sem gæðahráefni og
lífræn ræktun mætast. Þá skiptir líka
máli að við höfum á undanförnum
árum náð að auka sölu á íslenskum
afurðum. Með því náum við að lág
marka innflutning á vörutegundum
sem einnig eru framleiddar hér
lendis, enda hefur það sýnt sig að
neytendur kjósa helst íslenskt, sé
slíkur kostur í boði,“ segir Stefán.
Nýsköpun og áframhaldandi
stafræn þróun
Samkaupaappinu var hrint úr vör
um mitt ár 2021 og var því vel tekið.
Í árslok voru notendur orðnir um
40.000 og 20% af sölu verslana fór
í gegnum appið. Þar með er appið
orðið að einu stærsta vildarkerfi
landsins að sögn Gunnars Egils Sig
urðssonar, framkvæmdastjóra versl
unarsviðs Samkaupa.
„Við höfum verið dugleg að til
einka okkur nýja tækni og nýta fleiri
leiðir við að mæta viðskiptavinum
okkar. Netverslunin, sem fór í loftið
árið 2017, hefur vaxið hratt og í
fyrra var hvert metið slegið á fætur
öðru í nýtingu hennar hjá okkar við
skiptavinum. Við fengum vissulega
heimsfaraldur með tilheyrandi sam
komutakmörkunum en við teljum
að neytendahegðunin hafi breyst
til langframa og við hlökkum til
að stíga næstu skref á þessari veg
ferð. Nýsköpun er eina leiðin til að
lifa af og það má geta þess að við
höfum stutt við viðskiptahraðalinn
„Til sjávar og sveita frá hugmynd í
hillu“, sem er brú á milli nýsköpunar
og viðskiptavina. Þar hefur skapast
góður vettvangur til vöruþróunar,
m.a. á sviði hátækni í matvælaiðnaði,
nýjum lausnum í landbúnaði og haf
tengdum iðnaði, með betri nýtingu
hráefna þar sem sjálfbærni og ný
sköpun eru höfð að leiðarljósi. Ég
get lofað því að neytendur eiga von
á ýmsu góðu á þessu sviði á árinu
framundan,“ segir Gunnar Egill.
Stjórn Samkaupa er þannig skipuð:
Sigurbjörn Gunnarsson (KSK) form.,
Skúli Skúlason, Guðfinna S. Bjarna
dóttir, Margrét Guðnadóttir frá KB,
Halldór Jóhannsson frá (KEA) og
Anna Birgitta Geirfinnsdóttir.
Jafnrétti og umhverfið í
brennidepli hjá Samkaupum
Stjórnendur hjá Samkaupum eru 52% konur og 48% karlar.
Samkaupsappið með yfir 40.000 notendur og þar með
orðið eitt stærsta vildarkerfi á Íslandi.
Stjórn KSK:: Guðbjörg Ingimundardóttir, Sigurbjörn Gunnarsson, Skúli Skúlason form.,
Gerður Pétursdóttir, Eysteinn Eyjólfsson, Inga Brynja Magnúsdóttir. Sitjandi frá vinstri
Jóhann Geirdal og Jóngeir Hlinason.
„Þetta er mjög ánægjulegt. Rekstur
móðurfélags og dótturfélaga gekk
mjög vel og starfsemin hefur aukist
jafnt og þétt. Félagið er í meiri-
hluta eigu Suðurnesjamanna en
reksturinn hefur styrkst með út-
víkkun um landið á síðustu tveimur
áratugum,“ segir Skúli Skúlason,
stjórnarformaður Kaupfélags
Suðurnesja en aðalfundur KSK var
haldinn þann 17.mars.
Hagnaður móðurfélagsins nam
510 milljónum sem er líklega besti
árangur í sögu félagsins sem fagnaði
75 ára afmæli fyrir tveimur árum.
Eiginfjárhutfall félagsins er 74%
og félagið stendur traustum fótum.
Félagslegir eigendur í KSK voru um
síðustu áramót 7747.
Rekstur Samkaupa gekk sam
kvæmt áætlun á s.l. ári, salan voru
rúmir 40 milljarðar í 65 verslunum
um allt land. Hagnaður Samkaupa
var 460 milljónir en Kaupfélagið
á 51% hlut í Samkaup. Samkaup
opnaði 3 nýjar verslanir á síðasta.
ári. Ómar Valdimarsson lætur af
störfum sem forstjóri um næstu
mánaðarmót eftir alls 26 ár hjá fé
laginu og við tekur Gunnar Egill Sig
urðsson sem gegnt hefur starfi fram
kvæmdastjóra verslunarsviðs. Í máli
Skúla kom fram að 4 einstaklingar
hafa gegnt starfinu frá því að félagið
var stofnað 1998 og allir vaxið upp
innan félagsins.
Fasteignafélagið KSK eignir var
með veltu upp á 580 milljónir og
hagnaður var 46 milljónir. Fasteigna
félagið á 30 fasteignir í 21 sveitar
félagi, alls 32 þúsund fermetra hús
næðis sem nánast allt er í útleigu og
nýting því góð.
Í samstæðureikningi kemur fram
að heildarumfang samstæðu KSK
eru 16 milljarðar króna, eiginfjárhlut
fallið 30% og veltufjárhlutfall 1.04.
Besti árangur í
sögu Kaupfélags
Suðurnesja
Lykilstjórnendur Samkaupa hf., f.v. Heiður Björk, Stefán Ragnar, Gunnur Líf, Gunnar Egill og Ómar Valdimarsson.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, var gestur
aðalfundar KSK og fór yfir þróun mála hjá bæjarfélaginu.
Alexandra Chernyshova, sópransöngkona, söng
á aðalfundi KSK en hún er alin upp í Úkraínu.
Frá aðalfundi Kaupfélags
Suðurnesja í síðustu viku.